Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 39
KREPPUR OG KAPITALISMI
víslegum stofounum sem valdar hafa verið efdr hagnýtu gildi þeirra, skipan
sem stenst siðferðilega mælikvarða okkar? Ættum við að stefha að nýjum
kapítalisma eða „nýjum heimi“ [...] sem er öðruvísi uppbyggður?“4
Málsvarar óhefts markaðar telja að orsaka kreppunnar sé ekki að leita í
sjálfu efhahagskerfi kapítalismans heldur í sérstökum, tilfallandi aðstæð-
um, mistökum í hagstjórn, „undirmálslánum“ í Bandartkjunum, jafhvel
græðgi og skeytingarleysi fámenns hóps einstaklinga. Það eru kapítalist-
arnir en ekki kapítalisminn sem eru sökudólgarnir!
Á hinum enda hins hugmyndafræðilega litrófs eru marxistarnir sem líta
á kreppuna sem enn einn naglann í líkkistu kaptítalismans: hún er staðfest-
ing á því að svo alvarlegir gallar eru á hagkerfinu að ekkert dugir annað en
bylting. Milli þessara póla sveima svo umbótamenn af ýmsum gerðum sem
kalla efdr misróttækum „lagfæringum“, strangara eftirliti með umsvifum
fjármálakerfisins, nýjum og siðrænni kapítalisma, jafhari skiptingu Hfsgæða
og endurreisn hins opinbera í efnahagslífi - jafhvel að „böndum verði
komið á hnattvæðinguna“. Það er umhugsunarvert að enda þótt efnahags-
kreppan hafi blásið nýjum lífsanda í ýmsar vinstrisinnaðar hugmyndir hafa
\dnstriflokkarnir í Evrópu ekki notið góðs af; þvert á móti töpuðu sósíal-
demókratar og sósíalistar í mörgum löndum fylgi í kosningum til
Evrópuþingsins á árinu 2009 en íhaldsöfl sóttu í sig veðrið. I þeim löndum
þar sem fram hafa farið kosningar til þjóðþinga á árinu 2009 hefur vinstri-
flokknm ekki famast vel. Aðeins á Islandi hafa \dnstriflokkar unnið stórsig-
ur, en í kosningum til Alþingis í apríl 2009 náðu Vinstrigrænir og
Samfylking meirihluta og mtnduðu ríkisstjóm, þá fyrstu í sögu landsins
sem eingöngu er mynduð af \tinstriflokkum.
Endurmat á hugm^mdakerfum heldur áfram og birtist m.a. í því að
róttæk gagnrýni á kapítalismann er aftur komin í tísku. Menn hafa dustað
r}rkið af hugmyndum Karls Marx um kreppur sem hann setti fram upp úr
miðri 19. öld og vom hluti af kenningakerfi hans um kapítalismann. Rit
Marx hafa selst eins og heitar lummur undanfarið ár og meira að segja era
menn famir að rýna í Auðmagnið sem hörðustu marxista hefur óað við að
lesa.
Til marks um uppnám ríkjandi stjórnmála- og efhahagshugmynda er
umfjöllun bandaríska fréttatímaritsins Time í byrjun febrúar 2009 þar
sem tekinn er púlsinn á ástandi efnahagsmála í heiminum og prýðir
mynd af Karli Marx forsíðuna undir fyrirsögninni What Would Marx
4 Amartya Sen, „Capitalism Beyond the Crisis“, The New York Revierw ofBooks 56(5),
26. mars 2009. Þýðingar á tilvitnunum í greininni eru verk greinarhöfundar.
37