Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Page 15
Tím-arit Máls og menningar í túninu var aldraður maður á gángi, lotinn nokkuð og reikaði hægt um. Þjóðskáld Íslendínga var á gaungu um sitt heimatún einsamall í síðslægjunni. Þess munu fá dæmi að skáldið og verk þess séu svo samrýmd að þar verði varla á milli greint, en maðurinn Davíð Stefánsson verður ekki skilinn frá ljóðum sínum, fremur en þau frá manninum. Úngur gáfumaður sagði eitt sinn að menníng væri meðal annars það, hvern- ig maður tæki í hönd góðum félaga. Fáir munu átt hafa til hlýrra handtak en Davíð Stefánsson. Mörgum verða trúlega undrunarefni hin skjótu áhrif Davíðs og fljótfeingnu vinsældir. Til skilníngs á því þarf fyrst og fremst kunnugleik á þeim tíma er hann kom fram. Því lýriska tillfinníngaskeiði er Þórbergur hefur lýst meist- aralega og nokkra þekkíngu á manninum sjálfum og uppruna hans. Eyfirzk skapgerð hefur hvergi birzt svo nakin á sviði. Við höfðum að vísu áður eign- azt skáld er ortu í svipuðum tón og ber þar einna hæst Stefán frá Hvítadal, en þrátt fyrir Stefán var koma Davíðs eins og endurlausn, eins og fyllíng draums. Hljóðfæri hans var ekki nýtt, en grip hans fersk. Það var meiri hljómur í streingjunum, og þennan hlj óðfæraleikara grunaði einginn um fals eða græsku. Hann fann til. Lögin, sem hann saung voru sönn, áttu allt sitt í honum sjálfum. Hann boðaði lífsnautn hins hverfula augnabliks. Gleðin er til, en sorgin og dauðinn á næsta leiti. Hann þekkti veðrin í manneskjunni og skildi þau. Ekki skipaði hann sér í fylkingu. Tók ekki virkan þátt í félagslegri rétt- indabaráttu samtíma síns, en fátækir og smáir áttu samúð hans. Fólkið hug hans. Elskendur og syrgjendur hjarta hans. Til munu þeir er geta gamnað sér við að finna smíðisgalla á skáldskap Davíðs, ekki sízt í fyrri bókum hans, enda var hljómurinn honum tamari en lógísk hugsun, saungurinn hugfólgnari en ákveðinn mótaður boðskapur. Skáldskapur hans meiri tj áníng en íþrótt. Davíð Stefánssyni hlotnaðist sú gæfa að vera skáld sinnar kynslóðar, þeirr- ar er fyrst gat um frjálst höfuð strokið á íslandi eftir aldalánga kúgun. Þessa kynslóð dreymdi stórt. Hún taldi sig borna til mikilla hluta og lifði merki- legan tíma. Draumar kynslóðarinnar eru mikill aflvaki í Ijóðum Davíðs, og þar fann hún þá búna orðum og hlj ómi. Gripið mun verða til skáldskapar Davíðs Stefánssonar af margskonar til- efnum leingi vel, en það er trú mín að þrátt fyrir allt muni Davíð Stefánsson fyrst og fremst lifa sem saungvasmiður. Hlýr og hressilegur mun hann um lánga framtíð ylja alþýðufólki, er það lyftir sér upp frá önnum og gerir sér dagamun. Laung stund mun líða og margt hreytt áður en þessir saungvar 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.