Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 91
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 91
J
á er ungt fyrirtæki sem byggist á yfir hundr-
að ára gömlum grunni. Félagið hefur frá
stofnun lagt mikla áherslu á nýsköpun
og á þessu ári var það tilnefnt til íslensku
þekk ingarverðlaunanna þar sem yfirskriftin var
„nýsköpun í rótgrónum fyrirtækjum“ og erum við
ákaflega stolt af því. Félaginu hefur verið mörkuð
skýr stefna, síðasta rekstrarár var það besta í
sögu þess og starfsmenn búa yfir nauðsynlegri
þekkingu, metnaði og dugnaði til að halda áfram
að skapa og setja á markað nýjar lausnir sem
auðvelda Íslendingum að nálgast upplýsingar til
að eiga samskipti og viðskipti. Já.is-appið, sem
kom út á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, er besta
sönnun þess.“
Sigríður Margrét segist vera nokkuð bjartsýn
á þessu ári. „Spá gefur til kynna að hagvöxtur á
Íslandi verði meiri en í okkar helstu viðskipta-
löndum, verðbólga hefur dregist saman, atvinnu -
vegafjárfestingar á þessu ári munu aukast,
einka neysla virðist vera að taka við sér og eigin -
fjárhlutfall heimila og fyrirtækja hefur batnað þar
sem skuldir hafa lækkað.“
Hún segist vera bjartsýnni á uppgang atvinnu -
lífsins en á sama tíma í fyrra.
Hvert finnst Sigríði Margréti vera brýnasta
verkefni ríkisstjórnarinnar? „Samkeppnishæfni
Íslands í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi á að
vera forgangsmál. Stjórnvöld eiga að stuðla að
stöðugleika, lækka skatta og tryggja einfalt og
skilvirkt laga- og regluverk fyrirtækja. Þá þarf
að vinna af krafti að afnámi gjaldeyrishafta og
framtíðarskipan peningamála en atvinnulífið
kallar hárri röddu eftir úrlausn þess verkefnis.“
Þegar hún er spurð hversu auðvelt sé að stofna
fyrirtæki á Íslandi og komast inn á markaði segir
hún að það fari eftir þeim mörkuðum sem um
ræðir og hæfni og fjárfestingagetu þeirra sem láta
á slíkt reyna.
Sigríður Margrét segir að þrenn algengustu
mistök stjórnenda í starfi séu: „Kynbundinn
launamunur, kynbundinn launamunur og
kynbundinn launamunur. Stjórnendur eiga að
taka ábyrgð á óútskýrðum launamun kynjanna
og forystu um að leiðrétta 20% kynbundinn
launamun á Íslandi.“
Hvert er besta veganestið sem hún hefur fengið
í stjórnun? „Traustir viðskiptafélagar.“
sigríður margrét er stjórnarformaður vinnu
deilu sjóðs sa og stjórnarmaður í skólan efnd
verslunarskóla íslands.
bjartsýn á uppgang atvinnulífsins
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já
2014
áhrifamestu
konurnar
100
á til framtíðar. „Það er brýnt
að þjóðarsátt náist á vinnu -
markaði en eins og staðan er
í dag er það því miður ekki
auðsótt mál. Auk þess er það
brýnt að finna lausnir fyrir
unga fólkið í húsnæðismálum
og að auka jöfnuð í
samfélaginu.“
Ólafía segir að ef aðgangur
er greiður að fjármagni telji
hún ekkert því til fyrirstöðu
að setja á laggirnar fyrirtæki.
„Við Íslendingar búum svo
sannarlega yfir því hugviti
og dugnaði sem þarf til eins
og dæmin sanna. Það mikil -
vægasta er að sjálfsögðu góður
undirbúningur, viðskipta áætl un
og raunhæft skipulag áður en
lagt er að stað.“
Hvað varðar þrjú algengustu
mistök stjórnenda í starfi segir
Ólafía að fyrst megi nefna
þegar stjórnendur hlusta ekki
á starfsfólkið. „Í öðru lagi þeg -
ar stjórnendur sýna hörku og
í þriðja lagi þegar þeir sýna
hlutdrægni. Þegar þetta þrennt
kemur saman hefur það veru -
leg áhrif á starfsánægju og
frammistöðu starfsmanna sem
aftur dregur úr möguleikum
fyrirtækisins á að ná, og halda,
samkeppnisforskoti sem hlýtur
ávallt að vera markmiðið.“
Hvað með besta veganesti
sem Ólafía hefur fengið í
stjórnun? „Hvatning frá for -
stjóra og vilji til að byggja
upp öfluga liðsheild, laða til
starfa hæfileikaríka starfs -
menn, halda í þá, þjálfa þá og
þróa og tryggja eðlilegan vöxt
og þroska þeirra. Auk þess
vil ég nefna menntun á sviði
stefnumiðaðrar stjórnunar sem
er góður grundvöllur að allri
mannauðsstjórnun.“
ólafía er í framkvæmda
stjórn virk starfsendurhæf
ingarsjóðs, í stjórn starfs,
vinnumiðlunar og ráðgjafar
ehf., í framkvæmdanefnd
um skipulag vegna 100
ára afmælis kosningaréttar
kvenna og hún er
varaformaður stjórnar
landssambands íslenskra
verslunarmanna.