Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 51
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 51
verið hár. Skrifin hafa engin áhrif hér í Englandi – ég þekki
Danmörku ekki nógu vel til að dæma um áhrifin en get
ímyndað mér að staða blaðsins þar sé ámóta og The Sun hér.
Það sem það blað skrifar nýtur ekki mikils trúverðugleika.
Menn verða bara að huga að hvaðan þetta kemur, minnir
mig á sögu um körfuboltakappann Michael Jordan sem eitt-
hvert kjaftablaðið sagði að hefði staðið í veðmálum og tapað
hundruðum þúsunda dollara. Svar hans var bara „Consider
the source!“.“
Víkjum að öðrum umsvifum Baugs hér í Englandi: Kaupin á
Big Food Group í febrúar 2005 voru stærstu kaupin fram að
því. Þið skiptuð fyrirtækinu upp – hver hefur árangurinn af
þessum kaupum verið?
„Við tókum Big Food Group af markaði og skiptum fyrirtæk-
inu í fjögur fyrirtæki: Iceland, Booker, Woodward og fast-
eignafyrirtæki. Árangurinn í öllum fyrirtækjunum hafði áður
verið heldur dapurlegur. Iceland var í krísu, Booker fékk litla
athygli innan fyrirtækisins og forstjóri þess hafði sagt að Boo-
ker væri eins og risastórt olíuskip með pínulitlu gati svo það
hlyti að sökkva á endanum. Woodward – sem selur ferskan og
tilbúinn mat á veitingastaði, í skóla og aðrar stofnanir – var
í vexti og sú vaxtarsaga var notuð til að sýna vöxt í Big Food
Group. Ástandið var sannarlega ekki frábært.
Með því að skipta fyrirtækinu upp hleyptum við krafti
í hverja einingu. Árangurinn í Iceland er augljósastur. Við
fengum Malcolm Walker, sem hafði stjórnað því þegar það
naut velgengni, til að taka aftur við rekstrinum. Við snerum
okkur aftur að grunninum – viðskiptavinirnir hafa klárlega
sýnt áhuga og þeim hefur fjölgað mikið.
Það var þessi saga sem ég rakti í kynningunni um mark-
aðsmálin hjá Financial Times um daginn. Stefnan hafði verið
frosinn matur, en sú viðmiðun hafði breyst yfir í tilbúinn og
ferskan mat með skelfilegum afleiðingum. Nú erum við að
koma Iceland þangað sem keðjan var upphaflega, einblínum á
frosinn mat og þá gott úrval. Um leið og við tókum aftur upp
gömlu grunnhugmyndina höfum við auglýst mikið, verið
með sjónvarpsauglýsingar og þetta hefur svínvirkað. Und-
anfarna fimmtán mánuði hefur söluaukningin verið 20% og
þar með er hún orðin sú keðja sem hér hefur vaxið mest.
Booker er heildverslanakeðja og sá sem rekur hana er
Charles Wilson, fyrrum aðstoðarforstjóri Marks & Spencer.
Fyrir fimmtán mánuðum var þetta ein versta keðjan af þessu
tagi, nú er þetta ein sú besta. Charles er stjórnandi á heims-
mælikvarða og hefur náð að bæta reksturinn verulega svo að
keðjan er farin að sýna söluvöxt.
Woodward er þriðja stærsta fyrirtækið í Bretlandi á sviði
matsöluvöru, meðal annars til mötuneyta, veitingahúsa og
skóla. Velgengnin hefur verið aukin með meiri hagkvæmni.
Nýlega var gengið frá kaupum Woodward á DBC Foodser-
vice sem tvöfaldar veltu félagsins og þar að auki náði félagið
samningum um matsölu til hersins.
Kaupin á Big Food Group námu 1,1 milljarði punda og
þau voru bæði stór og áhættusöm en með bestu stjórnendum
sem völ var á og góðri viðskiptaáætlun hefur árangurinn orðið
góður.“
Nú er jólavertíðin framundan – hversu þungt vegur jólaversl-
unin í rekstrinum?
„Jólaverslunin vegur þungt bæði í House
of Fraser og öðrum verslunum okkar
– um helmingur af hagnaði ársins hjá
okkur kemur af jólaversluninni. Sama á
við um aðra hér. Það þarf sterkar taugar
og maga til að takast á við þennan tíma.
Allt þarf að líta vel út; hillurnar verða
að vera fullar og einbeitingin á þjón-
ustunni. En við höfum mikla reynslu í
þessum efnum og kvíðum engu.“
Hvernig heldurðu að þróun kaupmáttar
verði í Englandi næstu árin?
„Það er erfitt að segja en framtíðin
verður örugglega erfiðari en undanfarnir
24 mánuðir. Vextir hafa verið að hækka
og það setur pressu á neytendur. Þetta verður án efa erfitt ár
í smásölunni og þá skilur á milli þeirra, sem þekkja sína við-
skiptavini og þjóna þeim, og svo hinna.
B A U G U R Í B R E T L A N D I
GUNNAR SIGURÐSSON
Gunnar Sigurðsson er fæddur 1969.
Hann hefur starfað hjá Baugi undan-
farin fjögur ár, var þar áður fjögur ár
hjá Íslandsbanka. Hann bjó áður í
Bandaríkjunum, vann þá hjá First Chicago
bankanum sem hefur síðan sameinast
JP Morgan bankanum.
Gunnar flutti til Bandaríkjanna árið
1991 til að fara í nám í Suður-Alabama,
en lauk síðan meistaragráðu frá Penn
State háskólanum í Pennsylvaníu.
Helsta áhugamál Gunnars er golf. Hann var um tíma í lands-
liðinu í golfi en spilar nú með fjölskyldunni. Íþróttir eru almennt
áhugamál hans, ekki síst fótbolti, og deilir þeim áhuga með
sonum sínum, Friðriki Þór sem er 14 ára og Jakobi Þór sem er
10 ára. Kona Gunnars er Jónína Waagfjörð sjúkraþjálfari sem er
um þessar mundir að ljúka meistaragráðu í heilsuhagfræði frá
London School of Economics.
Gunnar
Sigurðsson.
Gunnar var nýlega
ræðumaður í kvöldverði
á vegum fjármálablaðsins
Financial Times og
ræddi þar um mikilvægi
markaðssetningar í
rekstri fyrirtækja. Annar
ræðumaður þetta kvöld
var Stelios Haji-Ioanno,
stofnandi og eigandi
Easyjet.