Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Page 66
Tímarit Máls og menningar
vitni. Fyrir 30 árum voru vandamál-
in tiltölulega einföld. Ekki þurfti ann-
að en að hinir fátæku tækju upp bar-
áttuna gegn hinum ríku, þeir voru
kapítalistarnir og mistök þeirra voru
hverjum manni augljós.
Nú, á sjötta tug aldarinnar, er bar-
áttan miklu erfiðari. Nú verður ekki
hj á því komizt að menn af öllum stig-
um þj óðfélagsins snúi geiri sínum
ekki einungis gegn erindrekum hins
þögla lögregluríkis, heldur einnig
gegn eigin fordómum, úreltum hug-
myndum og ótta, sem varnar þeim að
horfast í augu við veruleikann og
bregðast við honum af fullu raunsæi.
Bandaríska þjóðin verður að finna
leið til þess að heimta þann rétt að
mega taka pólitískar ákvarðanir og
taka ábyrgð á þeim, og til þess að
ráða stefnunni á öllum sviðum þjóð-
lífsins — jafnt í utanríkismálum,
vinnumálum, fræðslumálum, kyn-
þáttamálum og félagsmálum. Sú bar-
átta, sem framundan er, er barátta
fyrir því að taka hið pólitíska vald úr
höndum fárra og fá það í hendur
margra. En til þess að koma þessu
valdi í hendur margra, verður óum-
flýjanlegt að hinir mörgu heyi ekki
einungis baráttu við hina fáu, heldur
einnig innbyrðis.
Gísli Ólafsson þýddi.
56