Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Qupperneq 110

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Qupperneq 110
Tímarit Máls og menningar síða að lengd, og gegnt þeim á opnu eru 100 ljósmyndir af minjunum, sem um er fjallað. „Þetta er alþýðlegt kynningarrit um Þjóðminjasafnið, einstök dæmi, sem eiga að koma fróðleiksfúsum lesanda á bragðið," segir Eldjám í formála. Hér mætti bæta því við, að bókin er engu síður alþýðlegt kynningarrit á mikilvægum þátt- um íslenzkrar menningarsögu. Gripirnir, sem greint er frá, eru valdir að nokkru með hliðsjón af því, hvenær þeir bárust safninu. Fyrsti þátturinn er um haugféð frá Baldursheimi, fyrstu gripina, sem safnið eignaðist, en sá 100. um guð- spjallamenn frá Staðarhóli, en þeir bárust Þjóðminjasafninu 1962. Þessi röðun hefur það í för með sér að efni bókarinnar verð- ur tætingslegt, miðaldagripir lenda í nábýli 17. og 18. aldar minja og víðsfjarri ættingj- um sínum. Skálahurðin frá Valþjófsstað hefur sér á aðra hönd Nikulásarkaleik frá Odda, en silfursjóðinn frá Gaulverjabæ á hina, en þættir um fornan tréskurð eru víðsfjarri. Steinþró Páls biskups rekur horn upp úr kirkjugarðinum í Skálholti næst á undan rennismiðju austan úr Öræfum, en þá kemur útsaumuð altarisbrún frá Sönd- um í Dýrafirði. Það er m. ö. o. ekkert „syst- em i galskabet" nema ef vera kynni að það opinberaðist í því að keraldi úr Dölum og Snorralaug í Reykholti er stillt saman. Eldjárn er maður listfengur og hefur næmt auga fyrir samræmi hlutanna. Sýn- ingarsalir Þjóðminjasafnsins bera vitni um næma smekkvísi og trausta þekkingu hús- ráðanda. Hann mundi telja það fráleitan afkáraskap að raða gripum þar í tímaröð eftir aðfangaskrám safnsins. Þótt úrtak gripa til kynningar væri valið eftir því, hvenær hlutimir bárust safninu, og reynt væri á þann hátt að vekja hugboð um vöxt þess, þá var jafnsjálfsagt að fella þá í menningarsögulegan ramma, en tína þá ekki fram af einhvers konar handahófi. Myndaþættir Eldjárns minna mig á, að eitt sinn missti prentari niður satsinn að kvæði eftir Jónas Hallgrimsson. Línumar rugluð- ust, og honum tókst miður hönduglega að raða þeim saman að nýju. Einhver ósnjall- ur maður virðist hafa hrært í gullakistu þjóðminjavarðar að þessu sinni. Sá hræri- grautur varpar auðvitað engri rýrð á grip- ina, og vel tekst Eldjárni sem áður að rita um þá, lýsa þeim og rekja sögu þeirra. Myndaþættir Eldjárns eru frábærlega vel ritaðir. Höfundur segist hafa reynt að grípa niður á sem flestum sviðum og forðast eftir megni að skrifa marga þætti um náskyld efni. Islenzk alþýðulist, handíðir, verk- menning, húsakynni og íslenzkar söguhetj- ur horfinna alda stíga fram af síðum bók- arinnar. Grundarstóllinn, lágur, breiður. al- settur myndskurði birtist á einni opnunni. Sessan er bæld, eins og hústrú Þórunn hafi brugðið sér frá meðan myndin var tekin. Hér bregður fyrir handaverkum höfuðsnill- ingsins Iljalta Þorsteinssonar í Vatnsfirði, grafskrift séra Snorra Björnssonar á Húsa- felli, myndskurði Bólu-Hjálmars og fjölda gripa úr heiðni og kaþólskri kristni. Ein- hverjir ágætustu gripir í eigu Þjóðminja- safnsins eru altarisklæði frá miðöldum saumuð með svonefndum refilsaum. For- mæður okkar voru frábærar hagleikskonur og lofa varðveitt verk þeirra meistarana. Um hvem grip ritar Eldjám eina síðu, hvorki meira né minna nema á eitthvað þremur blöðum, þar sem myndin fylhr ekki síðu; þar ritar hann lengra mál. Þótt hverj- um myndaþætti sé skorinn stakkur á þenn- an hátt, þá verður þess hvergi vart í textan- um; hann er hvorki ofhlaðinn, þjappaður né teygður. Hann er afburða skýr og glögg- ur gæddur yl og dálítilli kímni. Gísli Gestsson safnvörður hefur tekið meginþorra myndanna í bókinni, og eru þær allar góðar og margar frábærar. Lit- myndir Mats Wibe Lund em mikið augna- 100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.