Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 23
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 23
FORSÍÐUGREIN
heimurinn að verða að einu markaðssvæði fyrir vörur og þjónustu.
Hnattvæðingin hefur leitt til alþjóðlegrar samkeppni á mörkuðum,
samskiptaleiðir hafa styst, flutningskostnaður lækkað og hreyfanleiki
fólks, fjármagns og jafnvel fyrirtækja eykst stöðugt. Af þessum sökum
skiptir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja meira máli nú en nokkru
sinni fyrr.
Frá árinu 1915 til ársins 2006 (júlí) hafa þau 21 fyrirtæki, sem
tekin voru til skoðunar, yfirtekið rúmlega 200 fyrirtæki og stofnað
um 130 ný fyrirtæki á erlendum vettvangi.
Rannsóknin staðið yfir síðastliðin tvö ár Til þess að varpa ljósi á
viðfangsefnið hefur undirrituð síðastliðin tvö ár safnað upplýsingum
um beinar erlendar fjárfestingar íslenskra fyrirtækja í samanburði við
önnur lönd. Samhliða því fóru fram tvenns konar athuganir. Annars
vegar voru lagðar spurningar fyrir um 500 íslenska framkvæmda-
stjóra, sem svöruðu símleiðis spurningum varðandi alþjóðavæðingu
fyrirtækja sinna og áætlanir þar um. Einnig voru athuguð 21 fyrirtæki
sem hafa fjárfest umtalsvert erlendis á undanförnum árum.
Upplýsingum um þessi fyrirtæki var safnað á margvíslegan hátt
en þegar öll gögn lágu fyrir fengu stjórnendur fyrirtækjanna sendar
upplýsingar um fyrirtæki sitt og þeir beðnir að staðfesta þær. Sú
spurning sem vaknaði var hvort alþjóðavæðing þessara fyrirtækja
væri í samræmi við kenningar á þessu sviði eða hvort um séríslenskt
mynstur væri að ræða.
500 íslensk fyrirtæki Einn helsti tilgangur þessarar rannsóknar
er eins og áður sagði að skoða hvernig íslensk fyrirtæki hafa farið á
markað erlendis. Til þess að fá yfirsýn yfir yfirtökur íslenskra fyrir-
tækja í öðrum löndum var gerð könnun í ársbyrjun 2006. Um 500
stjórnendur tóku þátt í könnuninni sem var gerð í gegnum síma.
Nokkrar spurningar voru lagðar fyrir stjórnendurna.
Fyrst var spurt hvar fyrirtækin störfuðu og þá kom í ljós að ein-
ungis 57 fyrirtæki af 497 höfðu tekið það skref að fjárfesta erlendis. Af
þessum 57 fyrirtækjum störfuðu 38 í fleiru en einu landi og langflest
fyrirtækin höfðu starfsemi í Bretlandi og Danmörku. Þetta kemur
ekki á óvart því það er eðlilegt að íslenskir stjórnendur leiti á mið
sem eru nálæg og þeir þekkja vel, að minnsta kosti á fyrstu stigum
alþjóðavæðingarinnar. Seinna meir, þegar stjórnendur hafa öðlast
meiri þekkingu og reynslu, sækja þeir án efa á enn fjarlægari mið.
Hefur þú fjárfest eða hyggur þú á fjárfestingar erlendis? Þegar
stjórnendur voru spurðir að því hvort þeir hefðu keypt ráðandi hlut
í fyrirtæki erlendis á sl. 12 mánuðum, eða á árinu 2005, kom í ljós
að það voru aðeins tæp 4% sem höfðu lagt í slíkar fjárfestingar. Þetta
sýnir að tiltölulega fá fyrirtæki eru að fjárfesta í öðrum löndum en
þau fjárfesta hins vegar mörg hver stórt. Hins vegar er ljóst að fjárfest-
ingagleði íslensku fyrirtækjanna er ekki að ljúka, því rúmlega tvöfalt
fleiri hafa hug á að fjárfesta á tímabilinu 2006-2007.
Er stærra endilega betra? Hvort telur þú vænlegra fyrir fyrirtæki
þitt að kaupa hlutfallslega stór fyrirtæki og vaxa þannig hratt eða að
kaupa smærri fyrirtæki og vaxa hægar?
Allir stjórnendurnir, sem tóku þátt í könnuninni, höfðu kost á að
svara þessari spurningu því að hún gefur vísbendingu um almennt
viðhorf íslenskra stjórnenda. Rúmlega 400 aðilar svöruðu spurning-
unni og af þeim töldu 210 að betra væri að kaupa smærri fyrirtæki og
vaxa þannig hægar. Að kaupa stór fyrirtæki töldu 52 stjórnendur væn-
legast, en 24 sögðu að best væri að kaupa bæði stór og lítil fyrirtæki.
Það að fjárfesta erlendis, hvort heldur að kaupa stærri eða smærri
fyrirtæki, hentaði ekki tæplega 30% þessara stjórnenda. Ef einungis
þeir sem höfðu fjárfest voru spurðir þessarar spurningar kom í ljós að
tæplega helmingur vildi kaupa smærri fyrirtæki, 40% stór, en 13%
vildu blanda þessu saman og kaupa bæði stór og lítil fyrirtæki.
Ásta Dís Óladóttir, kennari við Viðskiptaháskólann í Kaup-mannahöfn, hefur gert fyrstu
umfangsmiklu rannsóknina á kaupum
Íslendinga á erlendum fyrirtækjum.
Rannsóknin nær aftur til ársins 1915 og
er hluti af doktorsverkefni hennar. Ann-
ars vegar voru lagðar spurningar fyrir
um 500 íslenska framkvæmdastjóra, sem
svöruðu símleiðis spurningum varð-
andi alþjóðavæðingu fyrirtækja sinna og
áætlanir þar um. Einnig voru athuguð
21 fyrirtæki sem hafa fjárfest umtalsvert
erlendis á undanförnum árum. Ásta Dís
hefur að undanförnu haldið fyrirlestra um
rannsókn sína og fjárfestingar Íslendinga
erlendis, m.a. á fjármálaráðstefnu í Osló
nýlega.
FYRSTA UMFANGSMIKLA RANNSÓKNIN