Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Blaðsíða 95
XVI VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 73
sýndu að um 23% misræma gætu valdið mikilli áhættu fyrir sjúklinga.
Ályktanir: Niðurstöður benda til þess að misræmi sé á milli lyfjaávísana
aldraðra við útskrift af sjúkrahúsi yfir á hjúkrunar- og dvalarheimili.
Ekki er þó hægt að vita hve stórt hlutfall lyfjamisræma eru meðvitaðar
breytingar gerðar af læknum og hve stórt hlutfall eru vegna villna.
V 85 Við hverju er lyfið? Þekking fólks á tilgangi lyfjameðferðar
sinnar
Erla Hlín Henrysdóttir, Anna I. Gunnarsdóttiru, Ástráður B. Hreiðarsson1
'Landspítala, 2iyf]afræðideild HÍ
erlahenrys@gmail.com
Inngangur: Ákaflega mikilvægt er að fólk sem tekur lyf hafi skilning
á tilgangi meðferðarinnar, ekki síst til að auka meðferðarheldni og þar
af leiðandi árangur meðferðar. Við það að taka lyfjasögu sjúklinga hafa
lyfjafræðingar á Landspítala orðið þess áskynja að eitthvað er um að
sjúklingar viti ekki ástæðu lyfjameðferðinnar eða telja meðferðina vera
við öðrum sjúkdómum en raunin er. Markmið rannsóknarinnar var að
kanna þekkingu þátttakenda á tilgangi eigin lyfjameðferðar, einnig var
kannað hversu algengt væri að þátttakendur vildu hafa tilgang lyfja-
meðferðar skráðan á skömmtunarmiða lyfs og hvort þeir sem notuðu
innöndunarlyf teldu sig hafa fengið kennslu í notkun þess.
Efniviður og aðferðir: Tekin voru viðtöl við 300 einstaklinga sem
áttu bókaðan tíma á innskriftarmiðstöð, göngudeild sykursjúkra og
göngudeild lyflækninga á 9 vikna tímabili frá janúar til mars 2012 a
Landspítala. Þekking þátttakenda var könnuð með stöðluðum spurn-
ingalista, sem var metinn eftir ákveðnum kvarða og tjáður í prósentum.
Niðurstöður: Meðalaldur þátttakenda var 58 ár (20-90 ára). Þekking
á tilgangi eigin lyfjameðferðar var 81,8%±22,9% (SD). Þekking
minnkaði með aldri, 0,4% að meðaltali á ári (p<0,005). Fólk sem var í
lyfjaskömmtun hafði minni þekkingu á tilgangi eigin lyfjameðferðar en
þeir sem ekki voru í skömmhm, 58,9% á móti 83,9%, en þess ber að geta
að meðalaldur þeirra sem voru í lyfjaskömmtun var mun hærri (71,2 á
móti 56,4 ár). Af þátttakendum voru 78% fylgjandi því að hafa tilgang
lyfjameðferðar skráðan á skömmtunarmiða lyfsins. Af þeim 74 þátt-
takendum sem notuðu innöndunarlyf sögðust 26 ekki hafa fengið neina
kennslu í notkun þess.
Ályktanir: Þekking fólks á tilgangi eigin lyfjameðferðar virðist allgóð.
Allt má þó bæta og mikill meirihluti fólks vill að ábending lyfjameð-
ferðar verði ávallt skráð á skömmtunarmiða lyfs. Bæta þarf kennslu í
notkun innöndunarlyfja.
V 86 Usnic-sýra og sjálfsát frumna
Egill E. Hákonarson', Stefán Á. Hafsteinsson', Margrét Bessadóttir2, Helga
Ögmundsdóttir2, Pétur Henry Petersen1
‘Rannsóknastofu í taugalíffræði og 2rannsóknastofu í krabbameinsfræðum HÍ
eeh3@hi.is
Inngangur: Usnín-sýra er fléttuumbrotsefni einangrað meðal annars
úr hreindýrakrókum (Cladonia arbuscula). Sýnt hefur verið fram á að
usnín-sýra hafi sýkladrepandi áhrif og áhrif á sjálfsát frumna. Vitað er
að usnín-sýra kemur ójafnvægi á flutning róteinda yfir himnu hvatbera
og hefur því áhrif á orkubúskap. Taugahrörnunarsjúkdómar geta sýnt
svipað ójafnvægi sem leiðir til dauða taugafrumna. Einnig er mögulegt
að usnín-sýra hafi sambærileg áhrif á leysikom það er hafi áhrif á
sýrustig þeirra og niðurbrotshæfni. Mikilvægt er að kanna áhrif efna
yfir lengri tíma, til dæmis heilt æviskeið tilraunalífvera. í þessari rann-
sókn voru áhrif usnín-sýru könnuð í ávaxtaflugunni (D. melanogaster) og
HEK293T-frumum.
Efniviður og aðferðir: Flugum af villigerð var gefin usnín-sýra með
því að blanda henni í 1% agarósa í styrknum lOpg/mL. Fylgst var með
afkomu flugnanna í 10 daga. Einnig var metið hvort flugurnar forðuðust
usnín-sýruna. HEK-frumur vom meðhöndlaðar með usnín-sýru í þrjá
tíma. Sjálfsát var metið með smásjárskoðun og Westem-greiningu á
einangruðum próteinum úr frumum og flugum.
Niðurstöður: Við meðhöndlun HEK-frumna kom í ljós að usnín-sýran
hvetur upphaf sjálfáts, en óljóst er hvort að sjálfsátsferlinu er lokið með
eyðingu próteina. Usnín-sýra er ekki bráðdrepandi fyrir D. melanogaster
til skamms tíma litið og þær forðuðust efnið ekki. Unnið er að úrvinnslu
á mælingum á sjálfsáti flugnanna.
Ályktanir: Áhrif usnín-sýru á sjálfsát í HEK eru lík því sem sést hefur
í öðmm frumum. HEK-fmmur em þekktar sem heppilegar tilrauna-
frumur og gætu því hentað vel til að rannsaka áhrif efnisins á fmmur í
rækt. Usnín-sýra hafði ekki eituráhrif á tilraunalífvemna D. melanogaster
í skammtímatilraun og gæti því nýst til frekari rannsókna á áhrifum
usnínsýru á heila lífveru sem gefur kost á sjúkdómslíkönum.
V 87 Flutningur lyfja í gegnum tilbúið slímlag
Hákon Hrafn Sigurðsson1, Alba Monjas Tejero2
’Lyfjafræðideild Háskóla íslands, :Universitat de Barcelona, Facultat de Farmácia
hhs@hi.is
Inngangur: Lyf þurfa að komast í gegnum slímlag eftir flestum algeng-
ustu lyfjagjafaleiðum sem notaðar eru. Þetta slímlag er seigt og getur
haft mikil áhrif á frásog lyfja en það virðist þó frekar vera bygging
og eðli slímlagsins en seigjustig þess sem veldur minnkuðu frásogi.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna flæði lyfja með mismunandi
fitusæknigildi (logP) i gegnum tilbúið slímlag og reyna að svara þeirri
spurningu hvort seigjustig eða hlutfall fitusækinna sameinda í slímlagi
hafi meiri áhrif á flæði lyfja í slímlaginu.
Efniviður og aðferðir: Notast er við hefðbundnar Frans-flæðisellur sem
búið er að bæta við auka hólfi á milli gjaffasahólfs og móttökufasahólfs
sem er aðskilið með gegndræpri himnu. Hólfið er 2,8mm að þykkt og
tilbúnu slími (úr svínsmaga) með mismimandi eiginleika er komið fyrir
í hólfinu og lyfjalausn með mismunandi hjálparefnum komið fyrir í
gjaffasahólfi og flæðisellan keyrð í 6 tíma. Sýni úr móttökufasahólfi eru
greind á háþrýstivökvaskilju.
Niðurstöður: Gegndræpi lyfja gegnum slímlag lækkaði með aukinni
fitusækni þeirra. Fitusækin lyf virðast dreifast fyrst innan slímlagsins
áður en flæði í gegnum lagið hefst sem sést með breytilegum biðtíma
flæðis eftir styrk slíms. Vatnssæknar fléttur fitusækinna lyfja ferðast
hraðar í slímlaginu en lyfin sjálf.
Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að hlutfall fitusækinna sam-
einda hafi meiri áhrif á flæði lyfja í slímlagi en seigjustig þess og að
hugsanlega sé hægt að draga úr neikvæðum áhrifum slímlagsins á flæði
lyfja með því að bæta við hjálparefnum sem auka vatnsleysni lyfjanna.
V 88 Efnasmíði N,N-díalkýlkítósanaleiða og fjórgildra N,N-díalkýl-
N-metýl-kítósanafleiða
Priyanka Sahariah, Berglind Eva Benediktssdóttir, Már Másson
Lyfjafræðideild HÍ
prs1@hi.is
Inngangur: Rannsóknarhópur okkar hefur unnið að því að þróa
LÆKNAblaðið 2013/99 95