Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 135
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 135
aðra eiginleika en karlar og
það hefur sýnt sig að þessir
„kvenlegu“ eiginleikar nýtast
mjög vel í tæknigeiranum.“
Guðrún Lauga: „Okkar dag -
lega líf byggist mun meira á
tækni í dag en fyrir tíu árum
og þótt það sé kannski einhver
áherslumunur á því hvernig
konur og karlar nýta sér tækni
held ég að konur séu alls ekki
minni hópur notenda en karlar.“
sýnilegar fyrirmyndir
eru mikilvægar
Hvernig er hægt að fjölga
konum í tæknigeiranum að
ykkar mati?
Gunnlaug: „Með því að
öflugar konur sem starfa í
tækni geiranum séu sýnilegar
fyrir myndir og aðgengilegar
stúlkum á mismunandi náms -
stigum. Hér skiptir máli að
áhersla sé lögð á fjölbreyti leika
starfa í tækni geiranum og þá
sköpunar- og listahæfni sem
nýtist í faginu.“
Guðrún Lauga: „Með því að
vekja athygli á hvað er í boði.
Átaksverkefnið Konur í tækni,
sem stelpurnar í GreenCloud
hleyptu af stokkunum, er frábært
dæmi auk þess sem stelp ur í
háskólunum hafa verið að stofna
félög og svo er Rakel Sölva dóttir
í Skema frábær fyrirmynd.“
Kristín Gróa: „Ég held að það
þurfi að markaðssetja tækni -
greinarnar betur. Kannski halda
sumar konur að störf innan
tæknigeirans séu þess eðlis að
fólk vinni ein angrað með tölv-
unni þegar sannleikurinn er sá
að öll tæknifyrirtæki sem ná
árangri byggja mjög mikið á
teymis vinnu.“
fjölbreytt verkefni hjá
marel
Hver eru ykkar helstu verkefni
og hvað er framundan í starfi?
Gunnlaug: „Mitt helsta verk-
efni hjá Marel er að verk -
stýra innleiðingu á Microsoft
Dynamics AX-viðskipta kerfi
(ERP system) sem fyrirtækið
notar fyrir sinn rekstur. Við
höfum verið að búa til sam -
ræmd an viðskipta lausnar grunn
fyrir allar sölu- og þjón ustu -
skrifstofur Marels og nú er
búið að taka lausnina í notkun
á fyrsta staðnum. Síðan verður
hún innleidd á fimmtán stöðum
til viðbótar á næstu tveimur
árum.“
Kristín Gróa: „Ég vinn í hug -
búnaðarteymi við að þróa
stýrihugbúnað Marels sem
nefnist Innova. Við sinnum því
sem snýr að vinnslukerfunum
sjálfum; samskiptum við
tæki, skráningu og úrvinnslu
gagna, uppsetningu á nýjum
hugbúnaði hjá viðskiptavinum
og fleiru.“
Guðrún Lauga: „Nýlega tók ég
við nýju hlutverki á upp-
lý s inga tæknisviði þar sem ég er
tengiliður varðandi upp -
lý s inga tæknimál við þjón ustu-
svið Marels um allan heim
og aðstoða það við að útfæra
kröfur í þeim tilgangi að bæta
og sjálfvirknivæða þeirra
vinnu ferla með aðstoð upp lý s -
ingatækni.“
unnið að þéttingu
tengslanets
Eru konur í tækni með öflugt
tengslanet? En konur í Marel?
Kristín Gróa: „Konur í Marel
hafa alltaf reynt að halda
saman enda sannleikurinn sá
að þær eru í minnihluta inn an
fyrirtækisins. Nýlega héld -
um við fund til þess að þétta
tengsla net kvenna innan fyrir -
tæki sins og mér fannst það skila
góðum árangri.“
Guðrún Lauga: „Það hefur
verið að batna núna allra síð -
ustu ár og er frábært að sjá
hversu margar öflugar konur
eru að skapa þessum vettvangi
meiri umfjöllun og í leiðinni
vettvang fyrir bætt tengsl.“
Heilræði frá konum í
tæknigeiranum
Eigið þið einhver ráð eða
heilræði til kvenna sem hafa
áhuga á að starfa í tækni
geir anum eða eru að stíga sín
fyrstu skref á þessu sviði?
Guðrún Lauga: „Gera það
sem hugurinn stendur til og
láta ekkert stoppa sig og gefast
aldrei upp þótt á móti blási.“
Kristín Gróa: „Hafið í huga að
allir starfsmenn fyrirtækisins
voru einhvern tíma nýgræð ing -
ar og gengu í gegnum nákvæm-
lega það sama og þið. Það er
ekkert til sem heitir heimskuleg
spurning svo maður ætti aldrei
að vera hræddur við að spyrja.
Það er fljótlegasta leiðin til að
læra.“
Gunnlaug: „Ég tel það skipta
miklu máli fyrir konur að átta sig
á faglegri og persónulegri hæfni.
Því er mitt ráð að hvetja þær
áfram og minna þær á að virkja
kraftinn innra með sér.“
„Undanfarin ár hefur umræðan um
konur í tæknigreinum aukist, sem er
jákvætt, og mér finnst ungar konur
vera að stíga fram og vekja athygli á
því að það er margt áhugavert fyrir
konur í tæknigeiranum og svo miklu
meira en bara forritun.“
„Konur í Marel hafa
alltaf reynt að halda
saman enda sannleik
urinn sá að þær eru
í minnihluta innan
fyrirtækisins. Nýlega
héldum við fund til
þess að þétta tengsla
net kvenna.“
Ragnhildur Þórunn Óskarsdóttir kerfishug-
bún að a rhönnuður, Guðrún Lauga Ólafsdóttir
it-viðskiptatengill, nancy Valenttina Griffin
Dynamics AX-ráðgjafi, María Erla Hilmarsdóttir
Dynamics AX-ráðgjafi, Kristín Gróa Þorvalds-
dóttir kerfishugbúnaðarhönnuður, Gunnlaug
ottesen, verkefnastjóri í upplýsingatækni, Þórdís
Reynisdóttir, sérfræðingur í vöruþróun, Bjartey
Sigurðar dóttir tækjahugbúnaðarhönnuður og
Stella Guðjónsdóttir tækjahugbúnaðarhönnuður.