Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Qupperneq 72

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Qupperneq 72
XVI VISINDARAÐSTEFNA H I FYLGIRIT 73 og krufningarskýrslum. Jákvæðar niðurstöður mænuvökvaræktana sýklafræðideildar Landspítalans frá Reykjavík og Akureyri á tímabilinu 1975 til 2010 voru skráðar. Niðurstöður: Alls fundust 140 tilfelli frá 1995 til 2010. Af þeim voru 58% yngri en fimm ára. Flest börn greindust á fyrsta ári (18), eins árs (18) og tveggja ára (19). Algengustu bakteríur voru N. meningitidis (90), S. pneumoniae (25) og S. agalactiae (8). Helstu einkenni voru hiti, uppköst, hnakkastífleiki og útbrot eða húðblæðingar. H. influenzae hjúpgerð b var algeng orsök fyrir bólusetningu 1989 en hvarf nánast eftir hana. Tilfellum af meningókokka heilahimnubólgu fækkaði marktækt (p = 0,001) eftir að bólusetning gegn hjúpgerð C hófst 2002. Nýgengi sýking- arinnar (tilfelli/100.000 börn/ár) lækkaði úr 26 árið 1975 niður í eitt árið 2010. Fjöldi bama með heilahimnubólgu 1975-2010 var 477, 21 (4,4%) barn lést. Alls létust sjö (5%) börn úr heilahimnubólgu frá 1995-2010. Ályktanir: Tilfellum af heilahimnubólgu fækkaði marktækt síðustu ár. Niðurstöðumar gefa til kynna frábæran árangur af bólusetningu á böm- um gegn H. influenzae hjúpgerð b og N. meningitidis hjúpgerð C. Vonir standa til að bólusetningar gegn S. pneumoniae sem hófust 2011 muni draga verulega úr alvarlegum pneumókokkasýkingum hjá börnum. V 11 Sótthreinsun og merking máta á íslandi Linda Mjöll Sindradóttir, Snædís Sveinsdóttir, Inga B. Árnadóttir Tannlæknadeild HÍ Hnda_sindradotticQhotmail.com Inngangur: Megintilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á mikil- vægi sótthreinsunar og merkingum á mátum til að koma í veg fyrir að örverur og bakteríur geti borist á milli tannlækna og tannsmíðastofa. Leitað var svara við rannsóknarspumingunni: Hvert er mikilvægi sótt- hreinsunar? Hvernig er staðið að sótthreinsun og merkingu máta hér á landi? Hefur kyn eða aldur tannlækna og tannsmiða áhrif á hversu vel er staðið að sótthreinsun máta? Efniviður og aðferðir: Við rannsóknina var notuð megindleg að- ferðarfræði. Rannsóknarsniðið var fyrirfram ákveðið og var gagna aflað með spumingalista til þátttakenda. Þátttakendur í rannsókninni voru starfandi tannlæknar í Tannlæknafélagi íslands og tannsmiðir í Tannsmiðafélagi fslands. Svörin vom borin saman með lýsandi tölfræði. Skoðaður var munur á milli kyns og aldurs og algengi sótthreinsunar auk þess sem niðurstöður voru bornar saman við sambærilegar erlendar rannsóknir. Niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að sótthreinsun máta er ábótavant og að tæpur helmingur tannlækna sótthreinsar aldrei mát sín né merkir að mát hafi verið sótthreinsuð. Kvenkyns tannsmiðir og kvenkyns tannlæknar standa betur að sótthreinsun en karlkyns tann- læknar. Karlkyns tannsmiðir standa sig síst. Elsti aldursflokkurinn 65 ára og eldri stendur best að sótthreinsun hjá tannsmiðum en síst hjá tannlæknum en þar er aldursflokkur 45-55 sem sótthreinsar oftast. Ályktanir: Það má álykta að sótthreinsun og merkingu máta sé ábóta- vant hér á landi. Hugsanlega mætti, með betri leiðbeiningum, meiri fræðslu og sköpun verkferla varðandi sótthreinsun, auka skilning á mikilvægi þess að sótthreinsa mát og skila þannig auknu öryggi til tann- heilsuteymisins. V12 Flokkun mátefna í heilgómagerð Rebekka Líf Karlsdóttir, Svend Richter Tannlæknadeild HÍ rebekkalif_@hotmail.com Inngangur: Megintilgangur rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um þau mátefni sem í dag eru notuð til máttöku í heilgómagerð og þau sem voru í notkun hér áður fyrr. Efni sem tilvalin eru til upphafs- og lokamáttöku var gefinn sérstakur gaumur. Einnig var rýnt vel í ferli sótthreinsunar og kannað hvort að sótthreinsun hefði marktæk áhrif á stöðugleika og gæði mátefna. Leitað var svara við tveimur rann- sóknarspurningum: Hvaða mátefni er mest notað til lokamáttöku við heilgómagerð meðal tannlækna hérlendis? Hefur sótthreinsun marktæk áhrif á stöðugleika (dimensional stability) mátefna? Efniviður og aðferðir: Við rannsóknina var notuð megindleg að- ferðafræði. Könnun var send til þátttakenda með tölvupósti til félags- manna í Tannsmiða- og Tannlæknafélagi fslands. Þátttakendur voru beðnir um að svara könnun sem samanstóð af spumingum tengdum verklagi og hagnýtri þekkingu þeirra. Rannsóknarvinnan fólst einnig í lestri viðurkenndra rannsóknargreina sem birtar hafa verið í tímaritum, veftímaritum og bókum sem varða mátefni í tannlækningum. Niðurstöður: Helstu niðurstöður könnunar sýna fram á að ekki virðist vera mikill munur á mátefnavali tannlækna til lokamáttöku í heil- gómagerð. Allir kjósa þeir að nota einhverskonar gúmmímátefni og kýs meirihlutinn að taka lokamát í heilgómagerð með viðbótar silíkoni. Rannsóknir sýna fram á að dýfing máta í sótthreinsandi lausn sé líklegri til árangurs þegar útrýma skal bakteríum og hafi ekki áhrif á nákvæmni, sé farið að tímatilmælum. Ályktanir: Af niðurstöðum könnunar má álykta að meirihluti tann- lækna hérlendis kýs að nota gúmmímátefni til lokamáttöku í heilgóma- gerð vegna betri eiginleika þeirra fram yfir önnur mátefni. V 13 Hugsanlegt arfgengni tannskemmda og glerungseyðingar Stefán Hrafn Jónsson1, Bjami Halldórsson2, W. Peter Holbrook3 'Félags- og mannvísindadeild HÍ, 2raunvísinda og verkfræðideild HR, 'tannlæknadeild HÍ phoi@hi.is Inngangur: Árið 2005 fór fram faraldfræðileg rannsókn á tannskemmd- um 6,12 og 15 ára íslenskra barna sem byggði á klasaúrtaki. Stuðst var við ICDAS greiningaraðferða við að meta tannskemmdir barnanna. Einnig var lagt mat á umfang glerungseyðingar 15 ára barnanna. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka mögulegt arfgengni í hópi þeirra þátttakenda sem tóku þátt í rannsókninni. Efniviður og aðferðir: Islenskur ættfræðigrunnur var notaður til að kanna mögulega arfgengni. Stuðst var við tengsl einstaklinga í allt að þrjá ættliði. Bæði 6 og 12 ára börnum var skipt í tvennt, annars vegar böm í aldurshóp með engar tannskemmdir og hins vegar með börn eina tannskemmd eða fleiri. Fimmtán ára bömum var skipt í tvennt annars vegar börn með engar tannskemmdir og hins vegar börn með sjö eða fleiri tannskemmdir. Elsta hópnum var auk þess skipt í tvennt eftir því hvort glerungseyðing var til staðar eða ekki. Niðurstöður: Fyrir sex ára og 15 ára bömin voru hlutfallslega færri sam- eiginlegir forferður hjá þeim sem voru með tannskemmdir en meðal hópsins sem voru án tannskemmda. Aftur á móti sýndi rannsóknin ekki fram á tölfræðilega marktækar niðurstöðum í neinum samanburði. Ályktanir: Tannskemmdir er margþættur sjúkdómur þar sem lögð hefur verið áhersla á svipgerð einstaklinga. Niðurstöðurnar benda til þess að erfðaþættir gætu að hluta til haft áhrif á líkumar á því að fá tann- 72 LÆKNAblaðið 2013/99
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.