Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Page 110
100 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR um jurtum, en ekki fyrir þá „sérfræðinga", sem leggja aðaláherzlu á að sjá eitthvað ljótt og misheppnað í öllu. Eg nenni ekki að deila við Guðna um orðamun eins og „gráertur — fóður- ertur“, því að sennilega á hann við annað afbrigði en ég af sömu deiltegund, en það er óþarfi fyrir hann að reyna að kenna mér muninn á þessum deil- tegundum. Og þótt „umritunin" á orðunum „venjulegast — oftast", „helm- ingi — tvöfalt", „meira eða minna — mikið eða lítið“ o. s. frv. sé ekki ætíð frá mér, fremur en „háblöðóttur — blaðhár", kæri ég mig kollóttan um „skrítlur" hans í sambandi við þær. Og ég efast ekki um, að mál- fræðingurinn, sem á bak við þær stendur, kann riióðurmál okkar betur en við Guðni báðir. Aðrar málfræðilegar athugasemdir kæri ég mig ekki heldur um að elta ólar við, hvorki það, að orðið „hafrar" er ekki til í eintölu, þótt það sé svo í „Flóru Islands", né hitt, þegar Guðni setur hið góða og alþekkta íslenzka orð „íðorð“ í samband við „handíðir“ einar. Ekki er það mín sök. að hann læzt ekki vita, að íslenzka orðið „jurt“ þýðir hið sama og danska orðið „Plante". Og þótt hann vilji telja fólki trú um, að hann viti miklu meira en ég í grasafræði, er honum ekki kunnugt um, að æxlikorn geta ýmist verið blaðgróin eða ekki, og svo leggur hann mér það til lasts, að ég skuli vita þetta! Þótt Guðni fullyrði við skrifborð sitt, að enginn geti haft gagn af þessari frámunalega lélegu bók og lýsingum hennar á íslenzkum jurtum, sögðu fjöl- margir alþýðumenn mér í haust bréflega og munnlega, að þeir hefðu þá þegar liaft meiri not af henni en Flóru Islands, sem ætíð hefur verið strembin fyrir alþýðu manna. Guðni Guðjónsson gerir sér far um að sannfæra fólk um, að ekki séu einu sinni myndirnar í „íslenzkum jurtum" nothæfar, enda er öll greinin sett saman með þeim ásetningi einum, að sletta óþverra á hverja síðu bókarinnar eigi síður en á höfund hennar. Alþýða manna ætti að bera þær saman við mynd- irnar í Flóru Islands, sem Guðni hælir svo mjög, sem og við jurtirnar úti í náttúrunni. Allmargar myndanna í minni bók eru algerlega nýjar og teiknaðar eftir íslenzkum eintökum, sumar eru breyttar eftir íslenzkum eintökum, sem til eru í safninu í Osló, en aðrar eru eftir norskum tegundum. Johannes Lid, safn- vörður í Osló, er miklu betur kunnugur íslenzkum jurtum en Guðni er, því að hann hefur íerðazt hér á landi tvisvar og safnað miklu. Og hann bar mynd- irnar og íslenzku eintökin saman, alveg eins og ég gerði sjálfur, áður en mót voru gerð af þeim. Myndin af Juncus bufonius var. ranarius er af afbrigðum, en ekki af aðaltegundinni, þótt Lid hafi ekki séð ástæðu til að taka það fram í sinni bók. Og livað sem kunnáttu Guðna í grasafræði líður, er mynd númer 118c af Matricaria maritima var. phaeocephala. Þar að auki eru myndimar af Gentiana campestris og G. Amarella af sömu deiltegundum og finnast hér- lendis, þótt láðst hafi að geta þess undir þeim. En eintökin eru tekin í fjöllum Noregs, enda er ekki hægt að skilja á milli eintaka þaðan og héðan, að því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.