Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Page 111
yndi. Minjaþættirnir eru höfuðatriði bókar- innar, en hún hefur einnig að geyma greinagóða ritgerð um Þjóðminjasafnið og sögu þess eftir Kristján Eldjám. Hvar sem ég fletti, við eymm mér ólguðu og sungu uppsprettulindir og niðandi vötn minnar tungu, segir Jón Helgason, er hann fer undrandi um bókanna raðir á Árnasafni. Á Þjóð- minjasafninu stöndum við nær uppsprettu íslenzkunnar en á nokkmm öðrum stað utan hins stríðandi mannlífs. Þar birtist okkur önn og leikur kynslóðanna, sem byggt hafa þetta land um aldir; þar er bezt skráð list- fengi þeirra og verkmenning. Bókin, Hundr- að ár á Þjóðminjasafni — er eins konar skuggsjá, sem veitir sýnir aftur í aldir. Björn Þorsteinsson. Hafnarstúdentar skrifa heim að er kunnara en frá þurfi að segja hvem þátt íslenzkir Hafnarstúdentar áttu í sögu lands síns á 19. öld. Bréf þeirra eru því mikil fróðleiksnáma þeim sem kynn- ast vilja þessu umbrotaskeiði íslenzkrar sögu, og er óhætt að fullyrða að færra en skyldi hefur komizt á prent af þeim bréf- um sem varðveitt eru; óprentuð bréfasöfn frá 19. öld eru mikil að vöxtum, bæði hér á landi og í erlendum söfnum, en flestum er erfitt um vik að hagnýta sér þau. Finnur landsbókavörður Sigmundsson hefur gert ís- lenzkum lesendum mikinn greiða með út- gáfum sínum á íslenzkum bréfum; enda þótt þar hafi venjulega verið um sýnishom eða úrval en ekki um vísindalega útgáfu að ræða, þá hafa bréfasöfn hans dregið fram mikið efni sem áður var fáum eða engum kunnugt, svo og orðið órækur vitnisburður Umsagnir um bœkur um það hvers vænta má í bréfasyrpum lið- inna kynslóða. Þetta úrval af bréfum Hafnarstúdenta er bundið við tvö tímabil, eins og titillinn sýn- ir;1 hvort þeirra nær yfir röskan áratug, og tengsl milli þeirra eru nær engin, nema ef telja má að Rasmus Rask kemur nokkuð við sögu í báðum: í fyrri þættinum ber nokkuð á góma deilu Baldvins Einarssonar við Rask og þau tíðindi sem af henni spunn- ust, í síðara hlutanum em birt allmörg bréf um Rask-hneykslið svonefnda, ólætin út af kvæði Þorsteins Erlingssonar sem ort var á aldarafmæli Rasks. Annars em þessi bréf sýnilega vabn þann- ig að þau séu nokkurt sýnishom af daglegu lífi stúdenta, vandamálum þeirra og við- horfum til samtíðarinnar, svo og dómum þeirra um samtíðarmenn, og er þar ósjald- an kveðið óvægilega að orði eins og ung- um mönnum er títt, og dómarnir ekki ein- lægt rökstuddir svo sem sumum myndi þykja heppilegt. En bréfin eru ekki skrifuð með það í huga að þau kæmust nokkum- tíma á prent, og sýna okkur oftast nær hug- arfar bréfritara þá stundina sem bréfið varð til, og má oft draga af því ýmsan lærdóm, enda þótt allur sannleikurinn komi ekki fram í bréfinu. Þannig er t. d. ekki ófróðlegt að sjá hvernig Magnús Stephensen kom Þorsteini Helgasyni fyrir sjónir í Kaupmannahöfn 1825—26. Þorsteinn lýsir hégómaskap Magnúsar með öllu hlífðarlaust og dregur hvergi af, og er ólíku saman að jafna þeg- ar hann lýsir Steingrími Jónssyni biskupi og skiptum hans við tignarmenn í vígslu- förinni. En margt bendir til að álit Þor- steins á Magnúsi hafi verið býsna almennt 1 Ha/narstúdentar skrifa heim. Sendibréf 1825—1836 og 1878—1891. Finnur Sig- mundsson bjó til prentunar. Bókfellsútgáf- an 1963. 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.