Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 78
XVI VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 73
V 30 Brottnám legs á íslandi árin 2001-2010. Algengi, ástæður og
aðferðir
Kristín Hansdóttir', Jens A. Guðmundsson1'2
'Læknadcild HÍ, 2kvenna- og bamasviö Landspítala
krh23@hi.is
Inngangur: Brottnám legs er algengasta skurðaðgerð, fyrir utan keisara-
skurð, sem konur gangast undir. Legnámsaðgerðum hefur fækkað í
nágrannalöndunum undanfarin ár. Breytingar hafa orðið á skurðtækni
við legnámsaðgerðir og meira er gert af aðgerðum með lágmarks inn-
gripi, það er að segja með kviðsjá eða um leggöng, í stað opins kvið-
skurðar. Markmið þessarar rannsóknar var að fá vitneskju um þróun og
breytingar á legnámsaðgerðum á íslandi.
Efniviður og aðferðin Rannóknin var afturskyggn og náði til allra
kvenna sem gengust undir legnám á Islandi á tímabilinu 2001-2010.
Leitað var eftir aðgerðamúmerum fyrir allar gerðir legnáms og skráð
atriði um aldur, ástæður og tegund aðgerðar, aukaaðgerðir, legutíma
eftir aðgerð, fylgikvilla og endurinnlagnir og gerður samanburður á
tveimur fimm ára tímabilum.
Niðurstöður: Framkvæmdar voru 5.288 legnámsaðgerðir, sem fækk-
aði á tímabilinu úr 389 aðgerðum fyrir hverjar 100.000 konur árið
2001 í 266 árið 2010. Aðgerðum með kviðsjá og um leggöng fjölgaði
úr 30% árið 2001 í 50% árið 2010 á öllu landinu. Á Landspítalanum
fjölgaði þeim úr 25% í 67%, aðallega vegna aukningar kviðsjáraðgerða
(p<0,0001). Legudögum fækkaði fyrir allar tegundir aðgerða bæði innan
Landspítala og utan. Meðalaldur kvenna var um 50 ár á tímabilinu.
Færri eggjastokkabrottnám voru framkvæmd samhliða legnámi á seinna
tímabilinu en því fyrra. Alengustu sjúkdómsgreiningamar vom slétt-
vöðvaæxli og blæðingaróregla. Tíðni skráðra fylgikvilla var lág (3,8%)
og endurinnlagnir fáar (1,9%).
Ályktanir: Á fslandi hafa verið gerðar hlutfallslega fleiri leg-
námsaðgerðir en í nágrannalöndum en þeim fer fækkandi. Breyting á
aðgerðatækni hefur verið sambærileg en hlutfall aðgerða með lágmarks
inngripi er þó hærra á Landspftala en á flestum háskólasjúkrahúsum í
nágrannalöndunum.
V 31 Leit að áhrifastökkbreytingum í genum á völdum
svæðum á litningum 2p, 6q og 14q í fjölskyldu með háa tíðni
brjóstakrabbameins
Óskar Öm Hálfdánarson', Aðalgeir Arason'2, Guðrún Jóhannesdóttir1, Ólafur
Friðjónsson3, Elísabet Guðmundsdóttir4, Bjami A. Agnarsson5, Óskar Þór
JohannssoiV', Inga Reynisdóttir1, Rósa B. Barkardóttir1-2
'Sameindameinafræöi- og frumulíffræðieining, rannsóknastofu í meinafræði Landspítala, 2BMC
heilbrigðisvísindasviði HÍ, 3Matís ohf., 4Roche NimbleGen, 5rannsóknastofu í meinafræði og
6krabbameinslækningadeild Landspítala
oskaroh@landspitali.is
Inngangur: Með tilliti til fjölskyldusögu koma 5-10% greindra einstak-
linga með brjóstakrabbamein úr fjölskyldum með háa tíðni meinsins.
Um helmingur fjölskyldnanna hafa ekki tengsl við stökkbreytingar í
þekktum krabbameinsgenum á borð við BRCAl og BRCA2. Slíkar fjöl-
skyldur kallast BRCAx-fjölskyldur. í undanfara þessarar rannsóknar var
sýnt fram á tengsl svæða á litningum 2p, 6q og 14q við brjóstakrabba-
mein í einni íslenskri BRCAx-fjölskyldu (70234). í heildina eru 554 gen
innan svæðanna en í fyrsta hluta rannsóknarinnar var ákveðið að rað-
greina 274 gen. Markmið rannsóknarinnar var að finna stökkbreytingar
á litningasvæðum 2p, 6q og 14q í fjölskyldu 70234 sem eru líklegar til
þess að valda aukinni hættu á myndun brjóstakrabbameins.
Efniviður og aðferðir: Raðgreind voru valin svæði á litningum 2p, 6q
og 14q í fjórum sýnum úr fjölskyldu 70234 með 454-raðgreiningu. Lagt
var mat á hvaða breytileikar væru líklegir til þess að hafa áhrif á virkni
þeirra gena sem báru þá. SIFT og Polyphen2 (PP2) voru notuð til að
leggja mat á mögulega skaðsemi basabreytileika á próteinkóðandi svæð-
um. Kandídatbreytingar voru skimaðar í völdum fjölskylduefnivið,
óvöldum sjúklingahópi og viðmiðunarhópi. Kíkvaðratpróf var notað til
að meta hvort marktækur munur væri á samsætutíðni milli hópa.
Niðurstöður: Heildarfjöldi kímlínu breytíleika var 1.543. Þar af voru 148
breytileikar prótein kóðandi. Skimað var fyrir fjórum prótein kóðandi
breytileikum og tveimur breytingum utan próteinkóðandi svæða, þar af
einni splæsibreytingu. Ekki reyndist marktækur munur á samsætutíðni
milli hópa.
Ályktanir: Engar stökkbreytingar fundust sem líklegar eru til þess að
skýra aukna tilhneigingu til myndunar brjóstakrabbameins í ætt 70234.
Næsta skref er að raðgreina þau 280 gen sem ekki voru raðgreind í fyrsta
hluta rannsóknarinnar.
V 32 Áhrif kúrkúmíns á lyfjanæmi krabbameinsfrumna
Karen Eva Halldórsdóttir', Finnbogi R. Þormóðsson2, Helgi Sigurðsson1-3
‘Læknadeild HÍ, 2ValaMed ehf., 2Landspítala háskólasjúkrahúsi
keh3@hi.is
Inngangur: Kúrkúmín sem náttúruefni hefur ýmsa einstaka eigin-
leika sem nýst geta við meðferð ýmissa sjúkdóma, þar á meðal við
krabbameini. Það hefur reynst auka frumudrepandi áhrif krabbameins-
lyfja og þá aðallega með því að framkalla sjálfstýrðan frumudauða í
fjöllyfjaónæmum krabbameinsfrumum. Markmið tilraunar var að stað-
festa áhrif kúrkúmíns til aukningar á lyfjanæmi valdra krabbameins-
frumulína í rækt, en auk þess prófa hvort þessi áhrif kúrkúmins ná til
æxlisfrumna úr sjúklingum.
Efniviður og aðferðir: Notast var við tvær andrógen óháðar frumu-
línur úr blöðruhálskirtilsæxli, DU-145 og PC-3. Kúrkúmín var fengið frá
Sigma og hefðbundin krabbameinslyf ásamt vökvasýni úr langt gengnu
eggjastokkakrabbameini fengið frá Landspítala. Frumum var sáð í 96
holu ræktunarbakka með mismunandi styrkjum kúrkúmíns og krabba-
meinslyfja. Lífvænleiki frumna var ATP lúsiferín-lúsiferasa efnahvarfi.
Niðurstöður: Greinilegt er að krabbameinslyf með kúrkúmín dregur
meira úr frumulifun heldur en krabbameinslyfin ein sér. Þetta sést
bæði gagnvart frumulínunum og einnig gagnvart krabbameinsfrumum
frá sjúklingi þar sem frumudráp gat meira en tvöfaldast fyrir áhrif
kúrkúmins.
Ályktanir: Rannsóknin staðfestir niðurstöður fyrri rannsókna og sýna
jafnframt fram á áhrif kúrkúmíns til aukningar lyfjanæmis eggjastokka
krabbameinsfrumna sjúklings fyrir frumudeyðandi lyfjum. Engu nátt-
úrulegu efni hefur verið lýst sem hefur áhrif á jafnmargar boðleiðir og
kúrkúmín gerir. Fjöllyfjaónæmar krabbameinsfrumur eru vandamál
í almennri lyfjameðferð og því eiginleikar kúrkúmíns til aukningar á
lyfjanæmi krabbameinsfrumna í rækt áhugaverðir til frekari skoðunar.
Það hamlar þó notkun þess að frásog kúrkúmins er lítið.
V 33 Áhrif resveratról á lyfjanæmi frumna úr illkynja
stjarnfrumuæxlum
Sigurrós Jónsdóttir', Finnbogi R. Þormóðsson2, Ingvar H. Ólafssonu, Helgi
Sigurðsson1'3
'Læknadeild HÍ, 2ValaMed ehf., 2Landspítala háskólasjúkrahúsi
sigurrosj@gmail.com
78 LÆKNAblaóið 2013/99