Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Qupperneq 181
REYKJAVÍKURNÆTUR
en það er fullt eins líklegt að þær fari fram í heimahúsum eins og á
skemmtdstöðum.92
Lýsingarnar sýndu hvernig áfengi var bæði tæki og hindrun í skemmt-
analífmu eins og Törrönen og Maunu hafa bent á.93 Bæði í Helsinki en þó
sérstaklega í Osló var aðlögun eigin drykkju að drykkjustigi hópsins sterk-
ari þáttur í því að sýna að fólktilheyrði hópnum ení Reykjavíkurff ásögnunum.
Þetta má skýra með því að þátttakendurnir í dagbókarrannsókninni í Osló
héldu yfirleitt hópinn allt kvöldið.94 Hins vegar skipti fólk sér lítið af
drykkju annarra, ekki einu sinni vina sinna. Afskiptaleysið útilokar þó ekki
að ölvun annarra væri sýndur skilningur eins og komið hefur ffam í rann-
sóknum Abrahamssons á ölvunardrykkju sænsks ungs fólks.95 Almennt
ölvunarástand annarra gesta var þó eitt af því sem talið var spilla stemning-
unni og setja leiðinlegan svip á umhverfi staðarins. Reglurnar um afskipta-
leysið kunna að vera staðfesting á því að litdð er á vínveitingastaðina sem
heterótópíur þar sem óöguð hegðun er leyfð.96
Hjá dagbókarriturunum í Reykjavík kom skýrt ffam að mikilvægt var
að hafa stjórn á drykkjunni og í Helsinki var sömuleiðis lagt mikið upp úr
því að geta stýrt aðstæðum.97 Sjálfsstjórnin beindist að því að hafa stjórn á
áfengisneyslunni í samræmi við eigin væntingar, siðareglur og sjálfsmynd.
Dagbókarrannsóknirnar ffá Helsinki og Reykjavík vitnuðu um mikilvægi
sjálfsaga og frjáls vals, en hvort tveggja era gildi sem hefur verið haldið á
lofti af hinni nýju millistétt.98
Eins og oft er í rannsóknum á félagslegu taumhaldi nefndu þátttakend-
ur frekar dæmi um það hvernig sjálfsstjórnin hafði bragðist en það þegar
hún tókst. Ytri aðstæður sem tempraðu drykkjuna voru aðallega tvær:
vinna og hátt verðlag. Aðhald vinnunnar kom skýrast ffam þegar verið var
að lýsa kráarheimsóknum í miðri viku. I frásögnum komu fram mjög
strangar reglur um að áfengi og vinna færi ekki saman. Fólk drakk alls ekki
áfengi eða mjög lítið þegar það þurfti að mæta til vinnu seinna sama dag
92 Philip Lalander, „Beyond everyday order: Brealdng away with alcohol", NAT -
Nordisk alkohol- &narkotikatidskrift 14, English Supplement, 1997, bls. 33-42.
93 Törrönen og Maunu, „Láttsarruna samkvám, intensiv samvaro"; Törrönen og
Maunu, „Going out, sociability, and cultural distdnctions“.
94 Lund og Scheffels, „Oslo by night“.
95 Maria Abrahamsson, „Nár jag drack för mycket - unga i 20 arsaldern beráttar“,
NAT- Nordisk alkohol- ir narkotikatidskrift 20(6), 2003, bls. 395—408.
96 Foucault, „Um önnur rými“.
97 Törrönen og Maunu, „While it’s red wine with beef, it’s booze with a cruise!“.
98 Pekka Sulkunen, The European New Middle Class, Aldershot: Avebury, 1992.
179