Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Side 21

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Side 21
Fimm sögur meðal fólksins — þegar ég þetta kvöld þreif öllum að óvörum brennivínsflösku sem einhver hafði í gáleysi skilið eftir fyrir utan búrið mitt, dró úr henni tappann með hárréttu handbragði meðan athygli samkomugesta fór stöðugt vaxandi, bar stút að vörum og teygaði hana óhikað og svikalaust í botn án þess að gretta mig, líkt og þaulvanur drykkjumaður, og ranghvolfdi augunum þegar freyddi um kverkarnar. Síðan kastaði ég flöskunni frá mér, að þessu sinni ekki eins og ráðvillingur heldur eins og listamaður; gleymdi að vísu að strjúka vömbina; en þess í stað, af því að ég réð ekki við það, af því að það varð að fá útrás, af því að skilningarvit mín ólguðu, þá öskraði ég stutt og laggott „Halló!“ með mennskum hljóðum. Með þessu hrópi stökk ég inn í mannasamfélagið og mér fannst bergmál fólksins: „Heyrið, hann talar!“ vera eins og koss á allan svitastokkinn líkama minn. Eg endurtek: mér fannst ekkert freistandi að líkja eftir mönnun- um; ég líkti eftir þeim vegna þess að ég leitaði að leið og af engri annarri ástæðu. Þessi sigur minn dugði líka skammt. Röddin brást mér strax aftur; mánuðir liðu áður en ég fékk hana á ný; andúðin á brennivínsflöskunni varð meira að segja magnaðri en nokkru sinni. En hvað sem því leið var stefna mín endanlega mörkuð. Þegar ég var látinn í hendur fyrsta tamningamanninum í Hamborg gerði ég mér fljótlega grein fyrir því að ég hafði tvennt um að velja: dýragarð eða fjölleikahús. Ég hikaði ekki. Ég sagði við sjálfan mig: legðu þig allan fram um að komast í fjölleikahúsið; það er undan- komuleiðin; dýragarður er aðeins nýtt rimlabúr; ef þú lendir þar ertu glataður. Og ég lærði, herrar mínir. Æ, maður lærir þegar maður verður að gera það; maður lærir þegar maður þarfnast undankomuleiðar; mað- ur lærir skilyrðislaust. Maður sveiflar svipunni yfir sjálfum sér; maður flær hold sitt við minnsta mótþróa. Apaeðlið ruddist burt úr mér með offorsi og hvarf svo að fyrsti kennari minn varð sjálfur næstum apalegur af þessu öllu saman, hann varð brátt að hætta kennslunni og var fluttur á heilsuhæli. Til allrar hamingju komst hann fljótlega þaðan aftur. En ég sleit mörgum kennurum, já, meira að segja nokkrum í einu. Þegar ég var orðinn öruggari um færni mína og yfirvöldin fóru að sýna áhuga á framförum mínum og þegar framtíðin var byrjuð að 251
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.