Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2006, Síða 87

Frjáls verslun - 01.10.2006, Síða 87
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 87 F yrr á þessu ári var Eggert Jóhannsson, Eggert feldskeri, kjörinn félagi í The Purple Club, sem er einn virtasti klúbbur hönnuða og sérfræðinga í feldskeraiðn í heiminum. Í The Purple Club eru rétt um hundrað félagar og segir Eggert það mikinn heiður að hafa verið valinn í þennan hóp feldskera sem hlotið hafa alþjóðlega viðurkenningu fyrir loðfeldi sína – feldi sem teljast með því besta sem býðst. Eggert feldskeri, sem er með verslun og verkstæði efst á Skóla- vörðustíg, segir að skinnavara sé mikið í tísku um þessar mundir. En tískan er auðvitað sveiflukennd. Því styrkir það fyrirtækið mjög að um 35% af veltunni koma frá viðskiptum útlendinga. Sumir hverjir gera sér meira að segja ferð hingað til að kaupa skinnavöru hjá Eggerti feldskera. „Þetta breikkar markaðinn fyrir þessa lúxusvöru. Það er svo sann- arlega gaman að geta nú hannað fyrir fólk úr völdum skinnum sem bera merki Purple Club. Það er líka ánægjulegt að hafa verið valinn í þennan félagsskap, enda er ekki mikið um alþjóðlegar viðurkenn- ingar á þessu sviði,“ segir Eggert, sem hefur rekið fyrirtæki sitt frá því árið 1977. Notar íslenskt laxaroð Á verkstæði Eggerts feldskera starfa að jafn- aði þrír til fjórir. Eggert hannar alla sínar vörur sjálfur en flytur einnig inn skinnavöru sem honum þykir falleg eða til þess að geta boðið vörur í öllum verðflokkum. Nokkuð af skinnavörunni er einnig hannað hér, saumað að hluta til erlendis en loks lokið við flíkurnar hér heima. Að sögn Eggerts eru öll skinn í tísku sem stendur. Hann nefnir þó að hann sé einn þriggja feldskera í heiminum sem saumi úr skinnum af kanadískum villimink, en gæði þeirra skinna eru mjög mikil. Eggert hefur ennfremur lagt sig mikið eftir því að vinna úr því sem kallast „Ocean Leather“ þ.e. fiskroði, og þá aðallega af laxi. Þetta er hráefni sem annars myndi vera kastað og með þessu vill Eggert styðja við sjálfbæra þróun á Íslandi og nota náttúruafurðir og hráefni sem hér býðst. Húfur sem minna á skúlptúra Loðfeldir hafa breyst mikið á und- anförnum árum og nú er saumaður alls konar hátískufatnaður úr fjölbreyttu skinnavali. Hjá Eggerti feldskera er líka mikið um húfur sem eru ekki hreinar kuldahúfur, eins og flestir þekkja þær, heldur líkjast þær meira skúlptúr og eru til að horfa á og dást að um leið og þær skýla eigendum sínum fyrir norðanstrekkingi hvort heldur er hér á landi eða annars staðar. Eggert feldskeri, alþjóðlegt merki Það fer ekki á milli mála að nafnið Eggert feldskeri hefur haslað sér völl meðal íslenskra vöru- merkja erlendis. Nafn Eggerts er þekkt erlendis og vörur hans, bæði Mokkajakkar og loðfeldir, eru komnar í fremstu röð alþjóðlegrar hönnunar á skinnamarkaði. Í hópi 100 bestu feldskera heims Á stærsta skinnamarkaði heims, Copenhagen Fur, eru seld rúmlega 16 milljón loðskinn árlega. Aðeins 0,9% fara í hæsta gæðaflokk og fá þá Copenhagen Purple Label. Skinnin fá síðan bestu feldskerar heimsins að kaupa og merkja vöruna með Purple Label. Einn þeirra er Eggert feldskeri. EGGERT FELDSKERI: Eggert Jóhannsson feldskeri hefur verið kjörinn félagi í The Purple Club.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.