Frjáls verslun - 01.04.2014, Blaðsíða 12
12 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
fréttir
Forseti Íslands veitti nýlega verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar við hátíð lega athöfn í Sólinni í Háskóla
num í Reykja vík. Verðlaunin í ár féllu í skaut
Sævars Helga Bragasonar fyrir störf á sviði
tækni og vísinda. Sævar Helgi hefur unnið
óeigin gjarnt starf í þágu vísinda á Íslandi.
Helgi er formaður Stjörnuskoðunarfélags
Seltjarnarness og ritstjóri Stjörnufræðivefs
ins. Hann er framúrskarandi ungur vísinda
maður sem hefur í mörg ár kveikt áhuga
barna, ungmenna og fullorðinna á alheim
inum og stjörnuskoðun.
JCI hreyfingin á Íslandi veitir árlega
hvatningarverðlaunin Framúrskarandi ungir
Íslendingar. Árlega er kallað eftir tilnefning
um sem dómnefnd tekur við og velur topp
tíu – hóp og sigurvegara.
Þeir sem skipuðu topp tíu – hópinn í
ár ásamt Sævari voru:
• Alexandra Chernyshova, óperusöng
kona og tónskáld.
• Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttakona.
• Anna Pála Sverrisdóttir, lögfræðingur
og mannréttindafrömuður.
• Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og líffræðingur og
framkvæmdastjóri Landverndar.
• Hans Tómas Björnsson, barnalæknir
og aðstoðarprófessor við John Hopkins
háskóla í Bandaríkjunum.
• Haraldur Freyr Gíslason, leikskóla
kennari og tónlistamaður.
• María Rut Kristinsdóttir, fráfarandi for
maður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
• Sigríður María Egilsdóttir, ræðumaður
og leikkona.
• Þorsteinn Baldur Friðriksson, forstjóri
Plain Vanilla Games.
Efri röð frá vinstri: Harpa Grétarsdóttir verkefnisstjóri, Sigurður Sigurðsson, landsforseti
JCI á Íslandi, María Rut Kristinsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Sigríður María
Egilsdóttir, Anna Pála Sverrisdóttir. Neðri röð frá vinstri: Aníta Hinkriksdóttir, Dóttir Þor
steins Baldurs Friðrikssonar, Alexandra Chernyshova, móðir Hans Tómasar Björnsson
ar, Haraldur Freyr Gíslason, verðlaunahafinn Sævar Helgi Bragason og Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands.
Hjá bókaútgáfunni Intersentia í Cambridge á Eng landi er
komin út bókin „Gend er Quotas for Company Boards“ í rit
stjórn Marcs De Voes og Philippes Culliford. Bókin fjallar um
kynja kvóta í stjórnum fyrirtækja og reynslu margra ríkja Evrópu
sem hafa sett lög og reglur þessa efnis.
Efni hennar er upplýs andi fyrir alla sem láta sig málið varða
og höfð ar jafnt til fylgjenda og andstæð inga slíkrar lagasetn
ingar. Hún er gott framlag til umræðu um stefnumótun og
stjórnhætti fyrirtækja. Innan Evrópusambandsins hafa verið
háværar raddir um að setja lög í þessa veru, eins og mörg lönd
hafa gert, þar á meðal Ísland.
Sérstakur kafli er um Ísland í bókinni og eru höf undar hans
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Þor gerður Einarsdóttir og Jón
Snorri Snorrason.
sérstakur kafli um ísland í
enskri Bók um kynjakvóta
Höfundar kaflans um
Ísland eru þau Guðbjörg
Linda Rafnsdóttir, Þorgerður
Einarsdóttir og Jón Snorri
Snorrason.
framúrskarandi ungir ÍslEndingar