Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Side 161
REYKJAVIKURNÆTUR
til þess að uppfylla sínar eigin félagslegu þarfir.14 Flæðið á milli hópa er því
að mati Maffesoli til marks um það að sjálft félagslyndið hafi á ný öðlast
mikilvægi sem gildi í sjálfu sér.15
Dagbókan-annsókn
Til þess að kanna ítarlegar hvernig ungt fullorðið fólk notar áfengi á
skemmtistöðum ákváðu höfundar þessarar greinar að gera svokallaða
dagbókarrannsókn. Hliðstæðar rannsóknir hafa verið gerðar í Osló og
Stokkhólmi og voru höfundar þátttakendur í norrænum rannsóknarhópi
um áfengisneyslu og skemmtistaði. Fyrirmyndin að dagbókarrannsókninni
er sótt tdl rannsókna Jukka Törrönen og Antti Maunu sem gerðar voru í
Helsinki.16 Norrænu dagbókarrannsóknirnar voru birtar í ritinu Painting
the Town Red. Puhs, Restaurants and Young Adults’ Drinking Cultures in the
Nordic Countries sem kom út árið 2008.17
Eigindlegar rannsóknir notast alla jafna við lítil úrtök og svo var einnig
í þessum rannsóknum. Sameiginleg reynsla norrænu rannsakendanna var
sú að þegar leitað var sjálfboðaliða fannst öllum þeim sem rannsóknin var
kynnt hún sérlega áhugaverð, en fáir voru þó tilbúnir til þess að halda
dagbók af þessu tagi. Tímaffekt var að afla tengsla við einstakhnga og litla
hópa sem voru tilbúnir til að halda dagbók. Þátttakendur voru enn fremur
misjafnlega fúsir til að fylgja fyrirmælum um uppbyggingu skrifanna og
fengust aðeins til að skrifa niður frásagnir sínar á stuttu tímabili.
Rannsóknin krafðist því mikillar efrirfylgni. Niðurstaðan varð sú að rann-
sakendur í Osló, Stokkhólmi og Reykjavík urðu að notast við ólíkar
aðferðir til að fá fólk til að taka þátt í rannsóknunum. Þá nálguðust þeir
viðfangsefnið á nokkuð ólíkan hátt þannig að beinn samanburður er ekki
raunhæfur þar sem aðstæður í borgunum eru ólíkar.
Taka ber ffam að þótt hér sé notað hugtakið dagbókarrannsókn er ekki
14 Rupert Weinzierl og David Muggleton, „What is ‘Post-Subcultural Studies’
Anyway?“, The Post-Subailtures Reader, ritstj. David Muggleton og Rupert
Weinzierl, Oxford og New York: Berg, 2004, bls. 3-26, hér bls. 11.
15 Paul Hodkinsson, ,,‘Net.Goth’ Intemet Communication and (Sub)Cultural
Boundaries“, The Post-Subadtures Reader, bls. 285-298, hér bls. 286-287.
16 Jukka Törrönen og Antti Maunu, „Krogbv, sociahtet och kulturella distinktioner“,
NAT- Nordisk alkohol- & narkotikatidskrift, 21(6), 2004, bls. 399-416.
17 Painting the Torwn Red. Pubs, Restaurants and Young Adults’ Drinking Gultures in the
Nordic Countries, ritstj. Börje Olsson og Jukka Törrönen, Helsinki: Nordic Centre
for Alcohol and Dmg Research, 2008.
x59