Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Blaðsíða 60
50
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Þá skulum við aftur snúa okkur að fólkinu, sem við yfirgáfum á
hinum tilvonandi eyðijörðum.
Enginn nema guð veit, hve sá hópur kemur til með að verða
fjölmennur. En við verðum að gera ráð fyrir, að með ítarlegri
reglugerð, sem fyrrgreind rannsókn yrði framkvæmd eftir, verði
gerðar allstrangar kröfur um þaÖ, að ekki skuli lagt út í stórfram-
kvæmdir á jörðum, sem tvísýnt þykir, að eigi sér varanlega fram-
tíð.
Jafnhliöa ræktun hinna einstöku býla, sem að framan er lýst,
lætur ríkið rækta samfelld hverfi og reisa þar býli. Þangað flytur
svo fólkið frá afdölum og annesjum, þegar fylling tímans kemur,
og eigi síðar en hin dreifðu býli verða fullræktuð. Mun þá sannast
á hinu nýja landnámi hið fornkveðna: „Þar munu lýðir löndum
ráða, þeir er útskaga áður byggðu.“
Stærð hins nýja landnáms verður við það miðuö, að allir þeir,
sem þurfa og vilja komast þangað af þriðja flokks jörðunum, eigi
þess kost, og það verður að búa svo um hnútana, að þeir eigi tví-
mælalausan forgangsrétt að því.
Að sjálfsögðu verður ríkið að rækta og hýsa þessi býli að svo
miklu leyti, að það verði fátækum bændum ekki ofvaxiö að reka
þar búskap.
í sumum tilfellum myndi fólkið ekki þurfa að flytja burt úr sveit
sinni. Víða eru jarðir í opinberri eigu, sem eru prýðilega fallnar
til ræktunar, eins og t. d. mörg prestsetur. Myndi þá geta komið
til mála, að reisa byggðahverfi þar handa því fólki, sem yfirgæfi
þriðja flokks jarðir þeirrar sveitar.
Trúlega myndi það koma upp úr kafinu við fyrrnefnda rannsókn,
að heilar sveitir yrðu dæmdar úr leik. Þá myndi því fólki, sem þar
byggi, blátt áfram verða boðið upp á aðra sveit, alskapaða og í
heilu lagi, þar sem það gæti byrjað annað líf í þessu lífi.
Þannig myndum við skipuleggja ræktunina alla í einu lagi, bæði
dreifbýli og þéttbýli. Við gerum áætlun um hana, t. d. til tíu ára
og fylgjum henni fast eftir. En áður en við hefjumst handa, verð-
um við að rannsaka nákvæmlega, hvar við eigum að rækta, og hvar
við megum ekki rækta, hvar við ætlum að rækta einstakar jarðir
og hvar við ætlum að rækta samfelld hverfi.