Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 119
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 119
innanlands og erlendis. Vörur
okkar höfða til fjölbreytts hóps
fólks. Við framleiðum vörur
sem allar hafa einhverja sögu
að segja. Við erum með frekar
breitt úrval; allt frá stórum og
dýrum teppum yfir í húfur og
trefla.“
Hve margir starfa fyrir fyrirtækið
núna?
„Við erum þrjár sem erum
hönnuðir og eigendur Víkur
Prjóns dóttur að auki erum með
einn starfs mann.“
Hver er reynsla ykkar af að
koma sprotafyrirtæki á legg?
„Reynslan er mjög áhugaverð
og okkur finnst margt sem mæt
ti fara betur, t.d. varðandi skatta
og gjöld á lítil sprotafyrirtæki.
Það eru sömu gjöld fyrir okkur,
lítið sprotafyrirtæki í eins konar
frumkvöðlarekstri sem framleiðir
úr innlendu hráefni hérlendis,
og stærri öflugri fyrirtæki sem
eru t.d. í innflutningi. Það er
sérstakt að við þurfum að
borga 25,5% vsk. á okkar
hönnunarvörur en vinir okkar
í tón listarbransan um, sem eru
að búa til vörur alveg eins og
við, bara 7% á sínar vörur. Það
skekkir myndina mikið, gerir
það að verkum að varan okkar
kostar meira en ella.
Okkur finnst líka vanta aðstoð
við tæknileg mál – varðandi
framleiðslu og útflutning, tolla,
skatta o.s.frv. Það að Ísland er
ekki í ESB gerir að verkum að
það er erfitt að hefja framleiðslu
í Evrópu og kaupa hráefni frá
einum framleiðanda innan ESB
og framleiða í öðru ESBlandi.
Þessi flækja er mjög vand -
ræða leg og gerir að verkum
að það er erfitt að fram leiða úr
hágæðahráefni hjá viðurkennd
um og góðum fram leiðendum.
Þeir eru flestir í ESB-löndunum.
Einnig er það flókið varðandi
tolla fyrir viðskiptavini okkar
að kaupa af okkur, en þeir eru
einnig flestir frá ESB-löndum.
Það mætti vera meiri metn
aður hjá yfirvöldum í að þróa
og efla ullariðnaðinn með
þróunarvinnu. Það væri hægt
að ná miklu lengra með íslen
skan ullariðnað í dag og áhugi
erlendis fyrir vörum úr sjálfbæ
ru og náttúrulegu hráefni fer
vaxandi. Við sjáum mörg ónýtt
tækifæri og vonum innilega að
augu fari að opnast fyrir þessu
mikilvæga og merkilega hráefni.
Við höfum núna fengið styrk
frá Tækniþróunuarsjóði og
Hönnunarsjóði til markaðs
setningar, þróunar vinnu og
í samstarfsverkefni. Þessir
styrkir breyta öllu fyrir okkur
og stuðningurinn skiptir okkur
gríðarlega miklu máli. Án hans
væri nær ómögulegt að ráðast
í þau verkefni sem við erum að
vinna að þessi misserin, sem
eru öll með það að markmiði
að stækka og efla Vík Prjóns
dóttur.“
Hver eru framtíðaráformin?
„Við höldum áfram að þróa
og hanna nýja vörur úr ull. Við
erum að skoða möguleika á
framleiðslu annars staðar og þá
að vinna með erlenda ull. Við
erum líka að vinna að spenn andi
samstarfsverkefnum þar sem Vík
Prjónsdóttir ferðast inn á ný og
áður óþekkt svæði, sem er virki
lega spennandi fyrir okkur.“
„Það væri hægt að ná miklu lengra með íslensk an
ullariðnað í dag.“
Útrás á erfiðum tímum
Skema er fyrirtæki sem vakið hefur alþjóðlega athygli og stefnir á að verða alþjóðlegt. Stofnandinn,
Rakel Sölvadóttir, er þegar farin til Bandaríkjanna að vinna að uppbyggingu þar en Þórunn Jónsdóttir er
framkvæmdastjórinn heima. Hugmyndin er að gera nám í forritun aðgengilegt á grunnskólastigi.
Hve langt er fyrirtækið komið á
þróunarbrautinni?
„ReKode, sem er vörumerkið
sem við notum á alþjóðlegum
markaði, er komið á það stig
að við erum tilbúin til að opna
fyrsta tæknisetrið í Bandaríkj
un um. Við höfum sérhannað
setrin, í samstarfi við HAF
Design á Íslandi, með aðferða
fræði okkar að leiðarljósi, en
hún byggist í grófum dráttum
á jákvæðni, jákvæðri styrkingu
og lærdóm í gegnum leik og
jafningjakennslu.
Við erum í fjármögnunarfasa
núna sem við stefnum á að
ljúka á næstu vikum og mun
það gera okkur kleift að hefja
uppbyggingu á fyrstu tveimur
til þremur setrunum í Washing
tonríki í Bandaríkjunum, nánar
tiltekið í Redmond og Seattle.
Við höfum verið að prófa okkur
áfram í markaðssetningu og
eigum enn eftir að finna bestu
mögulegu samsetningu miðla
og markaðssamskipta, en við
getum þó sagt með fullri vissu
að umtal og facebookauglýs
ingar eru ekki nóg til að byggja
upp vörumerkjavitund, öfugt
við reynslu okkar hér á landi
þar sem tvö viðtöl í sjónvarpi
og nokkrar facebookauglýsing
ar duga oft til að ná upp um
ræðum og vitund.“
Flutningur til Bandaríkjanna
hófst í fyrra – hvernig hefur
reksturinn gengið?
„Rekstur móðurfyrirtækisins
í Bandaríkjunum hefur farið
hægar af stað en við vildum
vegna skorts á fjármagni auk
þess sem gjaldeyrishöftin hafa
tafið verulega fyrir okkur. En við
erum í fjármögnunarfasa núna
og sjáum fram á að opna fyrsta
setrið í Redmond í haust og
vera byrjuð að selja sérleyfis
samninga (e. franchise) fyrir
lok næsta árs.
Á Íslandi hefur gengið
vonum framar og reksturinn
vex stöðugt. Við höfum hlotið
nokkra styrki, s.s. frá Tækni
þróunar sjóði og Átaki til
atvinnu sköpunar, sem hafa
reynst okkur vel og gert okkur
kleift að vaxa hraðar en ella. Á
þessu ári er markmiðið að hlut
fall sölutekna verði hærra en
hlutfall styrkja en þannig náum
við hægt og rólega að byggja
upp sjálfbært félag án þess
að þurfa að taka inn utanað
komandi fjármagn í íslenska
reksturinn.
Þá er áætlað að íslenska
félagið muni sjá um vöxt
reKode/ Skema í Evrópu hvað
varðar námskeið og þjálfun
evrópskra kennara sem og
gerð sérleyfissamninga og
þjálfun í Evrópu. Við erum búin
að byggja upp frábært teymi
hér á landi og tel ég það vera
undirstöðu þessa öra vaxtar.
Við erum með sérfræðinga
á sviði kennslu, sálfræði,
tölvunarfræði, verkfræði,
þroska þjálfunar, markaðssetn
ingar, fyrirtækjasamskipta og
rekstrar og höfum því alla burði
til að halda áfram að vaxa,
hvort sem er hér á landi eða til
Evrópu.“
Þórunn Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Skema