Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
JÓLIN KOMA
Sporthúsið í Kópavogi hefur fengið nýja tækjalínu, Gravity Fitness, sem miðar að því að gefa fólki
kost á að stunda æfingar í samræmi við
getu, og það í enn meira mæli en verið
hefur fram að þessu. Sævar Pétursson,
framkvæmdastjóri Sporthússins, segir
að farið verða að bjóða almenningi að
nota nýju tækin um áramótin en fram
að þeim tíma munu þjálfarar og starfs-
fólk Sporthússins kynna sér fullkomlega
hvernig tækin nýtast hverjum og einum sem best.
Stöðug þróun á sér stað í framleiðslu á búnaði fyrir líkams-
ræktarstöðvar. Fram að þessu hefur þó vantað, að sögn Sævars, eins
konar millistig milli sjúkraþjálfunar og líkamsræktar. Sjúkraþjálfarar
hafa því ekki getað beint sjúklingum sínum neitt að sjúkraþjálfun
lokinni, þ.e. í þjálfun sem hæfir þeim sem vilja halda áfram að þjálfa
líkamann en eru ekki enn færir um að stunda venjulega líkamsrækt.
Erfiðleikastigið hefur verið of hátt og hefur því allt eins getað leitt til
þess að fólk ofreyni sig fremur en að það nái æskilegri þjálfun.
Þetta á ekki síður við um þá mörgu sem eru í lélegu formi, þjást af
offitu, vöðvabólgu að öðrum kvillum. Fyrir þá er allt of erfitt að hefja
æfingar í sams konar tækjum og fólk sem er í góðu formi og hefur
stundað líkamsrækt reglulega.
Eigin þyngd stjórnar ferðinni Sævar
segir að Gravity-tækin hafi m.a. verið
notuð í skólum í Bandaríkjunum þar
sem mikið sé um of þung börn. Þegar
börnin eiga að hefja líkamsrækt skapast
vandræði ef þau þjálfa með öðrum sem
eru betur á sig komin og geta meira.
Gravity-tækið er bekkur sem hægt er
að stilla allt frá láréttri stöðu upp í
nánast lóðrétta en það er þyngd þess
sem æfir sem stjórnar stöðu bekkjarins
og því hve erfiðar æfingarnar eru. Samanburðurinn milli þeirra sem
æfa saman verður ekki eins auðveldur og kemur í veg fyrir minni-
máttarkennd þeirra sem minna geta. Í Gravity-bekknum keppir fólk
við sjálft sig og hvatningin kemur af að sjá eigin framfarir og engu
skiptir hvað hinir geta.
Almennt er talið að um 20% fólks stundi líkamsrækt en sú
tala er nokkuð hærri hér á landi en annars staðar. Vantað hefur
æfingastig sem hentar til að fá fleiri til að hefja líkamsrækt. Talið
er að Gravity-bekkurinn kunni að vera rétta leiðin. Sporthúsið er
fyrst líkamsræktarstöðva hérlendis sem fer þessa leið. Verði viðtökur
góðar segir Sævar að Gravity-bekkir muni koma í aðrar ISF-stöðvar
en þær eru alls sex, fjórar á höfuðborgarsvæðinu og tvær á Eskifirði
og Reyðarfirði.
Gravity-bekkurinn
nýjung í líkamsrækt
Yfir 170 manns starfa hjá líkams-
ræktarstöðvum ISF. Fólk stundar þar
ekki aðeins líkamsrækt heldur t.d.
líka dans, en 600 börn, 6-16 ára,
æfa dans í tveimur stöðvum ISF
í Reykjavík og Kópavogi.
SPORTHÚSIÐ
h e i l s u l i n d f y r i r k o n u r
Brautarholti 20 105 Rvk
s. 561 5100 www.isf. is
BAÐHÚSIÐ
Dekurdagur C
Andlitsnudd & maski
Litun á augnhár & brúnir
Plokkun/vax á brúnir
Handsnyrting
Fótsnyrting
Líkamsmeðferð 30 mín.
Ljósatími
Heit laug
Vatnsgufa
Hvíldarhreiður
Pakkaverð: 20.900
(fullt verð: 22.830)
4-5 klst
Lúxus andlitsmeðferð
Augnmaski
Litun á augnhár & brúnir
Plokkun/vax á brúnir
Handsnyrting
Fótsnyrting
Vax að hnjám
Líkamsmeðferð 50 mín
Heit laug
Vatnsgufa
Hvíldarhreiður
Pakkaverð: 26.900
(fullt verð: 30.480)
6-7 klst
Dekurdagur A Dekurdagur B
Andlitsmeðferð
Augnmaski
Plokkun á brúnir
Handsnyrting
Fótsnyrting
Líkamsmeðferð 50 mín
Heit laug
Vatnsgufa
Hvíldarhreiður
Pakkaverð: 23.900
(fullt verð : 26.680)
5 klst
dekurdagar
hö
nn
un
: l
in
da
@
is
f.i
s
Gjöfin hennar
Sævar Pétursson
við eitt af æfinga-
tækjunum.