Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Blaðsíða 48

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Blaðsíða 48
38 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hann frið við kínversku kommúnistana, gerði bandalag við þá, og hófst þá á nýjan leik styrjöld milli Kína og Japan, sem geisaði í 8 ár. Þegar svo heimsstyrjöldin hófst, gerði Sjang Kai Sjek bandalag við vesturveldin og Rússland. Sjang Kai Sjek átti lengi við ramman reip að draga. Japanar höfðu á tímabili helming landsins á valdi sínu, og nokkur hluti Kínverja, einkum stórjarðaeigendur í Norður- kína, börðust með vopn í hönd með Japönum. En nú hafa Japanar verið gersigraðir og hraktir burt úr landinu. Meira að segja Man- sjúría er aftur orðið kínverskt land. En framtíð Kínverja er þó mjög á huldu. Kína er land mikilla mótsetninga, þar er mikill auður og mikil örbirgð. Meginhluti Kinverja eru friðsamir akuryrkju- menn, smábændur, sem strita frá morgni til kvölds. Margir þeirra eru leiguliðar, sem verða að láta allt, sem þeir geta við sig losað, til landherranna. Hinn kínverski landaðall er að vísu ekki auðugur í vestrænum skilningi, hann skortir fjármagn. En hann hefur þó landeignir sínar og fornt álit að verja, og gerir það með kjafti og klóm. En í Kína er voldug bændahreyfing, sem vill afnema land- skuldir og leiguliðakjör. Hin fjölmenna sjálfseignabændastétt í Suðurkína er þó tæplega áköf með í þessari hreyfingu, hún hefur svo lengi búið að sínu. í borgum landsins er stéttaskipting mjög djúp. Þar er mikið af láglaunuðum sveltandi öreigalýð. Þar er fá- menn millistétt smákaupmanna og handverksmanna. Og þar er auð- ug yfirstétt borgaralegra iðnrekenda, bankaeigenda og stórkaup- manna. Meðal þessa fólks á Sjang Kai Sjek sína tryggustu fylgis- menn. Drottinn þekkir sína, segir gamalt máltæki. En Sjang Kai Sjek er ekki aðeins auðmaður, atvinnurekandi, mar- skálkur og ríkisstjóri í Kína, hann er líka stórjarðaeigandi. Enda þótt hann sé fulltrúi kínversku borgarastéttarinnar, þá er hann ýms- um böndum bundinn landaðlinum, þeirri stétt, sem kommúnistarnir kínversku berjast mest á móti. Það hefur aldrei gróið um heilt milli Kúómíntang og kommúnista. Það þarf ekki mikið til að ýfa upp gömul og sollin sár. Kína ligg- ur í rústum eftir allar þær styrjaldir, sem yfir það hafa gengið undanfarna áratugi. Margar af borgum þess hafa verið lagðar í rústir. Stór svæði, sem áður hafa verið blómleg, eru nú í auðn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.