Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2006, Side 125

Frjáls verslun - 01.10.2006, Side 125
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 125 Þórarinn Már Þorbjörnsson, forstöðumaður bókhaldsþjón- ustu Landsbankans, fór að æfa keilu með vinnufélögum sínum fyrir um átta árum. Félagarnir gengu síðan í ÍR og stofnuðu lið innan ÍR sem þeir kalla ÍRL; „L“ stendur fyrir „Landsbankinn“. Í dag eru fáir eftir af upprunalegu liðsmönnunum. Þórarinn keppir reglulega með félögum sínum; meðal ann- ars er haldin deildakeppni, bikarkeppni, keppni einstakl- inga og Íslandsmót. „Keila er skemmtileg íþrótt og um leið skemmtun sem þægilegt er að stunda auk þess sem hún er afslappandi. Þá er maður í góðra vina hópi. Maður sér framfarir fljótt en með smáástundun er hægt að ná sæmilega góðu skori; þeir sem fara að stunda keilu verða fljótt sæmilega sam- keppnishæfir. Keila hentar nánast öllum sem hafa áhuga.“ Þórarin dreymir um að keila verði stunduð meira hér á landi en verið hefur og að fleiri keilusalir verði opnaðir. ÚR EINU Í ANNAÐ TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl. Keila: ÍÞRÓTT OG SKEMMTUN Þórarinn Már Þorbjörnsson. „Keila er skemmtileg íþrótt sem þægilegt er að stunda, auk þess sem hún er afslappandi.“ Flest tengjum við rauða litinn við jólin; rauðar kúlur á tréð, rauð ljós og jólasveinninn er jú í rauðum fötum. En nú er orðin breyting þar á - allavega hvað varðar jólaskreytingar. Hjá Blómavali fengust þær upplýs- ingar að svart sé aðaltískulit- urinn í ár. „Svarti liturinn er flottur með öllum litum en er mikið notaður með hvítu og silfurlituðu,“ segir Ásthildur Sölvadóttir, blómaskreytir hjá Blómavali. „Hann er einnig flottur með sterkum litum eins og túrkis, bleiku og eplagrænu. Ef maður vill ekki ganga alla leið er tilvalið að blanda honum með því gamla sem maður á.“ Ásthildur segir að tískan í jólaskreytingum haldist í hendur við aðra tísku; núna sé til dæmis svart og hvítt í tísku almennt. Mikill „glamúr“ er í gangi hvað varðar skreytingarefni; mikið glimmer og pallíettur - en þetta gamla góða stendur alltaf fyrir sínu eins og kúlur, könglar, mosi, epli og náttúrulega greni. Jólaskreytingar: NÚ ER ÞAÐ SVART Svarti liturinn er í tísku í jólaskreytingum. Blómaskreytingin er frá Blómavali. Stóllinn Glove fæst í GEGNUM GLERIÐ. Hönnun: FLOTTUR OG FRUMLEGUR Patricia Urquiola hannaði þennan sérstaka, flotta og frumlega stól, Glove, sem er framleiddur hjá ítalska fyrir- tækinu Molteni & C. Stóllinn hefur einmitt vakið athygli fyrir það hve frumlegur hann er – en hann er jafnframt sígildur. Listaverkið er gert úr stálramma og segja má að stóllinn sé með lausu áklæði að eigin vali; nokkrir flokkar af leðri eru í boði, alcantara og „microfibre“ sem er þykkt, svampkennt efni. Hér á landi fæst stóllinn í versluninni GEGNUM GLERIÐ. Það ætti ekki að væsa um neinn sem fær sér sæti á þessu listaverki.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.