Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 30

Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 Bjarni Ármannsson. 8. nóvember Það munar um skatta bankanna Yfirleitt heyrum við fréttir um ofurhagnað bankanna. En eitt leiðir af öðru. Á stofnfundi Samtaka fjármálafyrirtækja kom fram að áætlað sé að greinin í heild, fjármálafyrir- tækin, greiði um 15 milljarða í tekjuskatt eða um 40% af öllum tekjuskatti fyrirtækja í landinu. Útlit er fyrir að skatt- greiðslur fjármálafyrirtækjanna aukist enn meira á næsta ári vegna mun meiri hagnaðar þeirra á þessu ári. Aðeins um hin nýstofn- uðu samtök: Það eru Samtök banka- og verðbréfafyrirtækja (SBV), Samband íslenskra tryggingafélaga (SÍT) og Samband íslenskra sparisjóða (SÍSP) sem eru að sameinast undir einum hatti í Samtökum fjármálafyrirtækja frá og með næstu áramótum. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, er formaður samtakanna. 10. nóvember 20 milljarðar út úr Iceland Hluthafar í matvælakeðj- unni Iceland í Bretlandi, sem er í eigu Baugs, Pálma Haralds- sonar, Lands- bankans, Kaupþings banka og fleiri fá góðan arð. En sagt var frá því þennan dag að ákveðið hefði verið að greiða rúmar 150 milljónir punda, jafnvirði nærri 20 milljarða króna, í arð til hluthafa. Kom fram að með þessu fái fjárfestar til baka rúmlega tvöfalt það fé sem þeir lögðu í fyrirtækið á sínum tíma. Búist er við að fyrirtækið verði að mestu skuldlaust í árslok. Búist er við að Iceland skili umtalsverðum hagnaði á þessu ári. Á fyrsta ársfjórðungi var 7 milljóna punda hagnaður á rekstrinum en á síðasta ári var 25 milljóna punda tap á rekstrinum allt árið. 10. nóvember Hvað heldur DeCode það lengi út? DeCode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, tapaði 4,2 milljörðum fyrstu níu mán- uði ársins. Í tilefni af því voru vangaveltur í Morgunkorni Greiningar Glitnis um framtíð D A G B Ó K I N TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl. Sagt var frá því að Baugur Group og meðfjárfestar hefðu lokið yfirtöku á öllu hlutafé í bresku versl- unarkeðjunni House of Fraser. Heildarkaupverðið með fjármögnun skulda var 603 milljónir punda eða 77 milljarðar króna. Það var í lok ágúst sem Baugur, ásamt meðfjár- festum, gerði tilboð í HoF. Meðfjárfestar Baugs eru Don McCarthy, sem verður stjórnarformaður félagsins, FL Group, Tom Hunter, eigandi West Coast Capital, Kevin Stanford, stofnandi Karen Millen, Halifax Bank of Scotland (HBOS) í gegnum fjárfestingafélag sitt Uberior og Stefan Cassar, fyrrum fjármála- stjóri Rubicon Retail, en hann verður fjármálastjóri félagsins. John King, sem hefur verið forstjóri bresku verslunarkeðjunnar Matalan frá árinu 2003, hefur verið ráðinn forstjóri House of Fraser. Hann mun hefja störf í byrjun árs 2007. 9. nóvember YFIRTAKAN Á HOUSE OF FRASER Jón Ásgeir Jóhannesson.Hannes Smárason. House of Fraser í London. Pálmi Haralds- son er stjórnar- formaður Iceland.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.