Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Blaðsíða 47
KÍNA í FORTÍÐ OG NÚTÍÐ
37
ar Rússa. ÞaS voru rússneskir hershöfðingjar, sem skipulögðu her
flokksins.
Dr. Sún Jat Sen var á góðum vegi með að ná yfirráðum í Kína,
þegar hann dó 1925. En eftir dauða hans hófst úlfúð milli eftirmanna
hans í Kúómíntang. Hin kínverska borgarastétt, sem náð hafði öll-
um tökum á flokknum, snerist algerlega öndverð við Kommúnista-
flokknum.
Sjang Kai Sjek varð hlutskarpastur eftirmanna Sún Jat Sen. Hann
studdist við borgarastéttina, en hafði í fyrstu bandalag við komm-
únista.
Með hjálp þeirra braut hann á bak aftur alla mótspyrnu í Suður-
kína.
Síðan lagði hann Norðurkína undir sig eftir harða og mannskæða
styrjöld. Kína var nú aftur orðið eitt ríki. Sjang Kai Sjek marskálkur
þurfti nú ekki lengur á hjálp kommúnista að halda. Sjálfur var
hann og er trúr og einlægur fulltrúi hinnar kínversku borgarastéttar,
enda sjálfur vellauðugur maður. Hann þverskallaðist því alveg við
kröfum kínversku kommúnistanna um þjóðfélagslegar umbætur.
Kommúnistar voru reknir úr Kúómíntang. í sumum borgum og
fylkjum, til dæmis Kanton, reyndu þeir að mynda sínar eigin stjórn-
ir. En Sjang Kai Sjek barði niður hreyfingu kommúnista með báli
og brandi. 1927 lét hann á einum degi hálshöggva 25 þúsund komm-
únistiska verkamenn, iðnaðarmenn og bændur á torginu í borginni
Kanton. ASeins í innri og afskekktari héruðum landsins vestan til
og norðan náðu kommúnistar völdum og stofnuðu þar kínverskt
sovétlýðveldi með bænda- og verkamannastjórn. Þar var stórjörð-
unum skipt milli fátækra bænda og iðnaðurinn settur undir eftirlit
bins opinbera.
í tíu ár átti Sjang Kai Sjek í borgarastyrjöld við kommúnistana
kínversku. En aldrei gat hann yfirunnið þá að fullu. Samtímis átti
hann í stríði við Japana um langt skeið. Japanar tóku Mansjúríu
af Kínverjum. Þá var borgarastyrjöldin í Kína í slíkum algleymingi,
að enginn hugsaði um að verja landið fyrir Japönum, sem fóru sínu
fram eftir því sem þeim þóknaðist. En yfirgangur Japana þjappaði
þó kínversku þjóðinni saman. Og þegar Sjang Kai Sjek sá, að hann
gat ekki yfirunnið bæði Japana og sovétkinversku héruðin, samdi