Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Side 44
Tímarit Máls og menningar skynjaði Kafka ætíð sem andstæðu við aðra þætti lífs síns. Hún virðist hafa verið honum sama kvalafulla vitundarstarfið og það sem hrjáir ýmsar persónur hans, markað hinum stóru spurningum sem vikið var að í kaflabyrjun. Þetta starf kallaði hann stundum „baráttuna við heiminn“ — „barátta" („Kampf") er raunar mikilvægt orð í skáldskap hans frá upphafi — hún einkennist af óvæginni rýni undir það hversdagslega yfirborð sem veröldin hefur ætíð til reiðu, okkur til þæginda og blekk- ingar. Lífið skynjaði hann því iðulega sem togstreitu milli tveggja heima, eða tveggja sjónarhorna á sama heiminn; á endanum er það spurning um tvenns konar lífsmáta, sem eftir sögum hans einum að dæma er þó hvorugur góður. „A efstu svölunum" er einkar gott dæmi um þetta. I fyrri hluta sögunnar erum við í huga áhorfanda sem sér í gegnum yfirborðið, skynjar sannleikann á bak við það á næstum því ýktan hátt; hann hleypur fram til að stöðva þetta ódæði. En síðari hlutinn segir okkur að þetta sé alls ekki svona; þess í stað er glansmyndin dregin upp og við hana getur áhorfandinn verið sáttur, hann vill vera í samlyndi við lífið. En Kafka lýkur sögunni með dæmigerðri tvíræðni. Grætur áhorfandinn vegna þess hve fagurt lífið er á að líta, eða vegna þess að „án þess að vita af því“ skynjar hann innst inni hina hróplegu blekkingu sína (sem myndi þá vísa okkur aftur til fyrri söguhlutans)? „Skýrsla handa akademíu“ er ólík öðrum sögum Kafka sem íslensk- aðar hafa verið; sýnir á honum aðra hlið. Þeir sem eiga erfitt með að skynja húmorinn sem birtist í Réttarhöldunum17 og í „Ahyggjum hús- bóndans" munu hér finna hefðbundnari kímnigáfu. Jafnframt býr sagan öll yfir leiftrandi íróníu. En þó er einnig hér sem ýjað sé að tvenns konar afstöðu til samfélagsins. Sú írónía sem felst í því að apanum tekst „að öðlast meðalmenntun Evrópumanns" er auðveld viðfangs fyrir Kafka; en þessi háðhvörf í sögunni eru engan veginn einhlít, apinn er ekki sá sigurvegari sem við hlæjum með. Því þessi óvenjulega vitsmunavera hefur hugmynd um „frelsið", en ákveður að „hlaupast undan merkjum", finnur „undankomuleið" sem felst í því að samlagast ríkjandi aðstæðum mannanna. Apinn lifir draum hins vestræna smáborgara; hann hefur náð frammúrskarandi árangri í starfi sínu (sem vel að merkja er í fjöl- leikahúsi), býr við allsnægtir og afþreyingu, og getur svalað líkamlegum hvötum sínum hugsunarlaust. En þótt hann segist ekki kvarta er hann heldur ekki ánægður. Eg tel að í mörgum verkum Kafka megi finna þessa togstreitu milli 274
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.