Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 20
20 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
í krafti hlutafjáreignar í fyrirtækjum hljóti að
vega þungt í úttekt sem þessari – og ekki
síst viljinn til að hafa áhrif. Oft er það þannig
að fólk hefur völd en skortir viljann til að
hafa áhrif. Konur sem stjórnendur í stórum
fyrir tækjum, hvort heldur sem forstjórar,
næstráðendur eða í stjórnum þeirra, hljóta
ævin lega að vera sterklega orðaðar við list
ann. Á síðustu árum hefur frumkvöðlastarf
vegið þyngra – ekki síst í ljósi
þess hversu mikilvæg fyrirmynd
það er.
tímaskekkja?
Í aðdraganda þessa blaðs
urðu umræður í fjölmiðlum um
það hvort sérstakt árlegt blað
Frjálsrar verslunar helgað konum
í at vinnulífinu væri tímaskekkja.
Það er mat blaðsins að svo sé
alls ekki. Þau rök hafa verið
færð að blaðið um áhrifamestu
kon urnar væri til að vekja athygli á þátttöku
þeirra og framtaki í viðskiptum. Ennþá telur
ritstjóri blaðsins ástæðu til að vekja athygli
á árangri þeirra sem fyrirmynd – og gefa út
blað sem hvetji konur almennt til dáða við að
stofna fyrirtæki og reka þau.
Það hefur oft komið fram að konum finnst
hlutur sinn í fjölmiðlum vera fyrir borð borinn
og eitt af markmiðum núverandi stjórnar
FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, er til
dæm is að stuðla að auknum hlut kvenna í
fjöl miðlum.
Auðvitað er blaðið ekki tímaskekkja – ekki
frekar en að sérstakt félag kvenna í atvinnu
lífinu er tímaskekkja – eða FKA-verðlaunin.
Eða þá sérrit margra erlendra viðskiptatíma
rita, eins og Fortune, um áhrifamiklar konur
og leiðtoga á meðal kvenna.
Þótt Frjáls verslun helgi konum í viðskipta
lífinu eitt blað á ári er það svo að jafnvægið á
milli kvenna og karla í blaðinu er oftast ágætt
– þótt örugglega séu fleiri karlar
í við tölum en konur ef nákvæmar
mælingar yrðu gerðar þar á.
Við vinnslu þessa blaðs varð
einnig um ræða um hvort hægt
væri að kaupa sig inn á listann.
Því er fljótsvarað: Auðvitað er
slíkt ekki hægt og hefur aldrei
verið hægt. Það er eðli málsins
samkvæmt ekki í boði og gæti
augljóslega ekki gengið – og
um það geta hundruð kvenna
vitnað sem hafa komið við sögu á
listanum undanfarin tíu ár. Til að gera listann
læsilegan og upplýsandi hafa að sjálfsögðu
verið tekin viðtöl við hluta kvennanna á
listanum eða birtar af þeim stuttar nærmyndir
– en að ætla konunum að þær kaupi sig inn á
listann er móðgun við þær.
Kynjakvótinn er ein stærsta breytingin inn
an atvinnulífsins á undanförnum árum. Í yfir
tuttugu ár hefur það komið fram í ritstjórnar
greinum mínum varðandi kynjaumræðu og
kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja að eðlilegast
sé að velja einstaklinga, manneskjur, eftir
Tíu ÞEkktustu fyrir
TuTTugu árum
Konur úr viðskiptalífinu og einkageiranum
voru eingöngu á listanum fyrir tuttugu
árum. Þess vegna var Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri ekki á honum.
Guðrún Lárusdóttir, forstjóri og eigandi
Stálskips.
Hildur Petersen, forstjóri Hans Petersen.
Rakel Olsen, stjórnarformaður Sigurðar
Ágústssonar í Stykkishólmi.
Jónína G. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
og eigandi Kristjáns Ó. Skagfjörð.
Edda Helgason, framkvæmdastjóri
verðbréfafyrirtækisins Handsals.
Gunnþórun Jónsdóttir, forstjóri Sundco
og stærsti hluthafinn í Olís.
Jenný Stefanía Jensdóttir,
framkvæmdastjóri Plastos.
Svava Johansen, kaupmaður í Sautján.
Marta Bjarnadóttir, kaupmaður í Evu,
Gallerí, Centrum og Company.
Vilborg Lofts, aðstoðarframkvæmda -
stjóri VÍB.
100 árhifamestu konurnar 2013
100 árhifamestu konurnar 2008
100 árhifamestu konurnar 2012
80 árhifamestu konurnar 2007
100 árhifamestu konurnar 2011
80 árhifamestu konurnar 2006
100 árhifamestu konurnar 2010
70 árhifamestu konurnar 2005
100 árhifamestu konurnar 2009
70 árhifamestu konurnar 2004
F
R
JÁ
LS
V
E
R
S
LU
N
1
0
0
á
h
r
ifa
m
e
s
tu
k
o
n
u
r
n
a
r
2
0
1
4
4
. tb
l. 2
0
1
4
4. tbl. 2014 - verð 1.099,- m/vsk - IssN 1017-3544
Svo allir fái sitt.
áhrifamestu
konurnar 2014
hvaða konur eru í
stjórnum stærstu
fyrirtækjanna?
100 árhifamestu konurnar
2014
Þekktustu
fyrir
t tuttuGu
áRuM
10