Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 37
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 37
„Við vorum með
milli 50 og 60% af
lánabókinni okkar
„none performing”
eins og það er kallað
á bankamáli og við
þurft um að vinna
með það.”
gert ítarlega úttekt á þeim
mark aði þannig að við áttum
okkur á heildarmyndinni, t.d.
hvar gistirýmum er að fjölga,
hvernig ferðamannaþróunin er,
og höfum það á hreinu hvar við
viljum staðsetja okkur í þessu.“
Við hugsum vel um
fólkið okkar
Birna var kjörin viðskiptafræð -
ingur ársins í vor, m.a. vegna
frammistöðu bankans í fyrr -
nefndri endurskipulagningu
fyrirtækja, og jafnhliða að
takast að byggja upp góðan
starfsanda innan bankans.
„Já, kannski er ég stoltust
af hvað okkur hefur tekist
að ná upp góðri samstöðu
og góðum starfsanda meðal
starfs manna okkar. Við erum
þar að uppskera eftir að hafa
lagt í mikla vinnu í því efni og
við þurftum þess eftir hrunið.
Ég hef lýst því þannig að við
vorum með hundrað þúsund
reiða viðskiptavini og þúsund
starfsmenn sem vissu ekkert
hvað myndi gerast næst, sjálf -
straustið brotið og við vor um
ekki einu sinni með efna hags -
reikning til að byrja með. Það
er óhætt að segja að þetta var
nú frekar ögrandi viðfangs -
efni.“
Hún segist hafa ákveðið að
taka alla starfsmenn með í
stefnumótun fyrir framtíðina.
„Það var lykillinn. Fólk vissi
að það var þátttakandi í því að
byggja upp þennan banka. Ég
segi oft frá því að hér eru allar
ákvarðanir teknar í hópum.
Það tekur oft lengri tíma en
þegar þú ert búinn að ná niður -
stöðunni er innleiðingin svo
miklu þægilegri. Hér fáum
við niðurstöður úr könnunum
um að um 95% starfsmanna
okkar finnist þeir eiga eitthvað
í stefnunni okkar og innleið -
ing unni á henni. Ekkert gleður
mig meira en að sjá svoleiðis
niðurstöður. Svo held ég að
Íslandsbanki sé rosalega góður
vinnustaður. Við hugsum vel
um fólkið okkar.“
Í vefritinu Kjarnanum ný -
verið var því haldið fram að
íslenski fjármálaheimurinn
væri að 93% leyti karlaheimur.
„Kynjahlutföllin í þessum
banka eru hins vegar ágæt.
Konur eru 44% í stjórn bank -
ans og konur sem stjórn endur
innan bankans eru 50%, konur
í framkvæmda stjórn 38% og
33% útibússtjóra eru konur.”“
Yfirburðir
Íslandsbanka
En er íslenska bankakerfið of
dýrt? „Það eru nokkur atriði
sem gera það að verkum að
bankakerfið hér er búið að
vera dýrt undanfarin ár,“ svarar
Birna. „Bara endur skipu lagn -
ingin sem við nefndum áðan –
það þurfti bara margar hendur
til að vinna það verk. Við erum
búin að endurreikna tugi þús -
unda lána og þurftum að vera
með tuttugu manna teymi í
slíku. Við erum búin að vera að
bæta innviði bankans, fjárfesta í
innviðum og kerfum, sem hefur
líka kallað á mannskap. Síðan
hefur regluverkið verið stórlega
aukið, miklar viðbótarkröfur
frá eftirlitsaðilum sem gert hafa
það að verkum að eftirlits ein -
ingun um fjölgar mjög mikið.
Það mátti gerast í mörgum til -
fellum en við verðum líka að
gæta þess að finna rétta jafn -
vægið í þessu. Það eru örugg -
l ega tækifæri til lækkunar og
bankarnir hafa verið að lækka
hjá sér kostnaðinn. Ef við berum
bankana hér saman við banka
annars staðar á Norður löndum
þá hafa íslensku bankarnir verið
að skera miklu meira niður úti -
búanet sitt en þar hefur verið
gert. En íslensku bankarnir
verða alltaf með tiltölulega
hátt kostn aðarhlutfall miðað
við stærstu alþjóðlegu bank -
ana því þarna kemur líka
til stærðarhagkvæmnin –
við þurfum að sinna sama
regluverki og banki sem er
risastór. En við berum okkur
líka saman við banka sem eru
af svipaðri stærð og erum þar
algjörlega á pari við þá.“
Skömmu eftir að íslensku
viðskiptabankarnir þrír birtu
þriggja mánaða uppgjör sín
fyrir þetta ár birtist á Eyjunni
blogg eftir verkfræðinginn
Andra Geir Arinbjarnarson þar
sem hann ber saman uppgjörin.
Hann hælir Íslandsbanka sér -
staklega fyrir uppsetningu
rekstrar reikningsins sem miðist
við íslenskar aðstæður eftir
hrun þar sem lykilstærðin sé
hagnaður fyrir virðisrýrnun
og virðisbreytingu útlána. Þar
með reyni bankinn að greina
venjulegan rekstur frá hagnaði
sem myndaðist vegna hrunsins.
Þetta sé mikilvægt vegna
þess að stór hluti hagnaðar
bank anna frá hruni sé vegna
umsýslu með hruneignir og
þessi uppsetning sýni hvernig
bönkunum miði á leið sinni
frá hruninu. Á þennan mæli -
kvarða, segir Andri, var
hagnaður Íslandsbanka fyrstu
þrjá mánuðina 4,4 milljarðar,
Arion banka 2,1 milljarður og
Landsbankans 1,1 milljarður.
– Þessi uppsetning sýnir vel
yfirburði Íslandsbanka. Það er
sá banki sem virðist kominn
lengst í að endurskipuleggja
starfsemi sína frá hruni.
Hvað segir bankastjórinn um
þetta?
„Já, ég var búin að sjá þetta
og þetta gladdi mig,“ segir
Birna Einarsdóttir – og brosir
blíðlega.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.