Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2014, Side 171

Frjáls verslun - 01.04.2014, Side 171
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 171 Erfðafræði 101 Til að skilja betur um hvað er að ræða er ágætt að rifja aðeins upp erfðafræðina. Líkamar okkar eru settir saman úr milljörðum frumna. Í hverri frumu eru 46 litningar og á þeim eru þúsundir gena sem stjórna störfum líkam­ ans. Litningarnir eru gerðir úr ákveðnu erfðaefni sem kallast DNA (á ensku: deoxy­ ribonucleic acid). Gen eru leiðbeiningar eða fyrirmæli um vöxt og starfsemi líka­ mans. Þau eru ábyrg fyrir ýmsum einkennum okkar svo sem augnlit, blóðflokki og hæð. Við erfum eitt sett af 23 litningum frá móður og eitt sett af 23 litningum frá föður. Þannig höfum við 46 litninga, tvö sett af 23 litningum eða 23 pör. Við erf um eitt eintak af flestum genum frá foreldr­ um okkar, á litningum sem við fengum frá hvoru fyrir sig. Þess vegna erum við lík þeim báðum. 1996. Ánægjulegt er að geta þáttar íslenskra vísindamanna en vinna þeirra skipti talsverðu máli við leitina. Um það fyrra hefur verið gerð kvikmynd, Decoding Annie Parker, sem frumsýnd var á vormánuðum 2014. Hún segir frá Annie sem er úr fjölskyldu þar sem brjóstakrabbamein er algengt. Annie er sannfærð um að brjóstakrabbameinið sé af arfgengum orsökum og um svipað leyti er Mary­Claire King að leita að geni sem mögulega geti skýrt fjölda brjóstakrabba­ meinstilvika í sumum fjölskyldum og finnur það. Myndin lýsir vel líðan Annie og þeim tilfinningum sem fylgja því að telja „eitthvað í fjölskyldunni“ auka áhættu á sjúkdómi. Stökkbreytingar í báðum BRCA­krabbameinsgenunum eru fjölmargar og í flestum lönd- um eru til landnemabreytingar (á ensku founder mutation). Í flestum löndum eru stökkbreyt­ ingar í BRCA1 algengari en í BRCA2. Það á ekki við á Íslandi þar sem finnst ein stökkbreyting í BRCA1 sem er afar sjaldgæf og önnur í BRCA2­geni sem talið er að 0,6­1% þjóðarinnar beri. Henni fylgir fyrst og fremst krabbamein í brjóstum en einnig í sumum fjölskyldum krabba mein í eggjastokkum, blöðru hálskirtli og í sjaldgæfum tilvikum fleiri stöðum. erfðarannsókn eða ekki? Ísland er lítið og hefur að mörgu leyti sérstöðu sem felst m.a. í afar nákvæmri krabba meinsskrá sem nær til alls landsins, ættfræðigögnum sem ná langt aftur og eru áreiðanlegar og góðu aðgengi að heilbrigðisupp­ lýsingum. Þegar ákveðið er hvort gera eigi erf ð ar annsókn vegna mögulegs arfgengis krabba­ meins eru ákveðin skilmerki notuð. Meðal þeirra eru hvort fleiri en ein kona í fjölskyldunni hafi greinst með brjóstakrab­ bamein yngri en fimmtíu ára, hvort einhver hafi greinst með krabbamein í báðum brjóstum eða hvort eggjastokkakrabbam­ ein fyrirfinnst í fjölskyldunni. Hafi karlmaður í fjölskyldu greinst með brjóstakrabbamein er það sterk ábending fyrir BRCA­ rannsókn. Það er þó mikilvægt að hafa í huga að BRCA­stökk­ breyting getur greinst í fjölsky­ ldum þar sem ofangreind skilmerki eru ekki fyrir hendi. Á LSH er erfðaráðgjöf þar sem hægt er að fá frekari upplýsing­ ar og aðstoð ef grunur er um að sjúkdómsvaldandi stökkbreyting fyrirfinnist í fjölskyldunni. Miklar skipulagsbreytingar hafa átt sér stað á Landspítala undan­ farin ár til að bæta þjónustu fyrir BRCA­arfbera og aðra þá sem teljast í hááhættu á að fá brjóstakrabbamein á ævinni. aðgerð í beinni Það er ekki á hverjum degi sem ráðstefnugestir fá að sjá tvær skurðaðgerðir í beinni útsend­ ingu, varpað frá Landspítala yfir í Hörpu, en það gerðist á noræn­ ni ráðstefnu brjóstaskurðlækna sem haldin var í Hörpu 8. og 9. maí síðastliðinn. Yfirskrift ráð- stefnunnar var Risk Reducing Strategies, eða áhættu minnkandi meðferðir hjá þeim sem eru í aukinni hættu á að fá brjósta­ eða eggjastokkakrabbamein. Að sjálfsögðu var aukin áhætta veg­ na BRCA­stökkbreytinga í brenni­ depli. Kristján Skúli Ásgeirsson skurðlæknir, sem gerði aðgerðir­ nar, lýsti þeim jafnharð an, spjall­ aði við ráðstefnugesti og þáði ráð og uppástungur frá þeim. Annað sem gerði ráðstefnuna eftirminnilega var að tekin höfðu verið viðtöl við nokkrar konur sem gengið höfðu í gegnum áhættu mat og tekið ákvörðun um brjóstnám. Sumar höfðu þegar fengið brjóstakrabba­ mein, aðrar ekki. Þær ræddu kosti og galla við aðgerðirnar, ferlið að ákvörðunartökunni og líðan sína og hugsanir. Það er vægt til orða tekið að segja að við tölin hafi verið áhrifamikil. leiðir til áhættuminnk­ unar Leiðir til að minnka áhættu á brjóstakrabbameini voru um ­ ræðu efni bæði íslenskra og erlendra fyrirlesara. Laufey Tryggva dóttir, framkvæmdastjóri Leitarstöðvarinnar, hóf umræðu­ na með því að ræða lífsstíl og umhverfisþætti, svo tók Anne Irene Hagan frá Noregi við og sagði frá því hvernig BRCA­arf­ berum sem ekki fara í aðgerð farnast og Lovise Mæhle, sem líka er frá Noregi, kynnti segulómskoðun og aukið eftirlit sem mótvægi við aðgerð. Aftur á móti sagði Steven Narod frá Tor­ onto frá niðurstöðum fjölmargra rannsókna sinna þar sem hann lýsti því að hann teldi áhættu­ minnkandi aðgerðir vera þá meðferð sem hefði hvað mest áhrif á að bæta horfur arfbera, þegar til lengri tíma væri litið. uppbygging og áhrif brottnáms Flestar konur sem fara í brjóst­ nám í fyrirbyggjandi eða áhættu minnkandi skyni fara sam tímis í brjóstauppbyggingu og á ráðstefnunni voru ræddar ýmsar nýjar leiðir til að bæta árangurinn, bæði til skemmri og lengri tíma. Líkamleg áhrif eru ekki einu áhrif brottnáms heldur þarf að gæta að sálræn­ um áhrif um líka og ekki síður samlífi eftir það. Um það ræddi Kerstin Sandelin frá Svíþjóð en víst er að betur þarf að skoða þessi mál. Áhættuminnkandi aðgerðum hef ur fjölgað mjög að undan förnu, bæði brottnámi eggjastokka og brjósta. Ákvörðun um svo stóra aðgerð er afar persónuleg og þarf að taka að vel hugsuðu máli eftir góða ráðgjöf. BRCA-genin eru tvö, BRCA1 og BRCA2. Margar stökkbreyt- ingar eru í báðum genum – en á íslandi er stökkbreyting í BRCA2 algengust. Sú breyting tengist einkum aukinni áhættu á brjóstakrabbameini og í ákveðnum fjölskyldum áhættu á krabbameini í eggjastokkum og blöðruhálskirtli. Angelina Jolie er með stökkbreytingu í BRCA1-geni og er sú stökk- breyting tengd mikilli áhættu á brjóstakrabbameini og eggja- stokkakrabbameini. Frá norænni ráðstefnu brjóstaskurðlækna sem haldin var í Hörpu 8. og 9. maí síðastliðinn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.