Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 137
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 137
Heilindi og heiðarleiki í lykilhlutverki
Markmið Hagvangs:
Hagvangur leitast við að vera vel
rekið, lifandi, skemmtilegt, forvitið,
samheldið og þjónustudrifið
þekkingarfyrirtæki sem veitir
viðskiptavinum sínum fyrsta flokks
virðisaukandi þjónustu og er
vinnustaður sem afburðastarfsfólk
neitar að yfirgefa.
„Við vitum líka að
ýmis gögn um fram
leiðni og virkni starfs
fólks á Íslandi benda
til þess að hægt sé
að gera betur á þeim
vettvangi. Við ætlum
því að leggja okkar lóð
á vogarskálarnar með
markvissri og virðis
aukandi ráðgjöf og
fyrsta flokks ráðning
arþjónustu.“
Mannfagnaður: Hagvangur stækkar við sig í húsnæði.
og aðlaga okkur að nýjum
efna hagslegum veruleika. Ég
held að flest fyrirtæki sem á
annað borð lifðu þessi ósköp
af séu tilbúin til að fara að
sækja fram á ný. Þau eru
kannski ekki byrjuð, en þau
eru í startholunum. Mér finnst
eins og það sé farið að krauma
verulega undir tiltölulega
rólegu yfirborði og það þurfi
bara smáræðis herslumun til
að hjólin fari að snúast fyrir
alvöru. Pínulítinn neista sem
myndi kveikja í púðurtunnunni.
Mikið hlakka ég til!“
Það er líklega óhætt að treysta
því að þið hjá Hagvangi
verðið í startholunum þegar
allt fer af stað aftur?
„Já, svo sannarlega! Síðustu
mánuðir hafa verið gríðarlega
spennandi fyrir okkur. Við
höfum annars vegar stækkað
húsnæði okkar og gert á
því frábærlega heppnaðar
endur bætur þannig að vinnu -
aðstaða er orðin fyrsta
flokks. Hins vegar höfum
við stóreflt stjórnunar- og
mann auðsráðgjöf okkar með
ráðn ingu Hinriks Sigurðar Jó-
hannes sonar, dr. Leifs Geirs
Haf steins sonar og Sigurjóns
Þórðarsonar, sem allir eru
þrautreyndir og í fremstu röð
á sínum sviðum. Þannig að við
erum nú þegar byrjuð að sækja
fram af krafti.“
Virkjun þekkingar og
orku
Hvar munu áherslur Hagvangs
liggja á næstu árum?
„Við vitum að samkeppnis-
hæfni framtíðar innar mun að
miklu leyti snúast um að virkja
þá miklu þekkingu og orku
sem býr í okkar vel menntuðu
og hæfu þjóð. Við vitum líka
að ýmis gögn um framleiðni
og virkni starfs fólks á Íslandi
benda til þess að hægt sé að
gera betur á þeim vettvangi.
Við ætlum því að leggja okkar
lóð á vogarskálarnar með
mark vissri og virðisaukandi
ráðgjöf og fyrsta flokks
ráðningarþjónustu.
Þannig mun stjórnunar- og
mannauðsráðgjöf okkar
hjálpa fyrirtækjum og stofn -
unum að fá meira út úr
starfs fólki sínu með því að
styrkja stjórnendur í sínum
störfum, innleiða markvissa
frammistöðustjórnun, efla
liðsheild, auka framleiðni og
velferð starfsfólks með vinnu -
stofum í orkustjórnun og
mörgu fleira. Í ráðningunum
gætum við þess að þróa stöðugt
aðferða fræði okkar og þjónustu
til að standa undir því að
mæta þörfum markaðarins
á hverjum tíma. Sem dæmi
má nefna að mikilvægi per -
sónu legra eiginleika eins og
drifkrafts, frumkvæðis, aga,
grein ingarhæfni og vilja til að
tileinka sér nýjungar hefur
aukist stöðugt eftir því sem
fyrirtækjaumhverfið verður
hraðara, flóknara og kröfu -
harðara.“
Velgengnin byggist á
heilindum
Nú er Hagvangur gamalgróið
fyrirtæki, stofnað 1971 og
sem slíkt eitt allra elsta ráð
gjafarfyrirtæki landsins.
Hvernig skýrir þú þessa
velgengni?
„Ég vona að hún komi til
vegna þess að við höfum alltaf
leitast við að koma fram af
heilindum og heiðarleika, hvort
sem við eigum í samskiptum
við viðskiptavini, umsækjendur
eða samstarfsfólk. Við gefum
ráð með gagnkvæma langtíma -
hagsmuni í huga og höfum gætt
vel að því að vera fagleg og
óháð í okkar vinnu. Nái maður
að vera trúr slíkum áherslum
byggist smám saman upp gott
orðspor.
Þegar upp er staðið er traust
og trúverðugleiki markaðarins
það dýrmætasta sem nokkurt
fyrirtæki getur öðlast.“
frábær starfsmaður er
fjárfesting
Að lokum, Katrín, ef þú
mætt ir gauka einum góðum
fróðleiksmola sem tengist
ráðningum að íslenskum
stjórnendum, hver væri hann?
„Munið að ákvörðunin um
að hver nýr starfsmaður sem
vinnur hjá fyrirtækinu í nokkur
ár felur í sér fjárfestingu upp
á 30-100 milljónir þegar allt er
talið! Gott og faglegt valferli
hjá fyrsta flokks ráðningar-
þjón ustu ræður mestu um það
hversu mikla ávöxtun þú færð
á þessa fjárfestingu, því mun -
urinn á framleiðni frábærs
starfs manns og starfsmanns
sem rétt svo „skilar sínu“ er
met inn á bilinu 40-100%.
Það munar um minna!“
Inga Steinunn Arnardóttir, ráðgjafi
Hagvangi og Dagmar Viðarsdóttir,
mannauðsstjóri ÍAV.
Þórður H. Hilmarsson, forstöðu
maður Íslandsstofu og Viðar Þorkels
son, forstjóri Valitors.
Birna Ósk Einarsdóttir framkvæmda
stjóri hjá Símanum og Jensína
Böðvarsdóttir framkvæmdastjóri hjá
Landsbankanum.
Elín Hjálmsdóttir starfsmannastjóri
Eimskips og Ólafur Hand forstöðu
maður hjá Eimskip.
Leifur Geir Hafsteinsson, aðstoðar
framkvæmdastjóri Hagvangs og
Davíð O. Arnar, yfirlæknir LSP
Erla María Árnadóttir og Helga
Björnsdóttir, starfsmannasviði
Eimskips.