Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Síða 36
Tímarit Máls og menningar
forfaðir minn hafi viljaS kasta gulli sínu og silfri yfir höfuSiS á þíngheimi
viS Oxará þegar hann varS gamall. Honum var meinaS þaS og þá sökti hann
því í pytt. Þetta hefur veriS greindarmaSur.
Hvernig er hægt aS græSa fé sem þarf til aS geta boSiS heim símaskránni?
spyr ég.
Á buxnapressun, svaraSi maSurinn. Því miSur.
Því miSur?
Já, sagSi hann. Ég gat ekki aS því gert. Ég var svo heimskur aS ég gat ekki
lært til skraddara einsog til stóS. Þeir sögSu ég bískæri hverja pjötlu. Og ég
slasaSi mig á nálinni. Þeir kendu mér aS pressa buxur af því ég hafSi ekki
gáfur í meira.
SitthvaS hafiS þér nú lært meSan ])ér voruS aS pressa allar þessar buxur,
ekki trúi ég öSru, segi ég.
Ég hef lært aS veröldin hefur einn kost, sagSi maSurinn. Og hann er sá aS
hún gerir aungan mann vitrari í dag en hann var í gær.
GuS er altaf jafnstór, sagSi konan.
Til hvers eruS þér kominn í þessa borg, spyr ég.
ÞaS var hér sem ég lærSi buxnapressun, segir hann. Ég er kominn aS sækja
flautabollann einsog gamla fólkiS sagSi. Ég pressa allar buxur ókeypis fyrir
þá á hótelinu i dag.
Þarf ekki buxnapressari aS spara leingi til aS hafa uppí svona veislu, segi ég.
ViS höfum einlægt lifaS í allsnægtum, sagSi maSurinn.
Ævinlega haft fisk og kartöflur, bætti frúin viS.
Framanaf var efst í okkur aS láta afgángsaurana oní klósettiS, sagSi
buxnapressarinn. Þá göbbuSu þeir mig til aS láta þá í sparisjóS og fá
vexti. Og þegar þeir voru orSnir í vandræSum meS þetta í sparisjóSnum
þá sögSu þeir aS ég skyldi fá mér lögfræSíng og setja þetta í hús. Þeir
sögSu aS fólk vantaSi einlægt hús. En þegar ég var búinn aS kasta peníngun-
um í hús, þá tók í hnúkana. Fyrst tvöfölduSust þeir, síSan tífölduSust þeir,
þarnæst hundraSfölduSust þeir og loksins þúsundfölduSust þeir. Altaf komu
meiri og meiri hús fyrir peníngana og meiri og meiri peníngar fyrir húsin.
Einusinni vissi ég ekki fyren lögfræSíngurinn kemur til mín meS tuttugu og
fimm nýa amríska bíla, — og ég sem hafSi aldrei stigiS uppí bíl! HvaS á ég
aS gera viS þessa bíla góSi maSur, segi ég. Þú hefur feingiS þá uppí hús,
segir hann. Þó var þaS ekkert hjá því þegar þeir komu meS stórskip og sögSu
aS ég ætti þetta og annaS væri á leiSinni.
Já þaS hafa veriS mikil vandræSi hjá okkur alla tíS, sagSi konan. Þessar
26