Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 122
122 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
ekki er hægt að aka hann nema gegn greiðslu
í vegskýlum. Smábærinn Carmel liggur upp
að „17 mílna hringnum“. Þetta er einstaklega
snyrtilegur bær, líklegast þekktastur fyrir það
að Clint Eastwood var þar borgarstjóri á
sínum tíma.
Carmel er svolítið snobbaður bær að sjá,
þarna eiga þeir ríku og frægu hús. Bærinn
er líklega sá snyrtilegasti sem ég hef komið
til. Mikil fágun blasir við á öllum sviðum.
Snyrtimennskunni hefur verið líkt við bæina
í Sviss. Það eru hvorki umferðarljós né
skyndibitastaðir í Carmel. Bærinn er paradís
þeirra sem hafa gaman af litlum snyrti-
legum verslunum og notalegum galleríum.
Á sumrin iðar Carmel af lífi ferðamanna sem
flykkjast þangað – og hafa gert í yfir hundrað
ár – en sögur eru til af ferðamönnum á
Monterey-svæðinu frá árinu 1880. Bærinn
heitir fullu nafni Carmel-by-the-Sea.
Salinas Það er ágætt að gefa sér tvo daga á
Monterey-svæðinu, svo ekki sé nú talað um
ef fólk ætlar að spila golf. Takið eftir því að
tólf golfvellir af þeim fjórtán sem eru á svæð-
inu eru almenningsvellir. Spyglass Hill völl-
urinn á Pebble Beach og Carmel Valley eru
einkavellir. Það er sérstaklega erfitt að kom-
ast inn á Carmel Valley völlinn en hann er í
næsta nágrenni við heimili Clint Eastwood
sem býr í Carmel dalnum – en þangað er
um tuttugu mínútna akstur frá Carmel og á
leiðinni að borginni Salinas. Þess má geta að
leikarinn James Dean lést skammt fyrir utan
Salinas fyrir bráðum fimmtíu árum þegar
hann lenti þar í hörðum árekstri.
Ég hvet alla til að fara til Salinas. Borgin er
í landbúnaðarhéraði og þekktust fyrir að hafa
alið af sér rithöfundinn John Steinbeck sem
fæddist og ólst þar upp. Steinbeck er einhver
mestlesni rithöfundur í heimi og eftir hann
eru m.a. sögurnar Mýs og menn og Þrúgur
reiðinnar. Þetta eru sögur sem allir mennta-
skólanemar á Íslandi hafa lesið og sögusvið
þessara bóka blasir þarna við. Í Salinas er
Steinbeck-fræðasetrið; virðulegt, fræðandi og
vel skipulagt safn til heiðurs skáldinu. Þar
hefur verið sett upp aðgengileg og vönduð
sýning um lífshlaup Steinbecks, ævi hans og
ritstörf. Þetta er safn eins og Bandaríkjamenn
eru hvað bestir í að gera; texti, myndir,
kvikmyndir, úrklippur, munir og leiktjöld.
Það er allt að því skyldumæting á þessa sýn-
ingu. Skammt frá er Steinbeck-húsið þar sem
rithöfundurinn bjó á fullorðinsárum sínum.
Alcatraz. Þetta var rammgerðasta fangelsi í Bandaríkjunum um áraraðir.
Musteri Mammons, Bank of America í San
Francisco. Kvikmyndin Tower Inferno var
tekin þarna upp.
Bryggjan sem Willian Randolf Hearst reisti fyrir lystisnekkjur í lítilli vík á landareign sinni við
San Simeon.
Einmana Kýprusviður, 250 ára, við Pebble
Beach. Eitt þekktasta kennileiti í Kaliforníu.
Mávur í Fisherman’s Wharf í San Francisco.
Fiskmannahverfið er þriðji mest sótti ferða-
mannastaður í Bandaríkjunum.