Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 40

Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 NÝR BÆJARSTJÓRI Á AKUREYRI: TEXTI: VILMUNDUR HANSEN • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON S I G R Ú N B J Ö R K J A K O B S D Ó T T I R Í N Æ R M Y N D FLAKKAÐI UM HEIMINN Í 15 MÁNUÐI S igrún Björk Jakobsdóttir er fædd 23. maí 1966 og ólst upp í Keflavík til 15 ára aldurs. Foreldrar hennar eru Jakob Árnason húsasmíða- meistari og loðdýrabóndi og Jóhanna Krist- insdóttir húsmóðir. Hún á fjögur systkini: Ísleif Árna, Guðrúnu Sigríði, Kristin Þór og Ásdísi Ýr. ,,Ég á mjög góðar minningar frá því að ég var barn í Keflavík, átti stóra fjölskyldu, góða vini og það var gott að alast þar upp. Það er töluverður aldursmunur á okkur systkinunum, við Ásdís erum yngstar og fengum ef til vill öðruvísi uppeldi en eldri systkinin. Við unnum báðar flest sumur sem verkamenn í byggingarvinnu hjá karli föður okkar. Hann vildi að við stæðum alveg til jafns við strákana og hefur alltaf hvatt okkur systur til dáða og að krefjast jafnréttis.“ Stúdent frá Menntaskólanum við Sund Eftir að Sigrún lauk gagnfræðaskóla flutti hún til systur sinnar í Reykjavíkur og fór í Menntaskólann við Sund. Hún segir að menntaskólaárin hafi verið mjög skemmtileg og að sér hafi líkað vel við námsfyrirkomu- lagið í MS. ,,Skólinn bauð upp á bekkjakerfi og mikla nýbreytni í starfinu og nýja hugsun sem átti vel við mig. Í fyrsta bekk eignaðist ég mína bestu vini sem ég held sambandi við enn í dag. Það var mikið skemmt sér á þessum árum eins og tilheyrir menntaskólaárum, heimili okkar systra í Sigtúninu var hálf- gerð félagsmiðstöð og síðan var farið í gamla Sigtún og Hollywood. Tískan var sér á parti, pastellitaðir glansgallar og ýft hár. Satt best að segja þykir mér hræðilegt að sjá þessa tísku vera að koma aftur á „eighties“ þema- kvöldum skólanna í dag. Maður finnur ald- urinn hellast yfir sig.“ Fimmtán mánaða heimsreisa Eftir stúdentspróf 1985 vann Sigrún í tveimur til þremur störfum í eitt ár til að safna fyrir heimsreisu. Í apríl 1986 fór hún svo á heims- hornaflakk ásamt vinkonu sinni, Auðbjörgu Halldórsdóttur, sem nú er sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu. Þær þvældust um Evr- ópu, Indland, Kína, Ástralíu, Nýja-Sjáland, Fídjíeyjar og Hawaí og að lokum um þver og endilöng Bandaríkin. Reisan átti upphaflega að taka hálft ár en þegar yfir lauk höfðu vinkonurnar verið á ferðalagi í 15 mánuði. ,,Ferðalagið var okkur báðum mikil og dýrmæt reynsla sem við búum enn að og ég hef alltaf litið heiminn öðrum augum síðan. Af öllum þeim löndum sem við heim- Sigrún Björk Jakobsdóttir tekur í byrjun næsta árs við starfi bæjarstjóra á Akureyri. Hún er Keflvíkingur að uppruna, þar ólst hún upp fram á unglingsárin. Hún fer ekki troðnar slóðir, því að loknu stúdentsprófi flakkaði hún um heiminn í 15 mánuði. Sigrún hefur setið í bæjarstjórn frá 2002 og tekið virkan þátt í starfi bæjarins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á hans vegum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.