Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 31
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 31
D A G B Ó K I N
DeCode. Þar var talið að ef
fram færi sem horfði hefði
DeCode fjármuni til að halda
áfram rekstri í aðeins tvö ár til
viðbótar.
Tap DeCode á fyrstu níu
mánuðum þessa árs nam 62,2
milljónum dollara, um 4,2 millj-
örðum króna, samanborið við
41,6 milljóna dollara tap á
sama tímabili í fyrra.
11. nóvember
Halldór hættur
– Höskuldur ráðinn
Hún kom talsvert á óvart fréttin
um að Halldór Guðbjarnason,
framkvæmdastjóri Visa Ísland,
hefði látið af störfum hjá fyrir-
tækinu og færi á eftirlaun.
Halldór, sem er sextugur, sagði
við fjölmiðla að hann hefði
alltaf hugsað sér að fara í fyrra
fallinu á eftirlaun. Höskuldur
H. Ólafsson var ráðinn forstjóri
í stað Halldórs. Hann kemur
frá Eimskip þar sem hann var
aðstoðarforstjóri.
13. nóvember
Pfaff-Borgarljós
aftur Pfaff
Tilkynnt var að hið 77
ára gamla fyrirtæki, Pfaff-
Borgarljós, hefði skipt um nafn
og starfaði framvegis undir
heitinu Pfaff. Það nafn er svo
sem ekki nýtt af nálinni. Undir
því heiti hafði félagið alla tíð
starfað þar til fyrir nokkrum
árum er það yfirtók Borgarljós.
Pfaff var því endurvakið með
einni styttingu.
15. nóvember
Pier 1 hækkar í
verði vegna Jákups
Jákup Jacobsen í Rúmfata-
lagernum, sem á um 10% hlut
í bandaríska húsgagna- og
búsáhaldafyrirtækinu Pier 1,
hefur haft mikinn vilja til að
yfirtaka félagið þótt hætt hafi
verið við sölu á því. Jákup fékk
í október aðgang að bókhaldi
Pier og öðrum upplýsingum um
starfsemi
félagsins.
Þegar Reuter
birti síðan
frétt um að
Jákup ætl-
aði að gera
yfirtökutilboð
í félagið hækkuðu bréf þess í
verði um 20% í einu stökki.
14. nóvember
„Þetta var
orðið gott“
Tilkynnt var þennan dag að
Axel Gíslason myndi láta af
störfum sem framkvæmda-
stjóri Eignarhaldsfélaganna
Samvinnutrygginga og Andvöku
í lok nóvember. Axel varð for-
stjóri þessara
félaga í árs-
byrjun árið
1989 og hafði
því verið við
stjórnvölinn í
tæp 18 ár.
Hann var
jafnframt for-
stjóri VÍS og Líftryggingafélags
Íslands frá stofnun þeirra - eða
þar til hann lét þar af störfum
árið 2002.
„Ég var löngu búinn að taka
ákvörðun um að vilja hætta
áður en ég yrði mikið eldri en
60-62 ára,“ sagði Axel í sam-
tali við Morgunblaðið. „Nú er
þetta bara orðið gott og ég vil
fara að snúa mér að mínum
hugðarefnum meðan heilsan er
enn góð.“
10. nóvember
STYRKJA UNICEF UM 60 MILLJÓNIR
Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar.
Það var ekki svona kalt úti. Fulltrúar UNICEF og bakhjarlanna settu upp rauða nefið.
Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og
Samskip halda áfram að styrkja UNICEF á
Íslandi, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Tilkynnt var að þau hefðu sem bakhjarlar
samtakanna skrifað undir samning upp
á 60 milljónir króna sem nær til næstu
þriggja ára. Eftir undirskriftina settu full-
trúar UNICEF og bakhjarlanna upp rauða
nefið, en þau stóðu að Degi rauða nefsins
á Íslandi.
Jákup Jacobsen Axel Gíslason.