Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 131
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 131
Í ráðgjöfinni starfar þrjátíu
manna teymi sérfræðinga sem
allir hafa yfirgripsmikla þekk -
ingu og reynslu á sínu sviði
með breiðan bakgrunn og
menntun. Ráðgjöf Deloitte
byggir aðferða fræði sína
á alþjóðlegri aðferða fræði
Deloitte en Deloitte á alþjóða-
vísu er stærsta sérfræði fyrirtæki
heimsins á sviði ráðgjafar
og endur skoð unar. Notkun
á alþjóðlegri aðferðafræði
tryggir okkur að geta veitt
viðskiptavinum virðisaukandi
þjónustu með aðgengi að
innlendum og erlendum
sérfræð ingum auk þeirra verk -
færa sem Deloitte hefur yfir að
ráða um allan heim. Alþjóðlegt
þekkingarnet er lykillinn að
því að geta boðið íslenskum
viðskiptavinum sambærilega
þjónustu og best þekkist á
alþjóðavettvangi.“
anna Birgitta geir
finns dóttir, lög giltur
endur skoðandi,
stjórnar maður,
eigandi og útibús
stjóri deloitte í
reykjanesbæ:
„Markmið okkar hjá Deloitte
er að hjálpa viðskiptavinum að
skara fram úr og við leggjum
mikinn metnað í að sinna
þeim af natni. Mikilvægur
hluti þess er einmitt að bjóða
upp á þjónustu í heimabyggð
við skiptavina; vera á athafna -
svæðum þeirra en það fyrir -
komu lag gerir þeim kleift
að nálgast þjónustuna hratt
og vel. Vegna nálægðarinnar
þekkjum við kúnnana okkar
vel og gagnkvæmt traust
myndast. Útibúin eru átta
talsins og í þeim sameinast
mik ill metnaður og kröftugur
mannafli. Starfsemin byggist
m.a. á endurskoðun fyrirtækja,
fram kvæmd kannana, reikn -
ings skilagerð og aðstoð við
skattframtöl. Ef við þurfum
sér hæfðari aðstoð leitum við í
höfuð stöðvar Deloitte á höfuð -
borgarsvæðinu.“
Vala Valtýsdóttir,
sviðsstjóri skatta
og lögfræðisviðs og
eigandi deloitte:
Vala Valtýsdóttir, sem er
héraðs dómslögmaður, hefur
yfir gripsmikla reynslu af
skattaráðgjöf og annarri lög -
fræði ráðgjöf. Auk þess starfar
á sviðinu sérhæft starfs fólk
sem býr að verðmætri reynslu
og þekkingu af hvers konar
lögfræðistörfum sem að mestu
leyti tengjast fyrir tækjum:
„Við veitum auk skatta ráð -
gjafar m.a. þjónustu á sviði
félagaréttar en sérþekking
starfs manna sviðsins varðar
einna helst skipulag, upp -
bygg ingu og stjórnun félaga
samkvæmt hlutafélagalögum,
sem og samvinnufélaga, sam -
lagsfélaga, sameignarfélaga
og sjálfseignarstofnana, auk
annarra félaga.
Einnig önnumst við gerð
skatta legra sem og lögfræði -
legra áreiðanleika kannana og
veitum ráðgjöf varðandi kaup
og sölu fyrirtækja. Eins má
nefna að við önnumst ráðgjöf
er varðar gjaldeyrishöft og
alla almenna skjalagerð, t.d.
vegna endurskipulagningar,
skiptinga og samruna félaga.
Þá veitir sviðið þjónustu vegna
skattútreikninga, sem er einn
helsti áhættuþáttur í fyrir tækja -
rekstri í dag.“
Pálína Árnadóttir,
löggiltur endur skoð
andi, áhættu og
gæðastjóri og eigandi
deloitte:
Pálína var að taka við sem
áhættu- og gæðastjóri Deloitte
og hefur því yfirumsjón með
gæðamálum, áhættumálum og
fleiru.
„Við vitum að þarfir fyrir -
tækja eru mismunandi eftir
stærð þeirra. Við viljum veita
fyrsta flokks þjónustu til allra
okkar viðskiptavina óháð
stærð þeirra. Lítil og meðal -
stór fyrirtæki þurfa oft á tíð -
um annars konar þjónustu
en stærri fyrirtækin og því
leggjum við okkur fram um
að sérsníða þjónustu hvers og
eins eftir hans þörfum. Við
höfum nú hleypt af stokkunum
nýju sviði, viðskiptalausnum,
þar sem áherslan er á að
nýta sérhæfingu okkar við
að þjónusta einstaklinga og
lítil og meðalstór fyrirtæki. Á
sviðinu starfar fjöldi sérfræð -
inga með margra ára reynslu
og þekkingu, bæði löggiltir
endurskoðendur, sérfræð -
ingar og bókarar. Sviðið sinnir
meðal annars færslu bókhalds,
launavinnslu, afstemm ingar -
vinnu, tekur að sér átaks verk -
efni, aðstoðar við gerð árs reikn -
inga, gerð rekstrar áætlana,
skattframtöl og fleira.“
„Ráðgjöf Deloitte bygg
ir aðferða fræði sína á
alþjóðlegri aðferða fræði
Deloitte.“
„Markmið okkar hjá
Deloitte er að hjálpa
viðskiptavinum að
skara fram úr og við
leggjum mikinn metn
að í að sinna þeim af
natni.“
„Einnig önnumst við
gerð skatta legra sem og
lögfræði legra áreiðan
leika kannana og veit
um ráðgjöf varðandi
kaup og sölu fyrirtækja.
Eins má nefna að við
önnumst ráðgjöf er
varðar gjaldeyrishöft
og alla almenna skjala
gerð, t.d. vegna endur
skipulagningar.“
Sif Einarsdóttir, stjórnarmaður.
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir,
stjórnarmaður.
Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri
skatta- og lögfræðisviðs.
„Við vitum að þarfir
fyrir tækja eru mismun
andi eftir stærð þeirra.“
Pálína árnadóttir, áhættu- og
gæðastjóri.