Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 69
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 69
Ham. Tottenham hefur slegið þessu frá sér,
en Papa hafði áhuga á þessu fyrir hönd West
Ham.
Nú er þessi möguleiki að renna út þar
sem gera þarf ráð fyrir framtíðarhlutverkinu í
hönnun leikvangsins – byggingin á að hefjast
2008. Eggert hefur sagt við enska fjölmiðla
að hann sé opinn fyrir þessu og meira en
það, að hann hafi áhuga, en að leikvangurinn
sé ekki afgerandi liður í kaupunum. Komi
hann West Ham í meistaradeild Evrópu þarf
félagið hins vegar stærri leikvang en Upton
Park.
Knattspyrnufélag, sem kæmi þarna inn,
fengi ekki að kaupa leikvanginn heldur
aðeins að verða aðalleigjandi. 80 þúsund
manna leikvangur er of stór, 60 þúsund
manna leikvangur væri nær lagi fyrir fótbolta
en ef leikvanginum yrði haldið eftir sem
frjálsíþróttaleikvangi þyrfti hann ekki að
rúma nema 25 þúsund manns eftir leikana.
Hvað um það, Eggert og félagar gengu
að kaupunum með íslensku aðferðinni sem
er orðin kunnugleg – rækilegt yfirboð, í
þessu tilfelli 10 milljónir punda, voru snarir
í snúningum, fljótir að ákveða sig og bara
kýldu á það.
Eggert hefur sannfært menn
Frá því að vera litnir hornauga af öllum virð-
ast Eggert og félagar hafa náð því að sann-
færa menn um einlægan vilja, greiðslugetu
og brennandi metnað fyrir hönd félagsins.
Pardew þjálfari hefði örugglega verið látinn
fjúka ef Joorabchian hefði eignast félagið, en
hann var þegar búinn að troða tveimur arg-
entínskum fótboltamönnum í félagið í haust,
þeim Carlos Tevez og Javier Mascherano sem
hafa ekki staðið undir væntingum.
Eggert talaði í fyrstu hiklaust við blaða-
menn og lét þá hafa farsímanúmerið sitt.
En síðan beitti hann fyrir sig almannatengli,
Mike Lee að nafni. Mike var einmitt mjög
öflugur í þeim hópi sem beitti sér fyrir því að
fá Ólympíuleikana til London og hefur því
góð sambönd vilji West Ham færa sig um set
í vallarmálum.
Fjárfesting eða dýr dægrastytting?
Það er umdeilt hvort rekstur knattspyrnu-
félags sé góð fjárfesting eða dýr dægrastytting.
Það er augljóslega hægt að hagnast á rekstri
góðs knattspyrnufélags. Aðaltekjurnar koma af
sjónvarpssendingum, greiðslur fyrir þær hafa
hækkað undanfarin ár. Aðrar tekjur, eins og af
áhorfendum, auglýsingum, styrkjum og sölu
varnings, eru oftast háðar velgengni liðsins.
Mestu munar fyrir West Ham að komast í
meistarakeppni Evrópu. Á það stefnir Eggert.
Sagt er að Eggert hafi þegar sett mannskap
í að kynna sér hvernig tekjuhá lið eins og
Manchester United og Barcelona fari að því
að hagnast jafnmikið og raun ber vitni.
Íslendingum tókst aldrei að búa til fjár-
festingu úr Stoke þó að væntingarnar væru
miklar. Sumir segja að Chelsea væri gjald-
þrota ef ekki væri fyrir ótæmandi peningahít
að baki liðinu.
Spurningin er ekki aðeins hvað Eggert og
Björgólfur eiga eftir að gera fyrir West Ham
– heldur líka hvað West Ham á eftir að gera
fyrir tvímenningana fótboltaglöðu.
Í STUTTU MÁLI:
1. West Ham velti 7,8 milljörðum á síðustu leiktíð og
hagnaðist um 1,7 milljarða.
2. Félagið á mikla tekjumöguleika í sjónvarpsrétti.
3. Félagið á dýrmætt byggingarland ef það ákveður að gera
fyrirhugaðan Ólympíuleikvang að heimavelli sínum.
4. West Ham átti þrjá leikmenn í heimsmeistaraliði
Englendinga árið 1966.
5. Leikarinn John Cleese er einn helsti stuðningsmaður liðsins.
K A U P I N Á W E S T H A M
Tekjumöguleikar West Ham
liggja ekki síst í auknum
gróða af sjónvarpsrétti
en nýr samningur þar um
tekur gildi á næsta ári,
þ.e. keppnistímabilið
2007 til 2008.