Frjáls verslun - 01.10.2006, Blaðsíða 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
Markmiðið hefur verið og er enn: Að gera alltaf betur,“ segir Frank Úlfar Michelsen úrsmíðameistari, Laugavegi 15. Í verslun hans, Franch Michelsen, er að finna þekktasta
úramerki heims, Rolex, auk annarra þekktra úramerkja, s.s. Movado,
Lancaster og nú Georg Jensen. Til þess svo að svara kalli markaðarins
hefur stöðugt verið bætt við skartgripaúrvalið í versluninni.
„Það hefur komið okkur þægilega á óvart að viðskiptavinir okkar
vilja geta keypt hjá okkur skartgripi þótt sérsviðið hafi frá upphafi
verið úrin. Skartgripirnir koma frá þekktum framleiðendum á
borð við Georg Jensen í Danmörku auk annarra frá Þýska-
landi. Georg Jensen framleiðir reyndar líka úr og nú fyrir
jólin verðum við með mjög falleg úr frá þeim.
Hágæðaúr
og vandaðir
skartgripir
FRANCH MICHELSEN ÚRSMÍÐAMEISTARI:
Algengt er að fólk velji skartgripi í stíl við
úrin. Þannig kaupir kona armband úr hvíta-
gulli og gulli í stíl við Rolex-úrið sitt og þá er
gott að geta valið hvort tveggja á sama stað
hjá Franch Michelsen úrsmíðameistara.
100 ár og fjórir ættliðir
Hundrað ára afmæli verslunar Franch Michelsen úrsmíða-
meistara er á næsta leiti en fyrirtækið var stofnað árið
1909 á Sauðárkróki. Frank Úlfar Michelsen, þriðji ættliður
úrsmiðafjölskyldunnar, rekur fyrirtækið en fjórði ættliðurinn,
sonur hans Róbert, fetar óhikað í spor feðranna. Hann fer til
Neuchatel í Sviss á næsta ári til tveggja ára náms í WOSTEP
þar sem faðir hans stundaði einnig nám. Ekki er auðhlaupið
að komast í skólann sem aðeins tekur inn fjóra nema á
tveggja ára fresti. Í skólanum læra nemar að smíða hvern ein-
asta smáhlut sem í úrið fer og setja það svo saman.
Íslenskur gullsmiður smíðar fyrir okkur skartgripi og fólk getur
komið með hugmyndir sem hann fullvinnur. Smíðaðir hafa verið
mjög sérstakir gripir, jafnvel með skírskotun til náttúrunnar. Gott
dæmi um það er hringur sem hannaður var með Geysi í
huga. Hringurinn hafði stóran demant sem táknaði Geysi
en smærri demantar mynduðu dropa á brún skálarinnar.
Stórglæsilegur hringur.“
Verslunin hefur ævinlega verið þekkt fyrir vörugæði. Sér-
svið hennar er að selja mekanísk úr, s.s. Rolex, Movado, Aug-
uste Reymond og Zeno. Þau eru án rafhlöðu og mætti kalla
„græn“ úr, enda umhverfisvæn. Önnur þekkt merki m.a. eru
Swiss Military, Charmex, Seculus, Regnier Paris, Armani
og loks nýtt merki, Lancaster frá Ítalíu. „Við höfum aldrei
áður haft hátískumerki á borð við Lancaster sem eru fyrir
ungt fólk á öllum aldri. Í versluninni fæst Lancaster úr á
ótrúlegu verði, frá 49.900 kr með 54 dem. 0.46ct og allt að
289 dem. 2,28 ct demantaúr sem kostar aðeins 239.000 kr.
Þetta góða verð stafar af því að við leggjum okkur fram um
að fá allar vörur beint frá framleiðendum án milliliða.“
Hjá Franch Michelsen úrsmíðameistara fást úr við allra
hæfi, allt frá 2.000 krónum til 1,7 milljóna. Allir við-
skiptavinir fá góða þjónustu og ráðleggingar við val og kaup
á úrum og skartgripum og njóta þar þekkingar þeirra og ef
gera þarf við úr eða skartgripi.
Róbert og faðir hans Frank.
JÓLIN KOMA