Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 33
Saga og form I Það fyrsta sem margir sósíalistar virðast spyrja sig þegar þeir fást við bókmenntir er „Hvað er á bak við textann?", „Hvað meinar höfundur eiginlega?“, og verður bókmenntakönnun þeirra þá öðru fremur hug- myndarýni, þar sem litið er á skáldskapinn sem ,yfirborð’ sem höfundur notar til að dylja skoðanir sínar. Leitað er að samfélagsmynd tiltekins verks og hún borin saman við þjóðfélagsmynd marxismans (tilraunir til að skýra bókmenntir út frá ytri aðstæðum höfundar eru ekki ,marxískar’ í sjálfu sér, og sumar eldri en marxisminn). Mælikvarðinn á gildi verksins, hvort það er framsækið eða ekki, verður hversu ,rétta’ mynd það gefur af samfélaginu. Fræðimaðurinn reynir að standa höfund að verki: „Ha! Þarna náði ég þér, nú misstirðu út úr þér smáborgaraleg afturhaldsviðhorf!“, skrifar síðan sigrihrósandi grein um hvað höfundur sé í raun og veru að fara með verki sínu. Við lestur sumra ritgerða af þessum toga vaknar sú spurning hvort ekki sé hægt að tölvuvæða þessa vinnu, verkin fara öll í gegnum sömu hakkavélina sem, eins og slíkra véla er háttur, skilar þeim öllum í sama ásigkomulagi. Þetta er auðvitað ekki sérmarxísk tilhneiging, hennar hefur líka orðið vart í sálfræðilegri bókmenntarýni (einkum hjá bandarískum freudistum) og í kvennabókmenntafræðum. Höfundurinn er afhjúpaður, en lesandinn situr eftir með undarlega tómleikatilfinningu. I þessum tilvikum eru bókmenntirnar skoðaðar einsog hver önnur hug- myndafræði, ídeólógía. Þetta er vandmeðfarið og sjálfsagt ofnotað orð. Marxistar nota hugmyndafræði oftast í merkingunni blekking, fölsk vitund um samfélagið og stöðu fólks í því, hafandi í huga fræg orð Marx: „Ríkjandi hugmyndir á hverjum tíma eru hugmyndir ríkjandi stéttar."3 En þegar Marx með síðar margtuggnum orðum kallaði trúarbrögðin ópíum fólksins var ópíum algengt lækningalyf, það deyfði sársauka, og hann nefndi þau í sömu andrá kveinstafi hinna kúguðu, hjarta hjartalausrar veraldar; ríkjandi hug- myndafræði verður að vera í einhverju samræmi við daglega lífsreynslu fólks. Það má skilgreina hugmyndafræði sem meira eða minna röklegt kerfi til skilnings á heiminum, sem inniheldur óröklega þætti og eyður sem rætur eiga að rekja til efnislegra hagsmuna höfunda eða viðtakenda hennar.4 Ut frá slíkri skilgreiningu er auðvitað hægt að leita að hugmyndafræði tiltekinna bókmenntaverka, samfélagsmynd þeirra og söguskilningi. Það er til dæmis hægt að finna mikilvæga drætti hálffasískrar hugmyndafræði í sumum verkum Hamsuns. En í bestu verkum hans er þessi hugmyndafræði brotin upp, þau eru full af róttækum efa. Góð skáldverk eru annað en „meira eða minna rökleg kerfi til skilnings á heiminum". 151
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.