Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 166
HILDIGUNNUR ÓLAFSDÓTTIR OG UNNUR M. BERGSVEINSDÓTTIR
legur, og nýkominn með \nnveitingaleyfi, en hann lokar oft vel
fyrir auglýstan lokunartíma. Það rættist einmitt í þetta skiptið,
hálftólf voru við beðin að fara og neyddumst til að skipta enn
einusinni um stað.29
Athyglisvert með þetta kvöld hvað það fór mikill tími á að ráfa
milli staða í leit að einhverju sem passaði. Þó eru til staðir sem
hafa allt sem okkur vantaði, mat, drykk, næði og net... við
bara slysuðumst ekki inn á þá. Eða langaði ekki inn á þá vegna
stemningarinnar.3 0
Þó svo að þátttakendur væru hvattir til þess að lýsa umhverfi og aðbún-
aði var lítið um slíkt í dagbókunum. Þjónustu og kosts var hins vegar
nokkuð oft getið. I frásögnunum kom bæði fram ánægja með mat og
þjónustu en einnig voru dæmi um megna óánægju. Dæmi um lélega þjón-
ustu voru flest í þeim frásögnum þar sem aðalmarkmið kvöldsins var að
fara út að borða, enda reynir augljóslega meira á stað og þjónusm þegar
gestdrnir eru bæði að kaupa mat og drykk. Sem dæmi um óánægju með
hæga þjónustu má nefha eftirfarandi staðhæfingu: „Líklega er til full mikils
ædast að láta einn starfsmann sjá um að afgreiða, taka af borðum og búa til
allan mat og alla drykki.“31
Við og hinir
Eins og getið var hér ffamar virðist staðarvalið frekar helgast af samsetn-
ingu gesta og andrúmslofti en af umhverfi og þjónustu. Kunnugleg andlit
og möguleikinn á því að rekast á vini og kunningja eru þættir sem skipta
miklu máli. Enn ffemur minntust margir þátttakendanna á að þeim liði vel
á tilteknum stöðum vegna þess að þar fundu þeir þann hóp sem þeir töldu
sig til og það andrúmsloft sem þeim þótti efdrsóknarvert.
Þegar sjálfsmynd hópa er skoðuð er oft sótt í smiðju Bourdieu en hann
sagði um það hvernig einstaklingurinn skipar sér í flokk með öðrum að
„[ejngin skilgreining segir meira um einstaklinginn heldur en þau mörk
sem hann eða hún dregur“.32 Samkvæmt Bourdieu er mótun sameiginlegs
29 Karl 2-f2.
30 Karl 2-f2.
31 Karl 2-f2.
32 Pierre Bourdieu, I?i Other Words. Essays Towards a Reflective Sociology, Stanford:
Stanford University Press, 1992, bls. 132.
164