Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
Þið hafið líka augun á litlum fyrirtækjum, sérstaklega tískufyrir-
tækjum. Hvernig nýtið þið ykkur þær fjárfestingar?
„Já, við höfum fjárfest í nokkrum litlum tískufyrirtækjum
sem eru í spennandi þróun. Við vinnum með hönnuðinum
Matthew Williamson sem er með búð á Brutonstræti, eigum
stóran hlut í hans fyrirtæki. Önnur fyrirtæki eru PPQ sem
hefur nýlega opnað búð á Conduitstræti og svo Criminal
Clothing sem er með búð í Covent Garden. Einnig höfum
við verið að vinna með þekktum íslenskum hönnuðum eins
og Steinunni Sigurðardóttur.
Við höfum áhuga á að setja ný en lítil merki inn í House
of Fraser til að hressa upp á yfirbragðið. Um leið gefum við
litlum fyrirtækjum tækifæri til að þróast.“
Hver er markhópur House of Fraser?
„Núna er einbeitingin á yngri en 35 ára, en deildaskiptar
búðir höfða betur til þeirra sem eru 35 ára og eldri. Við
höldum áfram að höfða til yngri hópsins en höfum líka í huga
að bæta þjónustuna við eldri markhópinn sem hefur tapast
undanfarin ár. Vöruúrvalið í heimilisdeildunum er núna
meira fyrir eldri hópinn – en salan er ekki nógu góð svo að
þar er tækifæri til að gera betur.“
Hver er stefna ykkar hjá Baugi varðandi netverslanir?
„Við álítum að það liggi gríðarleg tækifæri fyrir okkur í
netverslun og hjá okkur er mikil vinna í gangi til að ryðja
okkur til rúms á þessu sviði. Eftir um 2-3 ár stefnum við á
að tíu prósent heildarsölunnar komi frá netverslun eða um 1
milljarður punda.“
Álíturðu að netverslun sé viðbót við hefðbundnar verslanir eða
tekur hún frá þeim?
„Hún er að miklu leyti viðbót þó að hún taki kannski eitthvað
frá hinum, en við óttumst netverslunina allavega ekki, heldur
sjáum í henni mikil tækifæri fyrir okkur.“
Hvernig er að reka verslanir hér í Englandi þar sem innkaup er
viðurkennd dægrastytting og skemmtun?
„Það er rétt að verslun er stór hluti í lífi fólks hér og þess
vegna nýtur smásölugeirinn líka mikillar athygli í viðskipta-
lífinu. Stór hluti af viðskiptaumfjöllun dagblaðanna snýst
um smásöluverslun. Það skapar reyndar líka mikla pressu
á verslanir að skila góðum árangri en um leið líka pressu á
skammtímaárangur. Iceland er gott dæmi um verslun sem
lét undan slíkri pressu, fylgdi kolrangri strategíu en gat ekki
snúið við því að þá vekur það neikvæða athygli. Að þessu leyti
er öðruvísi að reka fyrirtæki sem er ekki skráð á markað, þá er
auðveldara að hugsa til langs tíma.“
Baugur hefur sannarlega ekki hikað við að kaupa búðir sem
eru þekkt nöfn hér í Englandi. Er athyglissýki stefna hjá ykkur?
„Nei, við erum alls ekki athyglissjúkir, en við erum heldur
ekkert að forðast athygli. Við leitum að spennandi fyr-
irtækjum með góðum stjórnendum og hingað til hefur tekist
vel að finna spennandi fyrirtæki.
Síðan Baugur kom inn á enska markaðinn fyrir fimm
árum hefur umfjöllunin um okkur verið allt í senn góð,
jákvæð og mikil. Við höfum verið virkustu fjárfestarnir á
enska smásölumarkaðnum og markaðurinn hefur áttað sig á
hverjir við erum og lært að meta okkur sem alvörufjárfesta.
Um leið hefur umfjöllunin um okkur batnað enn frekar,
styrkst og aukist svo að ég get ekki sagt annað en umfjöllunin
um Baug sé bæði góð og jákvæð.“
Talandi um umfjöllun: Hver er skoðun þín á umfjöllun Ekstr-
ablaðsins danska um íslensku fyrirtækin í Danmörku?
„Hún hefur verið ótrúleg! Menn með penna geta auðvitað
skrifað hvað sem er en standardinn hefur sannarlega ekki
B A U G U R Í B R E T L A N D I
Baugur í Bretlandi
(Tölur í töflu eru frá 2005)
Alls starfa 65 þúsund manns hjá fyrirtækjum sem Baugur kemur að í Bretlandi
og reka þau um 3.600 verslanir. Heildarvelta fyrirtækjanna er 8,5 milljarðar
punda – eða um 1.100 milljarðar króna.
TÍSKUVERSLANIR, DEILDARSKIPTAR VERSLANIR:
Starfsmenn Velta
(Milljón Pund)
Fjöldi verslana
Mosaic, skráð á Íslandi
– safn tískubúða og skóbúða
13.000 818 1.581
MK One 3.008 132 174
Jane Norman 1.400 97 130
House of Fraser 8.000 1.010 61
SKARTGRIPIR OG ÚR:
Goldsmiths, Mappin & Webb,
Watches of Switzerland
1.930 284 195
LEIKFÖNG:
Hamleys 390 32 13
MATVÖRUVERSLANIR:
Julian Graves, Whittard of Chelsea 2.300 118 120
Iceland 20.000 1.530 760
HEILDSÖLUR:
Booker 8.327 3.100 170
Woodward 1.900 500 28
GARÐYRKJUVÖRUVERSLUN:
4.000 188 100
FASTEIGNAÞRÓUNARFYRIRTÆKI:
LXB II 14 Safnið er metið á 450
milljónir punda
Auk þessa eru í eigu Baugs Prestbury fjárfestingarsjóður og WCC Europe