Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 46
46 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
tækifæri í að fjárfesta í nýsköpun
Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins:
V
ið náðum að selja okkur út úr
fyrirtækinu Primex, við seldum
hlut okkar til stofnenda, fyrir -
tækinu gengur vel og við náð -
um góðum samningi við þá útgöngu. Þá
náðum við að undirbúa stofnun nýs sjóðs
sem mun bera nafnið Silfra. Jafnframt
erum við í viðræðum við nokkra erlenda
fagfjárfestingarsjóði sem ætla að koma inn
í þrjú af fyrirtækjum í eigu NSA. Það fylgir
því mikil vinna að fá svona meðfjárfesta
en mjög gott fyrir okkur hjá NSA þar
sem þeir koma með aðra þekkingu og
dýpri vasa en við eigum að venjast hér
heima,“ segir Helga Valfells þegar hún er
spurð hvaða árangur hún er ánægðust með
hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins það sem
af er árinu.
Hún segir að sér finnist atvinnulífið vera
komið upp úr hjólförunum. „Ég horfi á
þetta frá þeim hluta atvinnulífsins sem
tengist nýsköpun. Það er mikið búið að
vera að gerast í grasrótinni í nýsköpunar -
geiranum í raun og veru frá hruni og
mörg um af þeim fyrirtækjum sem voru t.d.
stofnuð 2009 og 2010 er farið að ganga vel.
Það sem er kannski mikilvægast fyrir okkur
er að nú eru lífeyrissjóðir og fleiri stórir
fagfjárfestar farnir að horfa á að það felist
tækifæri í að fjárfesta í nýsköpun.“
Helga segist bjartsýnni á uppgang
atvinnu lífsins en á sama tíma í fyrra. „Það
er vegna þess að ég held að eitthvað fari
að gerast varðandi fjárfestingu í nýsköpun.
Það eru líka að koma fleiri fyrirtæki á
markað.“
Þegar hún er spurð hvert henni finnist
vera brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar
segir hún að það sé mikilvægi þess að losna
við gjaldeyrishöftin. „Það þarf að gera
það á faglegan en tiltölulega hraðvirkan
hátt. Ég tel að þetta sé brýnasta verkefnið
vegna þess að höftin bitna á atvinnulífinu
á öllum stigum. Ég held að þetta myndi
hjálpa útflutningsfyrirtækjum okkar mikið,
sérstaklega fyrirtækjum sem flytja út
þekkingu og þjónustu.“
Helga segir að það sé auðvelt að stofna
fyrirtæki á Íslandi. „Ég vinn aðallega í
tengslum við fyrirtæki sem eru að fara
á útflutningsmarkaði og þá er það oft
erfiðara fyrir íslensk fyrirtæki að komast
inn á erlenda markaði. Fjármögnun er
flóknari hér og líka það að það er ákveðin
landfræðileg fjarlægð frá mörkuðum. Þetta
er hins vegar alveg gerlegt og ég held líka
að fyrirtæki frá Íslandi verði oft sterkari
af því að þau þurfa að hugsa í alþjóðlegu
samhengi frá fyrsta degi.“
Þegar Helga er spurð hver hún telji
vera þrenn algengustu mistök stjórnenda
í starfi segir hún: „Að þeir haldi að þeir
geti allt, að þora ekki að ráða fólk sem er
öðruvísi en þeir sjálfir og með frábrugðna
þekkingu og að treysta ekki samstarfsfólki
sínu til þess að sýna frumkvæði. Það eru
mikil mistök að halda að upplýsingar gefi
völd. Maður hefur séð stjórnendur sem
vilja ekki deila upplýsingum með sam -
starfsfólki sínu. Ef fólk hefur ekki allar
upplýsingar getur það ekki sýnt það frum -
kvæði sem þarf til að leysa flókin verkefni.“
Hvað segir hún um besta veganestið sem
hún hefur fengið í stjórnun? „Ég vann einu
sinni fyrir stjórnanda sem treysti starfsfólki
sínu mjög vel og fólk fékk mikil tækifæri
til þess að sýna frumkvæði og ég tel að það
hafi verið mjög gott. Ég er nýbúin að lesa
bók sem heitir The hard thing about hard
things eftir Ben Horowitz. Það er oft erfitt
að reka nýsköpunarfyrirtæki og þarf oft
að taka erfiðar ákvarðanir og þessi bók
er mjög góð varðandi það þegar taka á
erfiðar ákvarðanir og hvernig á að gera það
skynsamlega. Svo held ég að góð stjórnun
snúist um að vera góður í að lesa fólk og
laða það besta fram í hverjum og einum
svo að allir séu að takast á við verkefni sem
þeir eru góðir í og hafa gaman af.“
helga er stjórnarformaður frumtaks
fjár festingarsjóðs og í stjórn infomentor,
azazo, klak innovit, andrea maack Per
fums, transmit og íslandsbanka. Þá er
hún varamaður í stjórn framtakssjóðs
íslands.
Elín Björg Jónsdóttir,
formaður BSRB.
Helga Valfells, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
2014
áhrifamestu
konurnar
100