Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 116
116 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
Þ
að er löngu liðin tíð að kvikmyndahúsin geymi vinsælustu
kvikmyndirnar til jólanna, en slíkt tíðkaðist á þeim árum
þegar hvert kvikmyndahús var með sitt eigið umboð og enginn
hreyfði við því. Gátu bíóin þar með ráðið ferðinni hvað varðar
frumsýningu og var stundum farið að slá allverulega í myndirnar
þegar þær loksins náðu til kvikmyndahúsagesta hér uppi á klakanum.
Eitt var fastur liður, skipt var um kvikmyndir í öllum bíóum á annan
dag jóla og var oft mikil hátíð í bæ og mynduðust stundum langar
biðraðir við kvikmyndahúsin.
Bíóumhverfið breyttist með komu Árna Samúelssonar inn í íslenska
kvikmyndaheiminn. Hann fór að bjóða í myndir og var jafnvel með
heimsfrumsýningar á stórmyndum, hefð sem hefur lifað góðu lífi til
dagsins í dag. Nú berumst við með straumnum hvað varðar frum-
sýningar og í desember eru frumsýndar myndir sem annaðhvort er
nýbúið að frumsýna úti í hinum stóra heimi eða er verið að frumsýna
um sama leyti og þær eru teknar til sýningar hér á landi.
Jólin eru samt alltaf góður tími til að fara á bíó, bæði hér á landi
sem og annars staðar og margar kvikmyndir sem mikið er búið að
leggja í eru frumsýndar upp úr miðjum desember með von um góða
aðsókn.
Á söguslóðum og í ævintýraheimum Kvikmyndir sem beint tengjast
jólunum og eru hinar eiginlegu jólamyndir eru oft teknar til sýningar
seint í nóvember eða í byrjun desember þar sem líftími þeirra nær
ekki lengur en til jólanna. Fjórar slíkar myndir er nú verið að sýna í
bíóum í Reykjavík. Tvær þeirra, Deck the Halls og The Holiday eru
gamanmyndir með jólagleði og rómantík þar sem allir eru glaðir í
lokin upp á ameríska vísu, framhaldsmyndin The Santa Claus 3: The
Escape er ævintýramynd fyrir börnin sem vilja trúa á jólasveininn og
sú fjórða, The Nativity Story, tengist jólunum á mun raunsærri hátt,
en þar segir frá ferðalagi Maríu og Jósefs til Betlehem þar sem þau
síðan eignast son sinn Jesú.
Sýningar á „jólamyndunum“ hefjast síðan upp úr miðjum des-
ember og þar ber hæst í upphafi heimsfrumsýningu á ævintýramynd-
inni Eragon, byggð á metsölubók sem komið hefur úr á íslensku.
Eragon er ævintýri um ungan bóndastrák sem finnur fyrir tilviljun
drekaegg. Eins og vera ber verður það upphafið að miklum ævin-
týrum þar sem hinn ungi Eragon þarf að kljást við hinn illa konung
landsins með hjálp töfrasverðs. Eragon er dýr kvikmynd og er búist
við mikilli aðsókn. Leikstjóri myndarinnar er Stefan Fangmeier og er
þetta fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir, en hann er mikill brellu-
DREKARIDDARI, STRÍÐS-
HETJUR, DANSANDI MÖRGÆS
OG ÍSLENSKT SAKAMÁL
- er meðal þess sem kvikmyndhúsin bjóða upp á um jól og áramót
TEXTI: HILMAR KARLSSON
KÖLD SLÓÐ:
Þröstur Leó
Gunnarsson
leikur Baldur sem
rannsakar dauða
föður síns.
KVIKMYNDIR