Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 117
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 117
meistari og hefur komið víða við á því sviði. Annar nýliði, Edward
Speelers, leikur titilhlutverkið en honum til aðstoðar eru Jeremy
Irons, Djimon Hounsou, John Malkovich og Robert Carlyle.
Spennumyndin Deja Vu í leikstjórn Tony Scott er einnig frumsýnd
um miðjan desembermánuð og ætti ekki að valda spennufíklum von-
brigðum. Í henni leikur Denzel Washington lögreglumann hjá FBI
sem fær tækifæri til að fara aftur í tímann og reyna að koma í veg
fyrir hryðjuverk. Auk hans leika Val Kilmer og James Caviezel stór
hlutverk í myndinni
Þegar nær dregur jólum eða 22. desember er Flags of our Father
frumsýnd, en sú mynd hefur fengið mikla umfjöllun hér á landi enda
tekin að stórum hluta í Sandvík á Reykjanesi í fyrrasumar og er enn
mörgum minnisstætt að Clint Eastwood og frægir leikarar myndar-
innar voru í nokkrar vikur á ferli í höfuðborginni og á golfvöllum
í nágrenninu. Flags of our Fathers segir frá nokkrum stríðshetjum
sem reistu bandaríska fánann á Iwo Jima sem sigurtákn og skráðu
nafn sitt á söguspjöldin þar sem ljósmyndin af atburðinum er ein
frægasta ljósmynd sem tekin hefur verið. Flags of Our Fathers hefur
fengið fína dóma hjá gagnrýnendum vestan hafs, en aðsóknin hefur
valdið vonbrigðum, hefur verið dræm svo að ekki sé meira sagt. Þess
má geta að hliðarmyndin, Letters From Ivo Jima, sem segir frá sama
atburði frá sjónarhóli Japana og Clint Eastwood leikstýrir einnig,
verður frumsýnd sama dag í Bandaríkjunum og Flags of our Fathers
verður tekin til sýningar hér á landi.
Á annan dag jóla, gamla jólabíódaginn, verða frumsýndar tvær
ævintýramyndir. Arthur and the Minimoys er fjölskyldumynd í
leikstjórn Luc Besson. Þar segir frá tíu ára gömlum strák, Arthur, sem
vill gera allt sem hann getur til þess að bjarga húsi afa síns frá því að
verða rifið. Leit hans endar í landi Minimoyanna sem eru agnarsmáar
verur sem lifa í sátt og samlyndi við náttúruna. Ungur drengur,
Freddie Highmore, leikur Arthur, en í öðrum hlutverkum eru David
Bowie, Snoop Dogg, Mia Farrow og Penny Balfour.
Teiknimyndir er fastur liður á jólunum og fulltrúi þeirra í ár er
Happy Feet, sem sló út Casino Royale í aðsókn í Bandaríkjunum, en
þær voru frumsýndar sömu helgina.
FLAGS OF OUR FATHERS:
Clint Eastwood í Sandvík á
Reykjanesi við tökur
á myndinni.
HAPPY DAYS: Mumble, sem Elijah Wood talar
fyrir, sýnir listir sínar í steppdansi.
ERAGON: Brom (Jeremy Irons) gefur
Eragon (Ed Speelers) sverð sem
hann segir verðmætustu eign sína.
Um er að ræða stafræna teiknimynd. Meðal leikara sem ljá rödd
sína eru Hugh Jackman, Robin Williams, Brittany Murphy, Elijah
Wood og Nicole Kidman. Happy Feet verður einnig sýnd með
íslensku tali. Fjallar hún um mörgæs sem kann ekki að syngja eins
og ætlast er til af henni, en kann að steppa eins og sannkallaður
meistari. Fyrir vikið verður hún utangátta í mörgæsahópnum þar
sem söngur er viðurkenndur en ekki steppdans.
Köld slóð í lok árs Vert er að lokum að geta þess að 29. desember
verður íslenska sakamálamyndin Köld slóð frumsýnd. Verður spenn-
andi að sjá hvernig henni verður tekið í ljósi þess að Mýrin fékk
metaðsókn. Köld slóð lofar sannarlega góðu og er valinn maður í
hverju rúmi.
Í kynningartexta segir meðal annars að villtur eltingaleikur
berst um einangrað virkjunarsvæði einhvers staðar á Íslandi. Eftir-
förinni lýkur þegar Tóti öryggisvörður fellur dauður niður. Eitt-
hvað eða einhver hefur elt hann um svæðið, en það er algerlega
óvíst hvað eða hver hefur vakið slíka skelfingu hjá fórnarlambinu.
Leynilöggan Baldur mætir til vinnu sinnar í Reykjavík og dauði Tóta
er eitt af málum dagsins. Baldur leggur ekki mikið upp úr viðburð-
inum, sem er afgreiddur sem slys í fyrstu. Öryggismyndavélarnar
voru óvirkar og því ómögulegt að ákveða hvort um annað en óhapp
hafi verið að ræða. Þegar Baldur heimsækir móður sína síðar um
kvöldið afhjúpar hún fjölskylduleyndarmálið. Baldur var ekki rétt
feðraður og Tóti er hans rétti faðir. Næsta dag krefst Baldur þess að fá
leyfi til að rannsaka dauða Tóta nánar, undirrótin er að nú vill hann
vita meira um föður sinn og örlög hans.
Í helstu hlutverkum eru Þröstur Leó Gunnarsson, Elva Ósk Ólafs-
dóttir, Helgi Björnsson, Anita Briem, Lars Brygmann, Sólveig Guð-
mundsdóttir, Ólafur Guðmundsson og Hilmir Snær Guðnason. Leik-
stjóri er Björn Br. Björnsson, margreyndur í íslenska kvikmyndabrans-
anum, en Köld slóð er hans fyrst leikna kvikmynd í fullri lengd.