Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 136
136 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
Fyrirtækið Hagvangur var stofnað árið 1971 og er eitt elsta ráðgjaf ar fyrir
tæki landsins. Í fyrstu starfaði fyrirtækið á sviði rekstrarráðgjafar. Síðar
varð það ekki síður þekkt fyrir skoðanakannanir og ráðningarþjónustu.
Heilindi og heiðarleiki í lykilhlutverki
KonuR Í FoRSVARi
Texti: Hrund Hauksdóttir / Myndir: Geir Ólafsson
K
atrín S. Óladóttir,
framkvæmdastjóri
Hagvangs, er flest-
um hnútum kunnug
í íslensku atvinnulífi, enda hef-
ur hún starfað við ráðgjöf og
ráðn ingarþjónustu í á fjórða tug
ára. Á starfsferli sínum hefur
hún kynnst aragrúa fólks úr
öllum geirum atvinnulífsins og
öðlast einstakt innsæi í fólk og
fyrirtæki.
konur sækja fram
Katrínu finnst staða kvenna
inn an atvinnulífsins hafa breyst
á hennar starfsferli:
„Konur eru sem betur fer
alltaf að sækja fram og þótt
enn megi gera betur í sam -
félag inu er gott til þess að
vita að þróunin er í rétta átt.
Hindr anirnar, sem konur hafa
þurft að glíma við á leið sinni
til metorða, bæði þær sýnilegu
sem og þær ósýnilegu, eru
sífellt að minnka. Gott dæmi
um það er hvað konur eru að
verða meira áberandi í stjórn -
um stærri fyrirtækja. Eins
hefur á síðustu árum sprottið
upp fjöldi kvenfrumkvöðla í
ýmsum geirum atvinnulífsins.
Vel gengni þeirra skapar fleiri
heilbrigðar og sterkar fyrir -
mynd ir fyrir ungar konur,
mótar viðhorf og dregur úr gildi
gamal gróinna staðalmynda.“
forspá um
frammistöðu
Er Hagvangur í aðstöðu til að
stuðla að frekara jafnrétti á
vinnumarkaði?
„Já, ég held því fram. Fyrst
og fremst gerum við það með
því að leggja ofurkapp á að
hæfni umsækjenda sé metin
á eins hlutlægan hátt og unnt
er. Aukin notkun aðferða eins
og starfstengdra hæfnisprófa,
persónuleikamats og prófa í
greiningar- og ályktunarhæfni,
sem allar hafa sterka forspá
um frammistöðu í starfi og
eru hlutlausar gagnvart kyn -
ferði, minnkar vægi úreltra
staðalmynda og hjálpar hæfi -
leika ríkum konum að fá þau
tækifæri í atvinnulífinu sem þær
verðskulda.“
Bjartsýni á bænum
Ertu bjartsýn á að atvinnulífið
sé loksins að komast upp úr
hjólförunum?
„Já, ég er það. Nú höfum við
haft sex ár til að takast á við
hrunið, endurstilla kompásinn
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs.