Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 177
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 177
að leika í stórum Hollywood
myndum sem hafa gert lítið
fyrir hana sem leikkonu en fært
henni auðfenginn pening að
eigin sögn.
Glæsilegur ferill
Ferill Helen Mirren er glæsi leg
ur, hvort sem litið er til leikhúss,
kvikmynda eða sjónvarps. Í
leikhúsinu hefur hún leikið öll
stærstu hlutverk sem í boði eru
fyrir leikkonur og gert það með
miklum glæsibrag. Sjálf segir
hún að eitt eftirminnilegasta
leikritið sem hún hafi leikið í sé
Morning Becomes Electra eftir
Eugene O’Neill í uppsetningu
National Theatre árið 2003. „Ein
besta lífsreynsla mín á ævinni.
Sýningin var fjögurra og hálfs
tíma löng og ég hef aldrei
upp lifað önnur eins viðbrögð
hjá áhorfendum, sem fannst
sýn ingin ekki mínútu of löng
enda frábært leikrit í ótrúlega
flottri sviðsetningu og styrkri
leikstjórn.“ Þess má svo geta að
í fyrra lék hún enn eina ferðina
Elísabetu II; nú á sviði í leikrit
inu The Audience eftir Peter
Morgan í leikstjórn Stephens
Daldrys. Fékk hún hin eftirsóttu
Olivierverðlaun fyrir leik sinn.
Helen Mirren hélt sig að lang
mestu leyti á heimaslóðum í
upphafi kvikmyndaferils síns og
breskar kvikmyndir sem komu
á eftir The Age of Consent
voru meðal annars Midsummer
Night’s Dream, O Lucky Man,
Cal, Calicula, Excalibur, The
Long Good Friday, The Mad-
ness of King George, Teaching
Mrs. Tingle og The Cook, The
Thief, His Wife and Her Lover,
allt úrvalsmyndir ef Calicula er
undanskilin, sem mörgum þótti
argasta klám og vílaði Helen
Mirren ekki fyrir sér að koma
allsnakin fram í henni.
Eftir því sem árin liðu fór Mirr
en meira að leika í alþjóðlegum
kvikmyndum án þess þó að
láta Hollywood ná tökum á sér
og má nefna úrvalsmyndir eins
og The Mosquito Coast, White
Nights, Painted Lady, Gosford
Park, Calender Girls og Raising
Helen. Nýrri myndir Mirren auk
The Queen eru helstar Inkheart,
State of Play, The Last Station,
The Debt, Brighton Rock og
Hitchcock.
Í sjónvarpi er Mirren þekkt ust
fyrir túlkun sína á lögreglu kon
unni Jane Tennison í Prime
Suspect. Fékk hún hvorki meira
né minna en þrenn BAFTAverð
laun fyrir leik sinn í þátta röðinni
og ein Emmy zverðlaun. Hefur
túlkun hennar á Tennison verið
fyrirmynd í mörgum sjónvarps
seríum. Af öðrum afrekum
hennar í sjónvarpi má nefna
titilhlutverkið í Elizabeth I, The
Passion of Ayn Rand og The
Roman Spring of Mrs. Stone,
en fyrir leik sinn í þessum
sjón varpsmyndum hlaut Mirren
mörg verðlaun.
Þrátt fyrir fjölmarga leiksigra
má segja að Mirren komist ekki
á Alista kvikmyndaleikara, sem
svo er nefndur, fyrr en eftir The
Queen og þá fer hún einnig
að taka að sér aukahlutverk
í dýrum stórmyndum. Meðal
slíkra mynda má nefna National
Treasure 2: Book of Secret,
Red og Red II.
Helen Mirren er vön að fá
verðlaun og kippir sér ekki upp
við ein slík í viðbót en viðurkenn
ir að Óskarsverðlaunin séu
sérstök. „Það var stórkostlegt að
fá Óskarinn og eftir það fannst
mér ég geta allt og það sem var
kannski best að nú var ég laus
við þá hugsun sem stundum
ásótti mig: „Af hverju fékk hún
Óskarinn en ekki ég!““
Einkalíf
Í einkalífinu var Helen Mirren
ekki við eina fjölina felld á yngri
árum. Elskhugar komu og fóru
og hefur hún viðurkennt að
partíin sem hún sótti hafi oftar
en ekki verið villt og hún hafi
neytt kókaíns í mörgum þeirra
en sé löngu hætt þeirri iðju.
Meðal kærasta hennar á þess
um árum var Liam Neeson, en
þau kynntust við tökur á Excali
bur og bjuggu saman um tíma.
Mirren róaðist ekki fyrr en hún
hitti leikstjórann Taylor Hackford
(An Officer and a Gentleman,
Dolores Claiburne, The Devil’s
Advocate, Ray) við tökur á
White Nights, en hann leikstýrði
henni í þeirri kvik mynd. Þau
hófu sambúð 1986 en giftu sig
ekki fyrr en 1997. Ekki hafa þau
unnið mikið saman. Hefur Mirr
en aðeins leikið í einni kvik mynd
í hans leikstjórn eftir að þau
kynntust, Love Ranch (2010).
„Eiginmaður minn er ekki sá
vinalegasti á tökustað og getur
verið harður húsbóndi. Og
þar sem ég er tilfinningalega
bundin honum er erfitt fyrir mig
að fylgjast með honum skamma
aðra og oft var ég að taka til
eftir hann og hughreysta fólk og
segja að hann væri ekki svona
heima. Svo er ég á því að hjón
þurfi ekki alltaf að vera saman,
við erum atvinnumenn í okkar
fagi. Aftur á móti hef ég mjög
gaman af að fara á tökustað þar
sem hann leikstýrir og þurfa ekki
að taka við skipunum frá hon um,
vera aðeins eiginkona hans.“
Helen Mirren er ekkert að
hægja ferðina og eru fjórar kvik
myndir væntanlegar með henni
að The Hundred-Food Journey
meðtalinni. Í The Woman in
Gold leikur Mirren gyðingakonu
á níræðisaldri sem reynir að
endurheimta málverk sem hún
telur að fjölskylda sín hafi átt.
Trumbo er byggð á ævi þekkts
handritshöfundar í Hollywood
sem lenti á hinum alræmda
„svarta lista“. Bryan Cranston
leikur Dalton Trumbo og Mirren
eiginkonu hans. Fjórða myndin
er spennumyndin Eye in the
Sky þar sem mótleikari hennar
er Colin Firth. Helen Mirren í sinni fyrstu
kvikmynd, Age of Consent frá
árinu 1969.
„Það var stórkostlegt að
fá Óskarinn og eftir það
fannst mér ég geta allt
og það sem var kannski
best að nú var ég laus við
þá hugsun sem stundum
ásótti mig: „Af hverju
fékk hún Óskarinn en
ekki ég!““
Helen Mirren sem Jane ten-
nison í sjónvarpsþáttaröðinni
vinsælu Prime Suspect.
Óskarsverðlaunin fékk Helen Mirren fyrir að leika Elísabetu
drottningu í the Queen.