Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
Eitt síðasta verk Axels var
að standa að kaupum félags-
ins á kjölfestuhlut í Icelandair.
Finnur Ingólfsson er stjórnar-
formaður Icelandair fyrir hönd
félagsins.
Stærsta eign eignarhalds-
félaganna er hins vegar í
Exista, en Exista á VÍS og
LÍFÍS og stóra eignarhluti í KB
banka, Bakkavör og Símanum.
15. nóvember
Marel að missa
af Food Systems
Marel er líklegast að missa af
fyrirtækinu Food Systems sem
er í eigu Stork. Marel hefur átt
í óformlegum viðræðum um
að kaupa fyrirtækið. Sagt var
frá því þennan dag að stjórn
Stork hefði hafnað samþykkt
hluthafafundar félagsins um að
skipta upp félaginu. Í fréttatil-
kynningu frá stjórn Stork var
haft eftir forstjóra félagsins
að miklir möguleikar væru á
verðmætasköpun innan Stork
en þeir fælust ekki í uppskipt-
ingu fyrirtækisins.
Engu að síður verður mjög
fróðlegt að fylgjast með þessu
máli því að það er ekki á
hverjum degi að stjórnir fyrir-
tækja hafni samþykkt hluthafa-
funda.
17. nóvember
Jón Ásgeir stjórnar-
formaður 365
Það kom verulega á óvart
þegar fréttir bárust um að
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs Group, væri orð-
inn stjórnarformaður 365.
Fannst flestum sem uppnefnið
„Baugsmiðlar“, sem Jón Ásgeir
hefur verið mjög ósáttur við,
fengi meiri vigt með hann sem
stjórnarformann félagsins.
Aðrir í stjórn 365 eru Magnús
Ármann, Pálmi Haraldsson,
Árni Hauksson og Þorsteinn M.
Jónsson.
Flestir túlkuðu þó setu Jóns
Ásgeirs í stóli formanns 365
þannig að þar væri mikið verk
að vinna við að laga rekst-
urinn.
17. nóvember
Nýr framkvæmda-
stjóri Iceland
Express
Hún kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti fréttin um að
Birgir Jónsson væri hættur
hjá Iceland Express og að
Matthías Imsland hefði verið
ráðinn í hans stað, að vísu
tímabundið. Hann er náinn
18. nóvember
MILTON FRIEDMAN – JÖTUNN Í DVERGSHAM
Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifaði
mjög góða grein í Morgunblaðið þennan
dag um hagfræðinginn Milton Friedman
sem lést tveimur dögum áður. Hannes
minntist m.a. á komu Friedmans hingað
til lands árið 1984 og um kynni sín
af honum. Við grípum hér á nokkrum
stöðum niður í greininni:
„Ég kynntist Milton Friedman fyrst í
Stanford í Kaliforníu haustið 1980, þegar
ég sótti þing Mont Pelerin-samtakanna,
sem eru alþjóðlegt málfundafélag frjáls-
lyndra fræðimanna. Hafði Friedrich von
Hayek boðið mér á þingið, en Pálmi
Jónsson í Hagkaup lagt til farareyrinn.
Ég sagði Friedman í þessu fyrsta sam-
tali okkar, að ég hefði oft orðið að verja
hann í umræðum á Íslandi. Hann sagði að
bragði: „Þú átt ekki að verja mig. Þú átt
að verja þær hugsjónir, sem við höfum
báðir.“ Sjálfur var Friedman laus við alla
áreitni í garð andstæðinga sinna. Hann
var vissulega fastur fyrir í rökræðum,
en gerði aldrei ráð fyrir, að viðmælendur
sínir stjórnuðust af annarlegum hvötum.
Hann taldi, að flestir væru sammála um
markmið, en
þá greindi á
um leiðir, og
til þess væri
hagfræðin að
leysa úr slíkum
ágreiningi...
Hagfræðin
var Friedman
skært kastljós,
sem lýsti upp
veruleikann
í kringum okkur, auðveldaði okkur að
greina afleiðingar gerða okkar og skilja...
Eftir heimsókn Friedmans til Íslands
þá um haustið urðum við samferða á þing
Mont Pelerin-samtakanna í Cambridge,
þar sem rætt var um arf Keynes lávarðar,
en Friedman hafði gagnrýnt hann um
margt, þótt hann bæri líka virðingu fyrir
honum. Má segja, að Friedman hafi
verið eins áhrifamikill á síðasta fjórð-
ungi tuttugustu aldar og Keynes um og
eftir miðja öldina. Friedman lagði meg-
ináherslu á það, að verðbólga væri alls
staðar og alltaf peningalegt fyrirbæri. Hið
sama gilti um
peninga og
aðra vöru, að
aukið framboð
þeirra að öðru
óbreyttu hefði
í för með sér
verðlækkun
þeirra.
Stjórnvöld
ættu því að
einbeita sér að
því að mynda
festu í peningamálum og ríkisfjármálum,
en láta fyrirtæki úti í atvinnulífinu sjálf
um að tryggja afkomu sína...
Friedman var mjög lágvaxinn maður,
allt að því dvergvaxinn. En þegar hann
tók til máls, heyrðu allir, að þar fór
afburðasnjall maður, andlegur jötunn.
Hann fæddist í New York borg 31. júlí
1912, sonur fátækra innflytjenda af gyð-
ingaættum, og stundaði nám í Chicago,
þar sem hann kynntist eftirlifandi konu
sinni, Rose Director, sem einnig sinnti
þar hagfræðinámi...“
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Milton Friedman.