Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 149
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 149
F
yrsta vörulína fyrir -
tækisins, UNA
skincareTM húð vör -
urnar, kom á mark að
árið 2012 og var vel tekið af
íslenskum neytendum.
Bryn hildur Ingvarsdóttir fram -
kvæmdastjóri segir Frjálsri
verslun að vörurnar hafi öðlast
traustan sess á íslenskum
snyrti vörumarkaði og séu í
sókn á Evrópumarkaði.
Þangið með fjöl
breytta virkni
Hvaða nýjungum hefur
Marinox bryddað upp á
síðasta árið?
„Nýjasta varan frá UNA
skin care er augnkrem sem
bætt ist við síðastliðið haust.
Þróun á næstu vörum fyrir
UNA skin care er í fullum gangi
en undanfarið hefur starfsfólk
Marinox einnig unnið að þróun
á innihaldsefnum í matvæli og
fæðubótarefni og undirbúið
sókn inn á þá markaði.
Rannsóknir okkar á lífvirku
efnunum sem hægt er að vinna
úr mismunandi tegundum
af þangi hafa leitt í ljós mun
sterkari og fjölbreyttari virkni
en áður var talið og gefið mjög
spennandi og stundum óvæntar
niðurstöður.“
Hvaða vörur eða þjónustu
hefur fyrirtækið helst auglýst
undanfarið ár og notar
Marinox samfélagsmiðla
eins og Facebook í markaðs
setningu?
„Undanfarið höfum við mest
auglýst UNA skincare vöru -
línuna en einnig lagt áherslu
á að kynna vísindin að baki
vöruþróuninni. Við erum
rétt að byrja að kynna fyrir
neyt endum nýjar rannsókna -
niðurstöður sem sýna ótvíræða
kosti þess að nota þangextrakt
– bæði útvortis og innvortis.
Facebook og Twitter hafa nýst
okkur vel til að miðla þessum
upplýsingum.“
Hvaða atriði finnst þér helst
hafa breyst varðandi stöðu
kvenna innan atvinnulífsins á
síðustu tíu árum?
„Konur hafa tvímælalaust látið
meira að sér kveða undanfarin
ár. Þær eru orðnar meira áber-
andi í viðskiptalífinu og þeim
hefur fjölgað nokkuð í stjórnun-
arstöðum og stjórnum. Hjá
Marinox eru konur í meirihluta
en fyrirtækið var stofnað af
frumkvöðlunum dr. Herði G.
Kristinssyni, sem jafnframt er
rannsóknastjóri fyrirtækisins,
og Rósu Jónsdóttur gæðastjóra
Marinox.“
„Þróun á næstu
vörum fyrir UNA
skincare er í fullum
gangi en undanfarið
hefur starfsfólk
Marinox einnig
unnið að þróun á
innihaldsefnum í
matvæli og fæðu
bótarefni og undir
búið sókn inn á
þá markaði.“
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson
marinox ehf. er ungt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum, þróun og framleiðslu á
lífvirkum efnum úr sjávarþörungum og afurðum sem innihalda slík efni.
Þróun og sókn byggð á lífvirkum efnum
Nafn: Brynhildur Ingvarsdóttir.
Starf: Framkvæmdastjóri.
Fæðingarstaður: London, Englandi.
Maki: Dr. Hrafnkell Kárason.
Börn: Erla, Iðunn, Hringur og
Signý.
Tómstundir: Fjölskyldan,
líkamsrækt, hönnun og
bókmenntir.
Sumarfríið 2014: Stefni með
stórfjölskyldunni til Spánar.
STEFNAN
Marinox stefnir að því að verða
leiðandi á heimsvísu í þróun og
framleiðslu á lífvirkum efnum
unnum úr sjávarþörungum sem
vaxa í hreinni náttúrunni við
ósnertar strendur Íslands.
Stjórn fyrirtækisins: Oddur M.
Gunnarsson, formaður, dr. Hörður
G. Kristinsson og Jón H. Arnarson.
Halla Halldórsdóttir framleiðslustjóri, Brynhildur ingvarsdóttir framkvæmdastjóri, Eybjörg Einarsdóttir
sölu- og markaðsstjóri og Sigrún B. Magnúsdóttir söluráðgjafi.
KonuR Í FoRSVARi