Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Side 68

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Side 68
Tímarit Máls og menningar — Vegspotti! Vegstúfur! ... — ávarpaði hvít dúfa Hvíta veginn, en hvíti vegurinn daufheyrðist. Hún vildi að hann gæfi sér sál Meistarans, sem lækn- ingu gegn draumum. Dúfur og börn þjást af þessum sama sjúkdómi. — Vegspotti! Vegstúfur! ... — ávarpaði Rauða veginn rautt hjarta, en Rauði vegurinn daufheyrðist. Hjartað vildi dreifa huga hans, svo vegurinn gleymdi sál Meistarans. Hjörtun, líkt og þjófarnir, skila ekki gleymdum hlut. — Vegspotti! Vegstúfur! ... — ávarpaði Græna veginn grænn forsælu- runni, en Græni vegurinn daufheyrðist. Runninn vildi að sál Meistarans létti á skuld hans við laufþykkni og skugga. Hversu mörg tungl héldu vegirnir áfram göngunni? Hversu mörg tungl héldu vegirnir áfram göngunni? Sá léttfættasti, Dökki vegurinn, sá sem enginn ávarpaði á göngunni, áði í borginni, hélt yfir torgið, og í markaðshverfinu seldi hann hlut af sál Meistar- ans kaupmanni Ómetanlegra skartgripa fyrir örskamma hvíld. Þetta var stund hvítu kattanna. Allsstaðar voru þeir á þeytingi. Rósabeðin stóðu undrandi! Skýin líktust þvotti á stögum himinsins. Óðar en Meistarinn vissi gerðir Dökka vegarins tók hann aftur á sig mann- legt gervi, steig úr plöntulíkinu í lækjarsprænu, sem óx undan roðnandi mána líkum möndlublómi, og skundaði til borgarinnar. Eftir sólarhringsferð náði hann dalnum við fyrstu mörk kvöldskugganna, þegar féð var rekið úr hjásetunni. Hann ávarpaði smalana, sem svöruðu spurningum hans einsatkvæðisorðum, kindarlegir á svipinn líkt og andspænis húmvofu, vegna græna dragkyrtilsins og rauðbirkna skeggsins. í borginni hélt hann í sólsetursátt. Menn og konur komu saman umhverfis almenningsvatnsbólin. Bunan sendi frá sér smelli kossa, þegar vatnið fyllti krukkurnar. Og með handleiðslu skugganna fann hann í markaðshverfinu hlut af sál sinni seldan af Dökka veginum kaupmanni Ómetanlegra skartgripa. Brotið varðveitti hann á botni kristalskistils með gulllæsingum. Umsvifalaust veik hann sér að Kaupmanninum, sem reykti úti í horni, og bauð hundrað mæliker perla í brotið. Kaupmaðurinn brosti að einfeldni Meistarans. Hundrað mæliker perla? Nei, hans skartgripir voru ómetanlegir! Meistarinn hækkaði tilboð sitt. Kaupmenn þrauka unz mælir þeirra fyllist. Hann vildi gefa honum smaragða stóra sem maískorn, hundrað dagsláttur, heilt stöðuvatn smaragða. Kaupmaðurinn brosti að einfeldni Meistarans. Stöðuvatn smaragða? Nei, hans skartgripir voru ómetanlegir! 58
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.