Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 126
126 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
Það er hressandi að renna sér
niður mjúka mjöllina – sem
í sumum tilfellum er reyndar
orðin að harðfenni. Jensína
Kristín Böðvarsdóttir, mark-
aðsstjóri hjá Globus, heillaðist
sem barn af þessari vetrar-
íþrótt.
„Mér finnst ofsalega
skemmtilegt að vera á skíðum.
Ég skíða mjög stíft þannig að
ég verð þreytt og örmagna en í
því felst líka ákveðin slökun.“
Jensína rennir sér niður
íslensk fjöll, þá helst Bláfjöll,
og reynir að fara þangað eins
oft og hún getur þegar opið er.
„Það er orðin mín forrétt-
indaregla að fara einu sinni
á ári í skíðaferð til útlanda.
Síðustu árin hef ég farið til
Madonna á Ítalíu því að þar er
allt sem ég sækist eftir; góðar
brekkur og frábær matur. Ekki
amalegt að fá sér góða steina-
steik í fjallinu í hádeginu og
halda svo áfram og skíða hana
af sér. Aðstaðan er fullkomin,
ÚR EINU Í ANNAÐ
Skíðamennska:
Á SKÍÐUM SKEMMTI ÉG MÉR
Jensína Kristín Böðvarsdóttir (í rauðum galla). „Það er orðin mín
forréttindaregla að fara einu sinni á ári í skíðaferð til útlanda.“
Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafarstofu um fjár-
mál heimilanna, fer reglulega
í leikhús. Hún segir að það
sé gaman að horfa á góða
leikara og gleyma líðandi
stund auk þess sem þetta sé
mannbætandi. „Leikhús er
ákveðin afþreying, mikil list-
grein og nauðsynlegt í menn-
ingarsamfélagi. Leikhúsið
viðheldur íslenskri tungu og
hefur styrkt hana.“
Þegar Ásta er spurð
hvort hún eigi sér uppá-
haldsleikrit nefnir hún sýn-
ingar Vesturports annars
vegar á Rómeó og Júlíu
og hins vegar á Woyzeck.
„Þessar sýningar voru mikið
fyrir augað, leikararnir voru
góðir og uppfærslurnar
skemmtilegar.“
Ásta fór nýlega á
Footloose og næst á dagskrá
er að fara á Pétur Gaut í des-
ember.
Forstöðumaðurinn fer líka
á leiksýningar í útlöndum.
Ásta hefur meðal annars
farið á Lion King og Rent
á Broadway auk þess sem
hún hefur farið í leikhús í
London.
Leikhús:
NAUÐSYNLEGT Í
MENNINGARSAMFÉLAGI
Ásta S. Helgadóttir. „Leikhúsið viðheldur íslenskri tungu
og hefur styrkt hana.“
stemmningin skemmtileg og
veitingastaðirnir góðir.“
Hvað ætli markaðsstjór-
anum finnist mest heillandi við
þessa íþrótt? „Það er hraðinn,
útiveran og félagsskapurinn.“