Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 106
106 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
JÓLIN KOMA
G allerí List í Skipholti er elsta gallerí landsins og hefur nú þjónað list-unnendum allt frá árinu 1987 og
verður því tuttugu ára á næsta ári. Í Gallerí
List hefur verið hægt að ganga að verkum
nokkurra tuga listamanna vísum. Þangað
sækir fólk bæði til þess að kaupa gjafir og
líka eitthvað til að gleðja sjálft sig og prýða
með heimili sín.
Um þessar mundir mun nýtt listform bætast við úrval verkanna í
Gallerí List að sögn Gunnars Helgasonar framkvæmdastjóra. Ákveðið
hefur verið að selja þar ljósmyndir eftir þrjá þekkta ljósmyndara,
Friðþjóf Helgason, Jóhann Ísberg og Ragnar Axelsson, „allt landsliðs-
menn í ljósmyndun,“ segir Gunnar. „Við höfum orðið vör við það
að undanförnu að töluverð eftirspurn er eftir ljósmyndum og viljum
bregðast við óskum viðskiptavinanna með því að bjóða þeim myndir
eftir þá þremenninga.“
Gallerí List hefur verið til húsa í Skipholti allt frá upphafi, fyrst í
númer 50b, síðan 50d og nú hefur verið ákveðið að færa sig um set,
en þó aðeins að Skipholti 50a. Þar verður Gallerí List í rúmgóðu og
skemmtilegu húsnæði sem gefur færi á að sýna málverk og myndir
hangandi á veggjum í meira mæli en verið hefur til þessa. Dagsetning
flutninganna hefur þó ekki verið ákveðin enn. Enginn þarf heldur að
óttast að þótt málverkin fái meira rými en þau hafa fengið til þessa
verði það á kostnað annarra listmuna sem ævinlega hafa skipað háan
sess í Gallerí List.
Gunnar bendir á að Gallerí List leggi áherslu á að aðstoða við-
skiptavini við kaup á gjöfum. Þannig geti t.d. fyrirtæki leitað til
Gallerísins sé ætlunin að gefa starfsmönnum eða viðskiptavinum
listaverk í jólagjöf eða við önnur tækifæri. Hægt er að ákveða hvers
konar gjafir eigi að velja, myndir eða listmuni, og verðmæti þeirra en
síðan taka starfsmenn Gallerísins við og pakka þeim inn og ganga frá
til afhendingar. Þar með hefur verið valin einstök gjöf fyrir einstakan
viðtakanda. Allar gjafir eru merktar
með söludegi svo að þeir sem gjafirnar
fá geta komið og skipt innan ákveðins
tíma, vilji þeir frekar eitthvað annað í
versluninni, hvort sem það er málverk,
leirlistarverk, mynd eða skál o.s.frv.
Einstakar gjafir
GALLERÍ LIST:
fyrir einstaka vini, viðskiptamenn eða starfsfélaga
Gallerí List hefur haldið sig að mestu
við hin hefðbundnu listform, þ.e. grafík,
þrykk, vatnslitamyndir og málverk ásamt
munum úr postulíni, leir og gleri og nú
bætast svarthvítar ljósmyndir við.
Fjölbreytt úrval listmuna fæst í Gallerí List.